Matthew · Chapter 15
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 15 of 174 · about 45 min
[ breyta] Og það skeði sem Jesús hafði lyktað þessa ræðu að hann fór af Galílea og kom í endimerkur Gyðingalands öðrumegin Jórdanar. Og margt fólk fylgdi honum eftir, og þar læknaði hann Þá gengu farísei til hans, freistuðu hans og sögðu: Leyfist nokkuð manninum að forláta sína eiginkonu fyrir hverja sem eina sök? En hann svaraði og sagði til þeirra: Hafi þér eigi lesið að sá er í upphafi skapaði manninn, hann gjörði það að vera skyldi maður og kona og sagði: Fyrir því mun maðurinn forláta föður og móður og viðtengjast eiginkonu sinni, og þau tvö munu eitt hold vera. Svo eru þau nú eigi tvö, heldur eitt hold. Því hvað Guð hefir saman tengt, það skal maðurinn eigi í sundur skilja.
Þá sögðu þeir: Fyrir hví bauð Moyses þá að gefast skyldi skilnaðarskrá og hana að forláta? Hann sagði til þeirra: Moyses hefir fyrir harðúð yðvars hjarta leyft yður að forláta húsfreyjur yðrar, en af upphafi var það eigi svo. En eg segi yður það hver sína eiginkonu forlætur (nema það sé fyrir hórunarsök) og giftist annarri, sá drýgir hór, og hver sem fráskilinni giftist, sá drýgir og hór. Þá sögðu lærisveinarnir til hans: Ef svo er háttað mannsins málefnum við eignarkonuna, þá er eigi gagn í að giftast. En hann sagði til þeirra: Þetta orð fá eigi allir höndlað, heldur þeir, hverjum það er gefið.
Því að þar eru þeir geldingar sem svo verða af móðurkviði fæddir, og þeir geldingar eru, hverjir af mönnum eru geldir, og þar eru líka þeir geldingar sem sjálfa sig hafa gelt fyrir himnaríkis sakir. Sá gripið getur, hann grípi það. Þá voru smábörn til hans höfð svo að hann legði hendur yfir þau og hann bæðist fyrir, en lærisveinarnir ávítuðu þá. Jesús sagði til þeirra: Látið börnin kyrr, fyrirbjóðið þeim eigi til mín að koma því að slíkra er sjá, að einn gekk að honum og sagði til hans: Góði meistari, hvað skal eg þess gott gjöra að eg hafi eilíft líf? Hverjum hann svaraði: Hvað kallar þú mig góðan? Enginn er góður nema einn sannarlegur Guð.
En ef þú vilt til lífsins inn ganga, svo varðveit þú boðorðin. Hann sagði þá til hans: Hver helst? En Jesús sagði: Eigi skalt þú mann vega, eigi skalt þú hórdóm drýgja, eigi skalt þú annan stela, eigi skalt þú ljúgvitni mæla, heiðra skalt þú föður þinn og móður, og elska skalt þú náunga þinn svo sem sjálfan þig. Þá sagði ungi maðurinn til hans: Þetta allt hefi eg varðveitt í frá barnæsku minni. Hvað brestur mig þá? Jesús sagði til hans: Ef þú vilt algjörður vera, far burt og sel allt hvað þú hefir og gef fátækum, og munt þú þá sjóð hafa á himni. Kom þá og fylg mér svo eftir. Og er hinn ungi maður heyrði það orð, gekk hann hryggur í burt því að hann hafði miklar eigur.
En Jesús sagði til sinna lærisveina: Sannlega segi eg yður að torvelt er ríkum inn að ganga í himnaríki. Og enn segi eg yður það auðveldara er úlfbaldanum að smjúga í gegnum nálarauga en ríkum inn að ganga í Guðs ríki. Og er lærisveinarnir heyrðu það, urðu þeir mjög óttaslegnir og sögðu: Hver fær þá hjálpast? En Jesús leit við þeim og sagði til þeirra: Hjá mönnum er það ómögulegt, en hjá Guði er allt mögulegt. Þá svaraði Pétur og sagði til hans: Sjáðu, að vér forlétum allt og fylgjunt þér eftir. Hvað sker oss þar fyrir?
