The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 10

Matthew · Chapter 10

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 10 of 174 · about 6 min

← Chapter 9Chapter 11 →

[ breyta] Á þeim sama degi gekk Jesús út af húsinu og sat við sjóinn. Og margt fólk safnaðist að honum svo hann sté á skip, setti sig, og allt fólkið stóð í fjörunni. Og hann talaði margt til þeirra í eftirlíkingum og sagði: Sá er sáði, gekk út að sá sínu sæði, og þá hann sáði, féll sumt við veginn, og fuglar komu og átu það. En sumt féll í grýtta jörð hvar það hafði eigi mikla jörð og rann fljótlega upp því að það hafði eigi jarðardýpi. En sem sólin rann upp, skrældist það, og af því að það hafði eigi rót neina visnaði það. En sumt féll á millum þyrna, og þyrnarnir spruttu upp og kæfðu það. En sumt féll í góða jörð og færðu ávöxt, sumt hundraðfaldan, sumt sextugfaldan, sumt þrítugfaldan.

Hver eyru hefir að heyra, sá heyri. Og lærisveinarnir gengu til hans og sögðu: Fyrir hví talar þú til þeirra í eftirlíkingum? Hann svaraði og sagði: Yður er unnt að vita leynda dóma himnaríkis, en þeim er það eigi veitt. Því að hver eð hefur, honum mun gefast svo hann gnóg hafi, en sá er eigi hefur, af honum mun og takast það hann hefir. Fyrir því tala eg til þeirra í eftirlíkingum að með sjáanda augum sjái þeir eigi og heyranda eyrum heyri þeir eigi því að þeir skilja það eigi. Svo að á þeim uppfylltist spádómur Esaia er hann segir: Eyrunum munu þér heyra, og þó munu þér það eigi skilja, og með sjáandi augum munu þér sjá og eigi skynjað geta.

Því að þessa fólks hjarta er forharðnað, og þeirra eyru eru þungheyrð og augu þeirra saman lukt svo að þeir eigi með augum sjái og eyrum heyri né með hjartanu skilji til að leiðrétta sig svo að eg lækni þá. En sæl eru yðar augu það er þau sjá og yðar eyru það er þau heyra. Sannlega segi eg yður það margir spámenn og réttlátir fýstust að sjá hvað þér sjáið og hafa það eigi séð og að heyra hvað þér heyrið og hafa það eigi heyrt. Af því heyrið þessa eftirlíking sæðarans: Þá er nokkur heyrir orðið ríkisins og undirstendur eigi, kemur hinn vondi og hrifsar burt hvað sáð er í hans hjarta. Þetta er það hvað við veginn er sáð.

En sá sem í grýtta jörð er sáður, er sá, hver orðið heyrir og fljótlega af fagnaði meðtekur það, en hann hefir eigi rót í sér, heldur er hann fráhverfur. Nær eð hrellingar og ofsóknir hefjast fyrir orðsins sakir, skammfyllist hann jafnskjótt. En hann á millum þyrna er sáður, er hann sem heyrir orðið, og áhyggja þessarar veraldar og fláttskapur fédráttar kefur orðið og verður svo án ávaxtar. En sá í góða jörð er sáður, er hann sem heyrir orðið og undirstendur það og færir ávöxt, sumir hundraðfaldan, sumir sextugfaldan, sumir þrítugfaldan. Aðra eftirlíking lagði hann þeim fyrir og sagði: Himnaríki er líkt þeim manni, sá er sáði góðu sæði í akur sinn.

En þá menn sváfu, kom hans óvin og sáði illgresi með í bland hveitið og fór í burt. En er grasið spratt upp og bar ávöxt, þá auglýstist og illgresið. En þénararnir gengu til húsföðursins og sögðu: Lávarður, sáðir þú eigi góðu sæði í akur þinn? Hvaðan kemur honum þá illgresið? Og hann sagði til þeirra: Það hefir fjandmaður gjört. Þjónarnir sögðu þá: Viltu að vær förum og útlesum það? Hann sagði: Nei, svo að þér upprætið eigi hveitið undir eins. Nær þér útlesið illgresið, látið hvorttveggja vaxa allt til kornskurðar.

