Matthew · Chapter 13
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 13 of 174 · about 6 min
[ breyta] Þá gengu farísei og saddúkei til hans freistandi hans og báðu hann að sýna sér teikn af himni. En hann svaraði þeim og sagði: Á kveldin segi þér: Það verður fínt veður því að himinroði er. Og á morgna segi þér: Í dag verður hreggviðri því að himinninn er rauður og dimmur. Þér hræsnarar, himinsins ásján kunni þér að dæma, en að vita teikn þessara tíma kunni þér eigi. Þessi vonda hórdóms kynslóð æskir teikns, og henni skal ekkert teikn gefið verða nema teikn Jóna spámanns. Og hann forlét þá og gekk í burt. Og er ha Jesús sagði til þeirra: Sjáið til og vaktið yður við súrdeigi þeirra faríseis og saddúkeis.
Þá þenktu þeir með sér og sögðu: Það mun vera það vær höfum eigi brauð með oss tekið. En er Jesús fornam það, sagði hann til þeirra: Þér lítiltrúaðir, hvar fyrir hugsi þér um það þó þér hafið eigi brauðin með yður haft? Skiljið þér enn ekki? Minnist þér eigi á þau fimm brauð á meðal fimm þúsunda eða hversu margar karfir að þér tókuð þá upp? Og eigi enn á þau vii brauð á meðal fjögra þúsunda og hversu margar karfir eð þér tókuð þá upp? Hvar fyrir skilji þér eigi að eg sagða yður ekki af brauðinu, en eg segi: Vaktið yður við súrdeigi þeirra faríseis og saddúkeis.
Þá undirstóðu þeir að hann hafði eigi sagt þeim það þeir skyldi vara sig við súrdeigi brauðsins, heldur við lærdómi þeirra faríseis og saddúkeis. Þá kom Jesús í landsálfur borgarinnar Sesaree Filippi og spurði sína lærisveina að og sagði: Hvað segja menn til hver mannsins sonur sé? Þeir sögðu: Sumir segja þú sért Jóhannes baptista, en aðrir þú sért Elías, sumir að þú sért Jeremías eður einn af spámönnum. Jesús sagði til þeirra: Hvern segi þér mig vera? Þá svaraði Símon Petrus og sagði: Þú ert Kristur, sonur Guðs lifanda. En Jesús svaraði og sagði til hans: Sæll ertu, Símon Jónasson. Því að hold og blóð birti þér það eigi, heldur minn himneskur faðir.
Eg segi þér og að þú ert Petrus, og yfir þennan hellustein mun eg uppábyggja mína samkund, og hliðin helvítanna skulu eigi magn hafa í gegn henni. Og þér mun eg gefa lykla himnaríkis, og allt hvað þú bindur á jörðu, skal á himnum bundið vera, og allt hvað þú leysir á jörðu, skal á himnum leyst vera. Þá fyrirbauð hann sínum lærisveinum að þeir segði það öngum að hann væri sá Jesús Kristur. Þaðan í frá tók Jesús til að auglýsa fyrir sínum lærisveinum það honum byrjaði að ganga til Jerúsalem og margt að líða af öldungum, skriftlærðum og kennimannahöfðingjum og líflátinn verða og á þriðja degi upp að rísa.
En Pétur tók hann út af, átaldi hann og sagði: Herra, þyrm sjálfum þér að eigi hendi þig þetta. En hann snerist við og sagði til Péturs: Far frá mér, andskoti, þú ert mér hneykslanlegur því að þú skilur eigi hvað Guðs, heldur hvað mannanna er. Jesús sagði þá til sinna lærisveina: Ef nokkur vill mér eftir fylgja, þá afneiti hann sjálfum sér og taki sinn kross á sig og fylgi mér eftir. Því að hver hann vill sitt líf forvara, sá man því týna, en hver sínu lífi týnir fyrir mínar sakir, sá mun það finna. Því hvað stoðar það manninum þó hann hreppti allan heiminn, en gjörði tjón sinnar sálu? Eður hvað mun maðurinn fá gefið, það hann sálu sína með endurleysi?