En Jesús sagði til þeirra: Sannlega segi eg yður að þér, hverjir mér hafið eftir fylgt í endurfæðingunni, þá er mannsins son situr á stóli sinnar tignar, munu þér og sitja á tólf stólum, dæmandi tólf kynkvíslir Íraels. Og hver hann forlætur hús eður bræður, systur, föður eða móður eður eiginkonu eða börn eða akra fyrir míns nafns sakir, sá mun hundraðfalt í staðinn taka og erfa eilíft líf. En margir þeir sem eru fyrstir, verða síðastir og þeir sem síðastir eru, verða hinir fyrstu.* xx. kapítuli [ breyta] Himnaríki er líkt þeim húsföður sem út gekk snemma morguns verkmenn að leiga í víngarð sinn. En að gjörðum samningi við verkmennina af daglegu peningsgjaldi sendi hann þá í sinn víngarð.
Og nær þriðju stund gekk hann út og leit aðra iðjulausa standa á torginu og sagði til þeirra: Fari þér í minn víngarð, og hvað réttvíst er, mun eg gefa yður. Þeir gengu og þangað. Og enn gekk hann út aftur um séttu og níundu stund og gjörði svo líka. En um elliftu stund gekk hann út og fann enn aðra standa iðjulausa og sagði til þeirra: Hvar fyrir standi þér hér allan dag iðjulausir? Þeir sögðu til hans: Því að enginn hefir leigt oss. Hann sagði til þeirra: Fari þér og í minn víngarð, og hvað réttvíst er, skulu þér fá. En þá kveld var komið, sagði herrann víngarðsins til síns ráðamanns: Kallaðu verkmennina og gjalt þeim verðkaupið. Og hann tók til í frá enum seinasta og allt til hins fyrsta.
Þá komu þeir sem um elliftu stund leigðir voru, og hver þeirra meðtók sinn pening. En er hinir fyrstu komu, meintu þeir það þeir mundu fá meira, og hver þeirra meðtók sinn pening. Og þá er þeir höfðu hann meðtekið, mögluðu þeir í móti húsföðurnum og sögðu: Þessir seinustu hafa eina stund erfiðað, og þú gjörðir þá oss jafna, vér sem borið höfum þunga og hita dagsins. En hann svaraði og sagði til eins þeirra: Vinur, eigi gjöri eg þér órétt. Ertu ekki ásáttur vorðinn við mig um peninginn? Tak hvað þitt er og far burt. En þessum seinasta vil eg gefa svo sem þér. Eða lofast mér ekki að gjöra af mínu hvað eg vil? Eða ertu um það rangeygður þó að eg sé góðgjarn?
Svo verða nú síðastir hinir fyrstu og fyrstir hinir síðustu. Því að margir eru kallaðir, en fáir útvaldir. Og hann ferðaðist upp til Jerúsalem og tók þá tólf lærisveina heimuglega til sín á veginum og sagði til þeirra: Sjáið, vér reisum nú upp til Jerúsalem. Og mannsins son mun ofurseljast kennimannahöfðingjum og skriftlærðum. Og þeir munu hann fordæma til dauða og ofurselja hann heiðingjum til spottunar og húðstrokunar og til krossfestunar. Og á þriðja degi mun hann upp aftur rísa.* Þá gekk móðir sona Sebedei til hans meður syni sína, fallandi fyrir hann fram og bað nokkurs af honum. Og hann sagði til hennar: Hvað vilt þú?
Hún sagði til hans: Lát þessa mína tvo sonu sitja í ríki þínu, þann eina til þinnar hægri handar og annan til þinnar vinstri handar. En Jesús svaraði og sagði: Þér vitið eigi hvað þér biðjið. Geti þér þann kalek drukkið, hvern að eg mun drekka, og þeirri skírn skírast látið, hverri eg mun skírast? Þeir sögðu til hans: Það getu við. Og hann sagði til þeirra: Minn kalek munu þér að sönnu drekka og þeirri skírn, hverri eg skírunst, munu þér skírast. En það að sitja til minnar hægri og vinstri handar er eigi mín að gefa yður, heldur þeim, hverjum það er fyrir búið af mínum föður. Og er þeir tíu heyrðu það, þykktust þeir þeim tveimur bræðrum.
