Matthew · Chapter 12
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 12 of 174 · about 4 min
[ breyta] Þá gengu til hans skriftlærðir og farísei af Jerúsalem og sögðu: Fyrir því ofurtroða þínir lærisveinar öldunganna uppsetninga með því þeir þvo eigi sínar hendur er þeir brauð eta? Hann svaraði og sagði til þeirra: Fyrir hví ofurtroði þér Guðs boðorð fyrir yðvarn uppsetning? Því Guð sagði: Heiðra skalt þú föður þinn og móður, - og: Hver hann bölvar föður eður móður, sá skal dauða deyja. En þér segið að hver skuli segja til föður eða til móður: Það er Guði gefið, hvar með eg skylda þér hjálpa. Af því sker það að nær enginn heiðrar föður sinn né móður og hafið svo ónýt gjört Guðs boðorð fyrir yðvars uppsetnings sakir.
Þér hræsnarar, vel hefir Esaias spáð af yður er hann segir: Þessi lýður nálægist mig með sínum munni og heiðrar mig með vörum sínum, en þeirra hjörtu eru langt frá mér. Að öngu dýrka þeir mig á meðan þeir kenna þær kenningar sem ekki eru annað en boðorð manna. Og hann kallaði fólkið til sín og sagði til þeirra: Heyrið þér og undirstandið það hvað er inn gengur í munninn, það saurgar eigi manninn, heldur hvað er fram af munninum gengur, það saurgar manninn. Þá gengu hans lærisveinar að honum og sögðu: Veist þú að þá er þeir farísei heyrðu það orð, skammfylltust þeir? En hann svaraði og sagði: Öll plantan, hverja minn himneskur faðir plantar eigi, mun upprætast. Látið þá fara.
Þeir eru blindir og blindra leiðtogarar. Því ef blindur leiðir blindan, þá falla þeir báðir í gröfina. Þá svaraði Pétur og sagði til hans: Þýð oss þessa eftirlíking. Jesús sagði til þeirra: Eru þér enn svo skilningslausir? Skynjið þér eigi að allt hvað í munninn gengur, það hverfur í magann og verður fyrir eðlilega rás útskúfað. En hvað af munninum fram gengur, það kemur út af hjartanu. Því að út af hjartanu koma vondar hugsanir, manndráp, hórdómur, frillulífi, þjófnaður, ljúgvitnan, lastanir. Þetta er það hvað manninn saurgar. En með óþvegnum höndum að eta saurgar eigi manninn.* Jesús gekk burt þaðan og fór í landsálfur Týro og Sídonis.
Og sjá, að kanversk kona gekk út af þeim sömum takmörkum, kallaði og sagði: Ó herra, sonur Davíðs, miskunna þú mér. Mín dóttir kvelst illa af djöflinum. Lát hana fara af því hún kallar eftir oss. En hann svaraði og sagði: Eg em eigi sendur nema til fortapaðra sauða af húsi Írael. En hún kom og féll niður fyrir honum og sagði: Hjálpa þú mér, herra. En hann svaraði henni og sagði: Það er eigi térlegt að taka brauðið, það barnanna er og kasta því fyrir hundana. En hún sagði: Satt er það, herra, en þó eta hundar af molum þeim sem detta af borðum drottna þeirra. Þá svaraði Jesús og sagði til hennar: Þú kona, mikil er trúa þín. Verði þér svo sem þú vilt.
Og á þeirri sömu stundu varð hennar dóttir heilbrigð.* Og er Jesús gekk þaðan, kom hann að sjánum í Galílea, gekk upp á fjallið, setti sig þar, og margt fólk dreif til hans, hafandi með sér halta, blinda, mállausa, vanaða og marga aðra og snörpuðu þeim fram fyrir fætur Jesú. Og hann læknaði þá svo að fólkið undraðist er það sá mállausa mæla og vanaða heila, halta ganga, blinda sjáandi og vegsömuðu Guð Íraels. Og Jesús kallaði sína lærisveina til sín og sagði: Mig aumkar fólksins. Því að þeir hafa þrjá daga hjá mér verið og hafa ekki til matar. Og fastandi vil eg þá eigi frá mér fara láta svo að eigi verði þeir hungurmorða á veginum.
Lærisveinarnir sögðu til hans: Hvaðan töku vær svo mörg brauð hér á eyðimörku að vér seðjum með jafnmargt fólk? Jesús sagði til þeirra: Hversu mörg brauð hafi þér? Þeir sögðu: (vii) og fá fiskakorn. Og hann bauð fólkinu að það settist niður á jörðina og tók þau sjö brauðin og fiskana. Og er hann hafði þakkir gjört, braut hann þau og gaf lærisveinunum. Hans lærisveinar gáfu þau fólkinu, og þeir átu allir og urðu saddir og tóku upp það sem yfir var molanna (vii) karfir fullar. En þeir sem matast höfðu, voru fjórar þúsundir manna fyrir utan konur og börn. Og er hann hafði fólkið frá sér látið, sté hann á skip og kom í endurmerkur Magdalalands.