The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 2

Matthew · Chapter 2

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 2 of 174 · about 3 min

← Chapter 1Chapter 3 →

[ breyta] Nær Jesús var fæddur til Betlehem í Gyðingalandi á dögum Heródis kóngs, sjá, þá komu vitringar af Austurríki til Jerúsalem og sögðu: Hvar er sá nýfæddi kóngur Gyðinga, því vér höfum séð hans stjörnu í Austurríki og erum komnir að tilbiðja hann. En er Heródes kóngur heyrði það, hryggðist hann og öll Jerúsalem með honum og lét saman safna öllum kennimannahöfðingjum og skriftlærðum lýðsins og forheyrði af þeim hvar Kristur skyldi fæðast. En þeir sögðu honum: Til Betlehem í Júdea. Því að svo er skrifað fyrir spámanninn: Og þú Betlehem á Júdalandi ert öngvaneginn hin minnsta á meðal höfðingjum Júda því að af þér mun koma hertogi sá er stjórna skal yfir fólk mitt Írael.

Þá kallaði Heródes vitringana leynilega til sín og hugarlátlegana að spurði þá, á hverjum tíma að stjarnan hefði birst þeim og vísaði þeim til Betlehem og sagði: Fari þér og spyrjið innilega að sveininum, og nær þér finnið hann, þá kunngjörið mér aftur svo eg komi einninn að tilbiðja hann. Sem þeir höfðu nú kónginum heyrt, fóru þeir af stað. Og sjá, að stjarnan, sem þeir séð höfðu í Austurríki, gekk fram fyrir þeim, allt þar til hún kom og stóð þar upp yfir hvar sveinninn var. En er þeir sáu stjörnuna, glöddust þeir af næsta miklum fagnaði og gengu í húsið inn og fundu þar sveininn með Maríu móður sinni, féllu og fram og tilbáðu hann.

Og að opnuðum sínum fjársjóðum offruðu þeir honum gjafir, gull, reykilsi og mirru og féngu þá ávísan í svefni að þeir gæfi sig eigi aftur til Heródem og fóru svo annan veg aftur í sitt land.* En þá þeir voru í burt farnir, sjá, að engill Drottins vitraðist Jósef í draumi og sagði: Statt upp og tak sveininn og móður hans til þín og flý í Egyptaland og vert þar, allt þangað til eg segi þér því að það er eftirkomanda að Heródes mun leita sveinsins að fyrirfara honum. En hann stóð upp og tók sveininn og móður hans til sín um nátt og fór í Egyptaland og var þar allt fram yfir líflát Heródis. Svo það uppfylltist hvað sagt er af Drottni fyrir spámanninn eð segir: Af Egyptalandi kallaði eg son minn.

Þá Heródes sá nú það hann var gabbaður af vitringunum, var hann afar reiður og sendi út og lét drepa öll sveinbörn til Betlehem og í öllum hennar endimörkum, tvævetur og þaðan af minni eftir þeim tíma sem hann hafði út spurt af vitringunum. Þá uppfylltist hvað sagt er fyrir Jeremía spámann sem segir: Á hæðum hefir heyrst kall mikillar kveinunar, óps og ýlfranar, að Rakel æpti sonu sína og vildi eigi huggast láta því að það var með þeim úti.* En þá Heródes var látinn, sjá, að engill Drottins birtist Jósef í draumi á Egyptalandi og sagði: Statt upp og tak sveininn og móður hans til þín og far til Íraelsjarðar því þeir eru í helju sem leituðu að lífi sveinsins.

Hann stóð upp og tók sveininn og móður hans til sín og kom til Íraelsjarðar. En þá hann heyrði það Arkilaus ríkti í Júdea í staðinn föður síns Heródis, óttaðist hann þangað að fara, og í draumi fékk hann undirvísan af Guði og fór í álfur Galílealands, kom og byggði í þeirri borg sem hét Naðaret svo það uppfylltist hvað sagt er fyrir spámennina að hann skyldi naðverskur kallast.*

← Chapter 1Chapter 3 →