En Jesús kallaði þá til sín og sagði: Þér vitið að veraldarmanna höfðingjar drottna yfir þeim, og þeir eð voldugir eru, hafa yfirvöld. Svo skal eigi vera yðar á milli, heldur hver hann vill yðar á milli voldugur vera, sé sá yðar þénari. Og hver yðar sem fremstur vill vera, veri sá yðar þjón, svo sem mannsins son kom eigi að hann léti sér þjóna, heldur upp á það hann þjónaði og gæfi sitt líf út til endurlausnar fyrir marga. Og þá er þeir gengu út af Jeríkó, fylgdi honum margt fólk eftir. Og sjáið, að tveir blindir sátu við veginn. Og þá þeir heyrðu það að Jesús gekk þar fram hjá, kölluðu þeir og sögðu: Ó, herra, sonur Davíðs, miskunna þú oss.
En fólkið hastaði á þá að þeir þegði, en þeir kölluðu því meir og sögðu: Ó, herra, sonur Davíðs, miskunna þú oss. Og Jesús staðnæmdist, kallaði á þá og sagði: Hvað vilji þið að eg skuli gjöra yður? Þeir sögðu til hans: Herra, það að okkar augu upplúkist. En Jesús sá aumur á þeim, snart augu þeirra, og þeir sáu jafnskjótt og fylgdu honum eftir. xxi. kapítuli [ breyta] Og er þeir tóku að nálgast Jerúsalem og komu til Betfage við fjallið Oliveti, sendi Jesús út tvo sína lærisveina og sagði til þeirra: Fari þér í það kauptún sem fyrir yður er, og strax þá munu þér finna ösnu bundna og fola hjá henni. Leysið hana og leiðið til mín.
Og ef einnhver segir nokkuð til yðar, þá segið það herrann hafi þeirra þörf, og jafnsnart mun hann láta þau laus. En það skeði svo að uppfylltist hvað sagt er fyrir spámanninn er segir: Segið dótturinni Síon: Sjá, þinn konungur kemur til þín hógvær, sitjandi á ösnu og á fola klyfbærilegrar ösnu. En lærisveinarnir gengu burt og gjörðu svo sem Jesús hafði boðið þeim og leiddu með sér ösnuna og folann og lögðu yfir þau sín klæði og settu hann þar upp á. En margt fólk breiddu sín klæði á veginn og aðrir hjuggu kvistu af trjánum og dreifðu þeim á veginn. En það fólkið, sem fyrir gekk og eftir fylgdi, kallaði og sagði: Hósíanna syni Davíðs.
Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins. %Hósíanna í hæstum hæðum. Og er hann fór inn í Jerúsalem, var öll borgin á riðuskjálfi og sagði: Hver er þessi? En fólkið sagði: Þetta er Jesús, spámaðurinn af Nasaret úr Galílea. Og Jesús gekk inn í Guðs mustéri og rak út alla seljendur og kaupendur í mustérinu, og borðum verslunarmanna og stólum þeirra, er dúfur seldu, hratt hann um og sagði til þeirra: Skrifað er: Mitt hús skal bænahús kallast, en þér hafið gjört það að spillvirkjainni. Og til hans gengu blindir og haltir í musterið, og hann læknaði þá.
En er kennimannahöfðingjar og skriftlærðir sáu þær undranir sem hann gjörði og það börnin kölluðu í mustérinu og sögðu: Hósíanna þeim syni Davíðs, reiddust þeir og sögðu til hans: Heyrir þú hvað þessir segja? Jesús sagði til þeirra: Já, viti menn, hafi þér aldri lesið það, af munni ungbarna og brjóstmylkinga hafðir þú lofið tilreitt? Og hann forlét þá og gekk út af borginni til Betania og bleif þar.* En að morgni er hann gekk aftur til borgarinnar, hungraði hann. Og sem hann sá eitt fíkjutré við veginn, gekk hann þangað að og fann ekkert á því nema einasta blöðin og sagði til þess: Héðan í frá vaxi aldregi ávöxtur af þér að eilífu. Og það fíkjutré visnaði upp jafnsnart.
Og er lærisveinarnir sáu það, undruðust þeir og sögðu: Hverninn er fíkjutréið svo snart upp þornað? En Jesús svaraði og sagði til þeirra: Sannlega segi eg yður: Ef þér hafið trúna og efið eigi, munu þér eigi einasta gjöra þetta við fíkjutréið, heldur og ef þér segðuð þessu fjalli: Tak þig upp og fleyg þér í sjóinn, þá mundi það ske. Og allt hvað þér biðjið í bæninni, ef þér trúið því, þá munu þér það öðlast. Og sem hann kom í musterið, gengu til hans (sem hann var að kenna) prestahöfðingjar og öldungar lýðsins og sögðu: Út af hvaða makt gjörir þú þetta? Og hver gaf þér þessa makt? En Jesús svaraði og sagði til þeirra: Eg man spyrja yður og að einu orði.