Og á kornskerutíma skal eg segja til kornskurðarmanna: Lesið fyrst illgresið saman og bindið það í smá byndini til brennslu, en hveitinu saman safnið í mína kornhlöðu.* Aðra eftirlíking lagði hann enn fram fyrir þá og sagði: Himnaríki er líkt mustarðskorni, það maður tók og sáði í akur sinn, hvað eð minnst er allra sæða. En nær það sprettur upp, er það stærst allra kálgrasa og verður það tré að fuglar loftsins koma og byggja undir þess kvistum. Enn aðra eftirlíking talaði hann til þeirra: Líkt er himnaríki súrdeigi, það kona tók og faldi í þrimur mælum mjöls þar til að það sýrðist allt til sama.

Þetta allt talaði Jesús í eftirlíkingum til fólksins, og fyrir utan eftirlíkingar talaði hann eigi til þeirra svo að uppfylltist hvað sagt er fyrir spámanninn, þann er segir: Munn minn mun eg upplúka í eftirlíkingum, og leyndan dóm mun eg útmæla af upphafi veraldar. Þá lét Jesús fólkið frá sér og kom inn í húsið. Og hans lærisveinar gengu til hans og sögðu: Kenn þú oss líkingina illgresisakursins. Jesús svaraði og sagði til þeirra: Hann sem sár góðu sæði er mannsins sonur, en akurinn er heimurinn, góða sæðið eru þeir ríkisins synir, en illgresið eru illskunnar synir. En óvinurinn, sá er sáði því, er djöfullinn.

En kornskerutíminn er ending þessarar veraldar, kornskurðarmennirnir eru englarnir. Því líka sem nú verður illgresið útlesið og eldi brennt, svo man og ske í enda þessarar veraldar. Því að mannsins son mun út senda sína engla, og þeir munu saman lesa af hans ríki öll hneyksli og þeim er rangindi gjöra, og þeir munu svo kasta þeim í eldsins ofn. Þar man vera grátur og tannagnístran. En þá munu réttlátir ljóma sem sól í ríki föðurs þeirra. Hver eyru hefir að heyra, hann heyri. Og enn þá er himnaríki líkt fólgnum fjársjóð á akri, hvern eð maður fann og faldi hann. Og af þeim fagnaði, er hann hafði yfir honum, gekk hann burt og seldi allt hvað hann hafði og keypti þann sama akur.

Og enn aftur er himnaríki líkt þeim kaupmanni er góðrar perlu leitaði. Og þá hann fann eina forkostulega perlu, fór hann til og seldi allt hvað hann hafði og keypti þá sömu. Og enn aftur er himnaríki líkt neti því sem í sjó er kastað og með hverju af öllu fiska kyni dregið verður. En nær það er fullt, draga þeir það að landi, sitja síðan og saman lesa hina góðu í keröld, en vondum snara þeir út. Svo man og ske í enda veraldar að englar munu út fara og hina vondu mitt frá réttlátum skilja, og þeim munu þeir kasta í eldsins ofn, hvar vera man óp og tannagnístran. Og Jesús sagði til þeirra: Hafi þér allt þetta undirstaðið? Þeir sögðu: Einninn herra.

Þá sagði hann: Fyrir því, hver sá skriftlærður sem til himnaríkis menntaður er, hann líkist þeim húsföður sem framber af sínum thesaur %nýtt og gamalt.* Og það skeði þá Jesús hafði lyktað þessar eftirlíkingar að hann gekk þaðan og kom til sinnar fósturjarðar og kenndi þeim í þeirra samkunduhúsum svo að þeim grúaði og sögðu: Hvaðan kemur þessum slík speki og kraftar? Er þessi eigi timbursmiðsins son? Heitir hans móðir ekki María og bræður hans Jakob og Jósef, Símon og Júda? Og eru hans systur eigi hér hjá oss? Hvaðan kemur þessum allt þetta? Og svo skammfylltust þeir við hann. En Jesús svaraði og sagði til þeirra: Spámaður er eigi án vegsemda nema á sinni fósturjörð og í sínu húsi.

Og eigi gjörði hann þar mörg kraftaverk fyrir sakir vantrúar þeirra.

← Chapter 9Chapter 11 →