The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 1

Matthew · Chapter 1

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 1 of 174 · about 2 min

← Oddur’s New Testament (1540)Chapter 2 →

[ breyta] Þessi er fæðingarbók Jesú Kristi, sonar Davíðs, sonar Abrahams. Abraham gat Ísak, Ísak gat Jakob, Jakob gat Júdam og bræður hans, Júdas gat Farem og Saran af Tamar, Fares gat Esron, Esron gat Ram, Ram gat Amínadab, Amínadab gat Nahasson, Nahasson gat Salma, Salma gat Bóas af Rahab, Bóas gat Óbeð af Rhat, Óbeð gat Jesse, Jesse gat kónginn Davíð.

En Davíð kóngur gat Salamon af þeirri sem var húsfrú Úríe, Salamon gat Róbóam, Róbóas gat Abía, Abía gat Assa, Assa gat Jósafat, Jósafat gat Jóram, Jóram gat Ósía, Ósía gat Jótam, Jótam gat Akas, Akas gat Esekía, Esekía gat Manasses, Manasses gat Amon, Amon gat Jósía, Jósía gat Jekonía og bræður hans um babyloneskan herleiðingartíma, og eftir babyloneska herleiðing gat Jekonía Sealtíel, Sealtíel gat Sóróbabel, Sóróbabel gat Abíúd, Abíúd gat Eliakím, Eliakím gat Asór, Asór gat Sódók, Sódók gat Akín, Akín gat Elíúd, Elíúd gat Eleasar, Eleasar gat Matan, Matan gat Jakob, Jakob gat Jósef, mann Maríu, af hverri eð fæddur er Jesús sá er kallast Kristur.* Allir ættliðir frá Abraham allt að Davíð eru fjórtán liðir og frá Davíð allt til babyloneskrar herleiðingar eru fjórtán liðir, og frá babyloneskri herleiðing allt til Kristum eru fjórtán liðir.

En Krists hingaðburður var svo. Nær eð María hans móðir var föstnuð Jósef, og áður en þau skyldu saman koma, fannst hún ólétt af heilögum anda, en Jósef maður hennar var réttvís, vildi því eigi ófrægja hana, en þenkti sér þó leynilega að forláta hana.

En sem hann hugsaði þetta: Sjá, þá vitraðist honum engill Drottins í draumi og sagði: Jósef, sonur Davíðs, þú skalt eigi óttast að taka Mariam, þína festarkvon, til þín því að hvað með henni alið er, það er af helgum anda, og hún mun son fæða, og hans nafn skaltu Jesús kalla því að hann mun frelsa sitt fólk af þeirra syndum.* En allt þetta skeði svo að uppfylltist hvað sagt er af Drottni fyrir spámanninn, svo segjanda: Sjáið, að mey mun þunguð verða og son fæða, og hans nafn skal kallast Emanúel, hvað er þýðist: Guð með oss.

En þá Jósef vaknaði af svefni, gjörði hann svo sem engill Drottins hafði honum boðið og tók sína festarkvon til sín og kenndi hennar eigi %þar til hún fæddi son sinn frumgetinn og kallaði hans nafn Jesús.

← Oddur’s New Testament (1540)Chapter 2 →