Ef þér segið mér það, mun eg og segja yður út af hvað makt eg gjöri þetta. Skírn Jóhannis, hvaðan var hún? Hvort af himni eður af mönnum? En þeir hugsuðu með sér: Ef vér segjum af himni, segir hann til vor: Fyrir því trúðu þér honum eigi? En ef vér segjum af mönnum, þá megu vær óttast fólkið því að allir héldu Jóhannem fyrir spámann. Og þeir svöruðu Jesú og sögðu: Vér vitum eigi. Hann sagði þá til þeirra: Svo segi eg yður eigi heldur út af hvað makt eg gjöri þetta. En hvað líst yður? Maður nokkur hafði tvo sonu og gekk til ens fyrsta og sagði: Sonur, far þú í dag að verka í víngarði mínum. En hann svaraði og sagði: Eigi vil eg. Eftir á iðraði hann þessa og gekk burt.
En hann gekk og til hins annars og sagði slíkt hið sama. En hann svaraði og sagði: Fara skal eg, - og fór ekki. Hvor af þeim tveimur gjörði föðursins vilja? Þeir sögðu til hans: Hinn fyrsti. Jesús sagði til þeirra: Sannlega segi eg yður að tollheimtarar og pútur munu fyrri komast í Guðs ríki en þér. Því að Jóhannes kom til yðar og lærði yður réttlætisgötu, og eigi trúðu þér honum, en tollheimtumenn og pútur trúðu honum. En þó að þér lituð þetta, gjörðu þér öngva yfirbót svo að eftir á hefði þér honum trúað.
Heyrið enn aðra eftirlíking: Húsfaðir nokkur var þar, sá er plantaði víngarð og girti í kringum hann og gróf í honum vínþrúgu og upp byggði turn og leigði hann víngarðsmönnum og ferðaðist síðan langt burt. En þá er frjóvgunartími tók að nálgast, sendi hann sína þjóna til víngarðsmannanna að þeir meðtækju hans ávöxtu. Þá tóku víngarðsmennirnir hans þjóna, þann eina strýktu þeir, annan aflífuðu þeir, hinn þriðja grýttu þeir. Og í annað sinn sendi hann aðra þjóna út sem meiri voru hinum fyrstum, og þeim gjörðu þeir slíkt hið sama. En síðast sendi hann son sinn til þeirra og sagði: Má vera að þeir feili sér fyrir syni mínum.
En er víngarðsmennirnir sáu soninn, sögðu þeir með sér: Þessi er erfinginn. Komi þér og aflífu vær hann og leggjum svo undir oss hans arfleifð. Og þeir gripu hann og ráku hann út af víngarðinum og aflífuðu hann. En nær herrann víngarðsins kemur, hvað man hann gjöra við þessa víngarðsmenn? Þeir sögðu til hans: Þeim vondum mun hann vondslega fyrirfara og sinn víngarð byggja öðrum víngarðsmönnum, þeir eð honum ávöxt gjalda í réttan tíma. Jesús sagði til þeirra: Hafi þér aldri lesið í ritningunum, að þann stein sem byggjendur höfðu út kastað, hann er nú vorðinn að höfði hyrningar? Af Drottni er það gjört og er undarlegt fyrir vorum augum.
Fyrir því segi eg yður að Guðs ríki mun frá yður takast og heiðnum gefið verða, þeim sem þess ávöxt færa. En hver yfir þennan stein fellur, hann mun sundur myljast, en yfir hvern hann fellur, þann man hann sundur merja. Og þá er kennimannahöfðingjar og farísei heyrðu hans eftirlíkingar, formerktu þeir það hann sagði af þeim og sóktu að grípa hann, en óttuðust þó fólkið því að það hélt hann fyrir spámann.* xxii. kapítuli [ breyta] Og Jesús svaraði og talaði í annað sinn í eftirlíkingum til þeirra og sagði: Himnaríki er líkt þeim konungi sem brúðkaup gjörði syni sínum og sendi út sína þjóna að kalla boðsmennina til brúðkaupsins, og þeir vildu eigi koma.