Því að það man ske að mannsins son mun koma í dýrð síns föðurs með sínum englum, og þá mun hann gjalda hverjum sem einum eftir sínum verkum. Sannlega segi eg yður að nokkrir standa þeir hér sem dauðann munu eigi smakka þar til að þeir sjá mannsins son komanda í sínu ríki. Seytjándi kapítuli [ breyta] Og sex dögum þar eftir tók Jesús með sér Petrum og Jakobum og Jóhannem bróður hans og hafði þá afsíðis upp á hátt fjall og auglýstist fyrir þeim. Og hans ásján skein sem sól, en hans klæði urðu svo björt sem ljós. Og sjá, að honum birtust þeir Moyses og Elías og töluðu við hann. En Pétur ansaði og sagði til Jesú: Herra, hér er oss gott að vera.
Ef þú vilt, þá vilju vær gjöra hér þrjár tjaldbúðir, þér eina, Moyse eina, Elíe eina. Og þá er hann var þetta að tala, sjá, að bjart ský umskyggði þá, og sjá, að röddin úr skýinu sagði: Þessi er sonur minn elskulegur, að hverjum mér vel þókknast. Heyrið honum. Og er lærisveinarnir heyrðu það, féllu þeir fram á sínar ásjánir og urðu mjög hræddir. En Jesús gekk til þeirra, tók á þeim og sagði: Standið upp og verið eigi hræddir. En er þeir litu upp, sáu þeir öngvan nema Jesúm einn saman.
Og er þeir gengu ofan af fjallinu, bauð Jesús þeim og sagði: Þér skulu öngum þessa sjón segja þar til að mannsins son er upp aftur risinn af dauða.* Og hans lærisveinar spurðu hann að og sögðu: Hvar fyrir segja hinir skriftlærðu þá það Elías hljóti áður að koma? Jesús svaraði og sagði til þeirra: Elías á að sönnu áður að koma og alla hluti að lagfæra. En eg segi yður það Elías er nú kominn, og þeir kenndu hann eigi, heldur gjörðu þeir við hann hvað helst þeim líkaði. Svo man og mannsins son verða af þeim að líða. Þá undirstóðu lærisveinarnir það hann hafði sagt af Jóhanni baptista.
Og er þeir komu til fólksins, gekk maður til hans, féll og á knéin fyrir honum og sagði: Herra, miskunna þú syni mínum. Því að hann er tunglsjúkur og er herfilega pyngaður því oft fellur hann á eld og þráttsinnis í vatn. Eg hafða hann og til þinna lærisveina, og þeir gátu hann eigi læknað. En Jesús svaraði og sagði: Ó, þú vantrúuð og rangsnúin kynslóð, hversu lengi skal eg hjá yður vera? Hversu lengi á eg yður að líða? Hafið hann hingað til mín. Og Jesús hastaði á hann, og djöfullinn fór út af honum. Og sveinninn varð heilbrigður á samri stundu. Þá gengu lærisveinarnir heimulega til Jesú og sögðu: Fyrir því gátu vær eigi rekið hann út?
Jesús svaraði og sagði til þeirra: Fyrir yðvarrar vantrúar sakir. Því eg segi yður fyrir sann: Ef þér hefðuð trú svo sem mustarðskorn, mætti þér segja fjalli þessu: Far þú héðan og þangað, og mundi það fara. Og ekkert mundi yður ómáttugt vera. En þetta kyn rekst eigi út nema fyrir bæn og föstu. En sem þeir sýsluðust um í Galílea, sagði Jesús til þeirra: Eftirkomandi er það mannsins sonur man ofurseldur verða í manna hendur og líflátinn verða, og á þriðja degi mun hann upp rísa. Og við það urðu þeir næsta hryggvir. Og er þeir komu til Kapernaum, gengu þeir að Pétri sem skattgjaldið upp báru og sögðu: Yðar meistari, geldur hann eigi skattpeninginn? Hann sagði: Já.
Og er hann gekk inn í húsið, kom Jesús fram að honum og sagði: Hvað líst þér Símon, af hvorum taka jarðlegir konungar toll eður skattpening? Af sínum sonum eður af annarlegum? Pétur sagði: Af annarlegum. Jesús sagði til hans: Þá eru synirnir frí. En svo að vér séum þeim eigi að hneykslan, þá far til sjávar og varpa út önglinum og þann fisk, sem fyrstur kemur upp, tak þú. Og er þú opnar hans gin, muntu finna eina %stateram. Þá sömu tak og gef honum fyrir mig og þig.