Matthew · Chapter 11
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 11 of 174 · about 3 min
[ breyta] Á þeim tíma heyrði Heródes tetrarkas ryktið af Jesú. Og hann sagði til sinna hirðsveina: Þessi er Jón baptista, hver af dauða er upp aftur risinn, og því gjörast þessi kraftaverk af honum. Því að Heródes hafði fanga látið Jóhannem, bundið og í varðhöld sett fyrir sakir Heródíadis, húsfreyju Filippi bróður hans. Því að Jóhannes hafði til hans sagt: Eigi hæfir þér hana að hafa. Og því vildi hann hafa líflátið hann, en þorði þó eigi fyrir fólkinu því að það hélt hann fyrir spámann. En að ártíðardegi Heródis dansaði dóttir Heródíadis mitt frammi fyrir honum og það hagaði Heródes ofur vel. Af því lofaði hann með eiði að gefa henni, hvers hún æskti af honum.
Og eftir því hún var áður til eggjuð af móður sinni, sagði hún: Gef mér hér á diski höfuð Jóns baptista. Og konungurinn varð hryggur, en þó fyrir eiðsins sakir og þeirra er með honum til borðs sátu, bauð hann að það gefist henni, sendi út og lét afhöfða Jóhannem í myrkvastofu, og var höfuð hans borið á diski og gefið stúlkunni, og hún færði móður sinni. Þá fóru lærisveinar hans og tóku hans líkama og grófu, komu síðan og kunngjörðu það Jesú. En er Jesús heyrði það, fór hann þaðan á skipi alleina til eyðimerkur. Og þá fólkið heyrði það úr stöðunum, fylgdi það honum eftir á fæti. Og Jesús gekk fram undan og leit þann mikla múg og sá aumur á þeim og læknaði þá af þeim sem krankir voru.
En að kveldi gengu hans lærisveinar til hans og sögðu: Þessi staður er í eyði, tíminn tekur að líða. Lát fólkið frá þér að það gangi í kauptúnin og kaupi sér þar fæðu. En Jesús sagði til þeirra: Þeir hafa þess eigi þörf að þeir gangi í burt, gefi þér þeim að eta. Þeir sögðu: Vær höfum ekki hér nema fimm brauð og tvo fiska. Hann sagði: Færið mér þau hingað. Og hann bauð fólkinu niður að setjast á grasið og tók þau fimm brauð og tvo fiska, leit til himins, blessaði og braut þau og gaf sínum lærisveinum brauðin, en lærisveinarnir gáfu þau fólkinu. Og þeir snæddu allir og urðu saddir og tóku upp þær leifar er af gengu, tólf karfir fullar.
En þeir eð etið höfðu, voru tals fimm þúsund manna undanteknum konum og börnum. Og jafnsnart kom Jesús sínum lærisveinum til að þeir gengi á skip og færu fyrir honum yfir um sjáinn þar til hann léti fólkið frá sér. Og er hann hafði fólkið frá sér látið, gekk hann einn saman upp á fjallið að biðjast fyrir. Og um kveldið var hann þar alleina. En skipið var þá mitt á sjánum og hraktist í bylgjunum því að vindurinn var þvert í móti. En um fjórðu eykt nætur kom Jesús til þeirra gangandi á sjánum. En er lærisveinarnir sáu hann á sjánum ganga, hræddust þeir og sögðu að það væri skrímsl og kölluðu upp af hræðslu. En Jesús talaði strax til þeirra og sagði: Verið stöðugir, eg em hann, óttist eigi.
En Pétur svaraði honum og sagði: Ef þú ert það, herra, þá bjóð mér að koma til þín á vatninu. Og hann sagði: Kom. Og Pétur sté af skipinu og gekk á vatninu að hann kæmi til Jesú. En er hann leit megnan vind, óaði honum og tók að sökkva, kallaði og sagði: Herra, hjálpa þú mér. En Jesús rétti jafnsnart höndina út og greip hann og sagði til hans: Þú lítiltrúaður, fyrir hví efaðir þú? Og er þeir voru á skipið komnir, kyrrði vindinn. En þeir sem á skipinu voru, komu og féllu fram fyrir honum og sögðu: Sannlega ertu Guðs sonur. Og þeir fóru yfir um og komu til Genesaretsjarðar.
Og er hann þekktu þarsveitarmenn, sendu þeir út um allt það byggðarlag og færðu til hans alla vanfæra menn og báðu hann um að þeir mættu aðeins snerta föll hans fata. Og svo margir sem að hann snertu, urðu allir heilbrigðir.