Í annað sinn sendi hann aðra þjóna út og sagði: Segið boðsmönnunum: Sjáið, mína máltíð hefi eg til búið, mínir uxar og alið fé eru slátraðir og allt er reiðubúið, komið til brúðkaupsins. En þeir forsmáðu það og gengu í burt, einn á sinn bústað, en annar til sinnar sýslunar, en sumir gripu hans þjóna, dáruðu þá og drápu. En þá konungurinn heyrði það, varð hann reiður og sendi út sinn her og fyrirfór þessum morðingjum og brenndi upp borg þeirra. Þá sagði hann til sinna þjóna: Brullaupið er að sönnu reiðubúið, en þeim sem boðið var, voru þess eigi verðugir. Fyrir því farið út á strætin og bjóðið til brúðkaupsins hverjum sem þér finnið.
Og hans þjónar gengu út á strætin og saman söfnuðu öllum þeim þeir fundu, vondum og góðum, og brúðlaupið varð alskipað af mönnum. Þá gekk konungurinn inn að sjá gestina. Og hann sá þar mann, eigi klæddan með brullaupsklæðum, og sagði til hans: Vinur, hverninn gekktu inn hingað, hafandi eigi brúðlaupsklæði? En hann þagði. Konungurinn sagði þá til sinna þénara: Bindið hans hendur og fætur og varpið honum í yðstu myrkur. Þar man vera óp og tannagnístran.
Því að margir eru kallaðir, fáir útvaldir.* Þá gengu farísei burt og settu ráð saman að þeir gætu veitt hann í orðum og sendu til hans sína lærisveina með Heródis þénurum og sögðu: Meistari, vær vitum að þú ert sannsögull og kennir Guðs götu í sannleika, skeytir eigi nokkrum því að þú fer eigi að yfirlitum manna. Fyrir því seg oss hvað þér líst. Hvort leyfist að gefa keisaranum skatt eður eigi? En Jesús formerkti þeirra fláttskap, sagði hann: Hvað freisti þér mín hræsnarar? Sýnið mér myntina peningsins. Og þeir fengu honum peninginn. Jesús sagði til þeirra: Hvers er þessi mynt og yfirskrift? Þeir sögðu honum: Keisarans.
Þá sagði hann til þeirra: Gefið keisaranum hvað keisarans er og það Guði hvað Guðs er. Og er þeir heyrðu það, undruðust þeir, forlétu hann og gengu í burt.* Á þeim sama degi gengu saddúkei til hans, hverjir eð segja upprisuna eigi vera, spurðu hann að og sögðu: Meistari Moyses hefir sagt að ef nokkur andaðist og hefði eigi barn eftir, þá skyldi bróðir hans eiga hans eiginkonu og uppvekja sínum bróður sæði. En hjá oss voru (vii) bræður. Hinn fyrsti fastnaði sér konu, og hann andaðist. Og af því hann hafði ekkert sáð, lét hann bróður sínum eftir eiginkonu sína, líka sá annar og hinn þriðji, allt til hins sjöunda. En síðast allra andaðist og konan.
Hvers þeirra sjö verður hún nú eignarkona í upprisunni? Því að allir þeir hafa hana haft. En Jesús svaraði og sagði til þeirra: Þér villist og vitið eigi ritningarnar né heldur Guðs kraft. Því að í upprisunni munu þeir hvorki kvænast né sig kvænast láta, heldur eru þeir sem englar Guðs á himni. En hafi þér eigi lesið hvað af Guði er sagt af upprisu framliðinna er hann segir: Eg em Guð Abrahams og Guð Ísaks og Guð Jakobs. Því Guð er eigi Guð dauðra, heldur lifandra manna. Og er fólkið heyrði þetta, undraðist það hans kenning. En er farísei heyrðu það hann hefði þaggað saddúkeis, söfnuðust þeir saman í eitt.
Og einn lögvitringur af þeim spurði hann að, freistandi hans: Meistari, hvert er hið mesta boðorð í lögmálinu? En Jesús sagði til hans: Elska skalt þú Drottin Guð þinn af öllu þínu hjarta og af allri önd þinni og af öllu þínu hugskoti. Þetta er hið fyrsta og mesta boðorð. En annað er þessu líkt: Elska skalt þú náunga þinn svo sem sjálfan þig. Í þessum tveimur boðorðum hengur allt lögmál og spámenn. En þá farísei voru til samans komnir, spurði Jesús þá að og sagði: Hvað virðist yður af Kristi, hvers son eð hann sé? Þeir sögðu honum: Davíðs.
Hann sagði til þeirra: Hverninn kallar Davíð hann þá í andanum herra er hann segir: Drottinn sagði mínum drottni: Sit þú til minnar hægri handar þar til eg set óvini þína til skarar þinna fóta. Nú ef Davíð kallar hann herra, hverninn er hann hans sonur? Og enginn gat honum orði svarað, og eigi dirfðist nokkur upp frá þeim degi hann framar að spyrja.* xxiii. kapítuli [ breyta] Þá talaði Jesús til fólksins og til sinna lærisveina og sagði: Á Moyses stóli sitja skriftlærðir og farísei. Allt hvað þeir segja yður þér skulið halda, það haldið og gjörið, en eftir þeirra verkum skulu þér eigi gjöra því að þeir segja það og gjöra eigi.
Því þeir samanbinda þungar byrðir og óbærilegar, og leggja þær mönnum á herðar, en sjálfir þeir vilja eigi áhræra þær fingri sínum. Því öll sín verk gjöra þeir að þeir sjáist af mönnum. Sín minningarblöð útþenja þeir, og fald sinna klæða mikla þeir. Kær hafa þeir hin fremstu sæti að kveldverðum, æðstu sessa í samkunduhúsum og kveðjur á torgum og af mönnum rabbí kallaðir verða. En þér skuluð eigi rabbí kallast því að einn er yðar meistari, Kristur, en þér allir eruð bræður, og öngvan skulu þér yðar föður kalla á jörðu því einn er yðar faðir, sá sem á himnum er. Og þér skuluð eigi meistarar kallast því einn er yðar meistari, Kristur. Sá sem að mestur er yðar, sé hann yðar þénari.
Því að hver sig upphefur, sá man niðurlægjast, og hver sjálfan sig niðurlægir, hann man upphafinn verða.* Vei yður skriftlærðum og faríseis, þér hræsnarar, hverjir himnaríkið aftur lokið fyrir mönnum. Því að eigi gangi þér þar inn, og þeim er inn vilja ganga í það, þá lofi þér eigi. Vei yður skriftlærðum og faríseis, þér hræsnarar, hverjir ekknahúsin upp etið með yfirhylmingu langra bæna. Fyrir það munu þér þess meiri fordæming öðlast. Vei yður skriftlærðum og faríseis, þér hræsnarar, hverjir um kring farið sjó og lönd svo að þér gjörið einn að samlendingsgyðingi, og nær hann er það vorðinn, gjöri þér hann að helvískum syni, tvefalt meir en þér eruð.
Vei yður blindum leiðtogurum, þér sem segið: Hver hann sver við musterið, það sé ekkert, en hver sver við gullið musterisins, sá er sekur. Þér fífl og forblindaðir, hvort er meira gullið eða musterið, það er gullið helgar? Og hver eð sver við altarið, sé ekkert, en hver hann sver við það offur sem á því er, sá sé sekur. Þér heimskir og blindir, hvort er meira offrið eða altarið það sem offrið helgar? Fyrir því hver hann sver við altarið, sá sver við það og við allt hvað þar er upp á. Og hver hann sver við musterið, sá sver við það og við þann sem þar byggir inni. Og hver sver við himininn, sá sver við Guðs sæti og við þann sem þar upp á situr.
Vei yður skriftlærðum og faríseis, þér hræsnarar, hverjir tíundið myntu, aneth, ciminum og yfirgefið það hvað þyngst er í lögmálinu, einkum dóminn, miskunnsemd og trúna. Þetta byrjaði að gjöra og hitt eigi eftir að skilja. Þér blindir leiðtogarar sem síið mýfluguna, en gleypið úlfbaldann. Vei yður skriftlærðum og faríseis, þér hræsnarar, sem hreinsið hið ytra bikara og diska, en innan eru þér fullir ráns og óhreininda. Þú blindur faríseari, hreinsa fyrst ið innra á bikurum og diskum svo að ið ytra verði og hreint.
Vei yður skriftlærðum og faríseis, þér hræsnarar, hverjir líkir eruð forfáguðum leiðum framliðinna, hver eð utan sýnast mönnum fögur, en innan eru þau full af dauðra manna beinum og allri óþekkt. Svo og þér skínið að sönnu utan fyrir mönnum réttlátir, en fyrir innan eru þér fullir hræsni og ranginda. Vei yður skriftlærðum og faríseis, þér hræsnarar, hverjir uppbyggið spámannaleiðin og prýðið grafir réttlátra manna og segið: Ef vér hefðum verið á dögum feðra vorra, skyldu vær eigi verið hafa samlagsmenn þeirra í blóði spámannanna? Því svo beri þér yður sjálfum vitni að þér eruð synir þeirra sem spámennina aflífuðu, og svo uppfylli þér mæling feðra yðvarra.
Þér eiturormar og nöðru kyn, hverninn umflýi þér helvíska fyrirdæming? Fyrir því sjáið: Eg sendi til yðar spámenn, spekinga og skriftlærða menn. Og nokkra af þeim munu þér aflífa og krossfesta, og suma munu þér húðstrýkja í samkunduhúsum yðar. Og af annarri borg í aðra munu þér þá ofsækja svo að yfir yður komi allt réttlátt blóð sem á jörðina út er hellt í frá blóði Abels réttláta allt til blóðs Sakaríe, sonar Barakía, hvern þér drápuð á millum musteris og altarisins. Sannlega segi eg yður að allt þetta man koma yfir þessa kynslóð. Jerúsalem, Jerúsalem, þú sem aflífar spámennina og grýtir þá er til þín eru sendir.
Hversu oft hefi eg viljað saman safna sonum þínum líka eð hæna safnar ungum sínum undir vængi sér, og þér hafið eigi viljað. Sjáið, yðvart hús skal yður í eyði látið verða. Því að eg segi yður að þér munuð eigi sjá mig upp frá þessu þar til þér segið: Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins.* xxiv. kapítuli [ breyta] Og sem Jesús gekk út af musterinu, þá gengu hans lærisveinar til hans að þeir sýndu honum bygging musterisins. En Jesús sagði til þeirra: Sjái þér ekki allt þetta? Sannlega segi eg yður að hér mun eigi eftir látast steinn yfir steini, sá er eigi man niðurbrotinn verða.
En sem hann sat í fjallinu Oliveti, gengu hans lærisveinar að honum heimuglega og sögðu: Seg þú oss hvenar þetta mun ske og hvert teikn er þinnar tilkomu og veraldarinnar enda. En Jesús svaraði og sagði til þeirra: Sjáið til að enginn villi yður. Því að margir munu koma undir mínu nafni og segja: Eg em Kristur, -og þeir munu marga villa. Því þér munuð heyra bardaga og hernaðartíðindi. Sjáið til að þér skelfist ekki. Því að allt þetta hlýtur að ske. Þó er þá enn eigi endirinn kominn. Þar man og ein þjóð hefja sig upp í mót annarri og ríki í mót ríki, drepsóttir og hungur og jarðskjálftar munu þar verða í sumum hverjum stöðum. En allt þetta eru upphöf harmkvælanna.
Þá munu þeir ofurselja yður í harðkvæli, og yður munu þeir lífi firra, og þér verðið hataðir af öllum þjóðum fyrir míns nafns sakir. Og þá munu margir hneykslum fyllast og innbyrðis hver annan tæla og hver annan að hatri hafa. Og margir falsspámenn munu sig upphefja og margan afvegaleiða. Og af því að ranglætið man yfirgnæfa, mun kærleikurinn margra útkólna. En hver eð staðfastur blífur allt til enda, sá mun hólpinn verða. Og þetta evangelium ríkisins mun predikað verða um allan heim til vitnisburðar yfir allar þjóðir. Og þá mun endirinn koma.
Því nær þér sjáið svívirðing eyðslunnar, af hverri eð sagt er fyrir spámanninn Daníel þá er hann stóð í helgum stað - hver það les, hann hyggi þar að - hverjir þá eru á Gyðingalandi, flýi þeir á fjöll. Og hver hann er á ræfri, fari sá eigi ofan nokkuð að taka úr sínu húsi. Og sá sem á akri er, snúi hann eigi aftur að taka upp kyrtil sinn. En vei þunguðum og brjóstmylkingum á þeim dögum. Af því biðjið að yðar flótti ske eigi %um vetur eður á þvottdegi. Því að þá man verða svo stór hörmung, hvílík að eigi var í frá upphafi veraldar allt til þessarar stundar og eigi heldur verða mun. Og nema það að þessir dagar sé styttir, verður ekkert hold hólpið.
En fyrir útvaldra sakir þá eru þessir dagar forstyttir. En ef nokkur segir þá til yðar: Sjáið, hér er Kristur, eður þar, - skulu þér eigi því trúa. Því að upp munu rísa falskristar og falsspámenn, og þeir munu gjöra stór tákn og undur svo að í villu munu leiðast (ef ske mætti) einninn útvaldir. Sjáið, eg sagði yður það fyrir. Nú ef þeir segja til yðar: Sjáið, hann er á eyðimörk, - þá gangið eigi út. Sjáið, hann er í launkofum, - þá trúið eigi. Því að svo sem elding út gengur af uppgöngu og skín allt til niðurgöngu, líka svo man vera tilkoma mannsins sonar. Því hvar helst að hræið er, þangað munu ernir og safnast.
En strax eftir hörmung þessara daga man sólin sortna og tunglið eigi sitt ljós gefa og stjörnur af himni hrapa, og kraftar himnanna munu hrærast. Og þá mun skína teikn mannsins sonar á himni, og munu sér þá kveina allar kynkvíslir jarðar. Og þeir munu sjá mannsins son komanda í skýjum himins með krafti miklum og tignarveldi. Og sína engla man hann útsenda með lúðraþeytingu mikilli. Og hans útvöldum munu þeir saman safna af fjórum vindum frá yðstu álfum himnanna og allt til þeirra endimarka. Af fíkjutrénu lærið eftirlíking. Nær eð þess kvistur gjörist frjór og laufin út spretta, þá viti þér það sumarið er í nánd. Líka svo nær þér sjáið allt þetta, þá vitið að það er nærri fyrir dyrum.
Sannlega segi eg yður að þessi kynslóð mun eigi forganga þar til að allt þetta sker. Him[i]ninn og jörð munu forganga, en mín orð munu eigi forganga. En af þeim degi eður stundu veit enginn og ekki englar af himnum nema minn faðir einnsaman. En líka sem var um daga Nohe, svo mun og verða í tilkomu mannsins sonar. Því svo sem þeir voru á þeim dögum fyrir flóðið að þeir átu, þeir drukku, þeir giftust og létu sig giftast allt til þess dags, á hverjum Nohe gekk í örkina. Og þeir sættu því ekki þar til að flóðið kom og tók þá alla í burt. Svo man og vera í tilkomu mannsins sonar. Munu þá tveir á akri vera og man einn meðtekinn, en annar forlátinn verða.
Og tvær munu í kvernhúsi malandi vera, og mun ein meðtekin og önnur forlátin verða. Fyrir því vakið því að þér vitið eigi á hverri stundu yðar herra muni koma. En það skulu þér vita að ef húsfaðirinn vissi á hverri stundu eð þjófurinn kæmi, mundi hann vaka og láta eigi sitt hús í sundur grafa. Fyrir því verið þér og reiðubúnir, því að mannsins son mun koma á þeirri stundu þér meinið ekki. En hver hann er trúr þjón og forsjáll sem herrann hefir sett yfir sín heimahjú að hann gæfi þeim fæði í réttan tíma, sæll er sá þjón nær hans herra kemur og finnur hann svo gjöranda. Sannlega segi eg yður að hann mun þann setja yfir öll sín auðæfi.
En ef sá vondi þjón segir í sínu hjarta: Minn herra gjörir dvöl á að koma, - og tekur að slá sína samlagsþjóna, etur og drekkur með drykkjurúturum, en herra þess þjóns mun koma á þeim degi sem hann vonar eigi og á þeirri stundu er hann grunar eigi og í sundur partar hann og setur hans hlutskipti með hræsnurum. Þar man vera óp og tannagnístran. xxv. kapítuli [ breyta] Þá man himnaríki líkt vera tíu meyjum, hverjar eð tóku sína lampa og gengu út í móti brúðgumanum. En fimm af þeim voru fávísar og fimm forsjálar. Þær sem fávísar voru, tóku sína lampa, en tóku þó ekkert viðsmjör með sér, en hinar forsjálu tóku í sínum kerum viðsmjör með lömpunum.
Og er brúðguminn gjörði dvöl á að koma, syfjaði þær allar og sofnuðu. En um miðnætti kom kall: Sjáið, brúðguminn kemur, gangi þér út í móti honum. Þá stóðu upp allar þessar meyjar og prýddu sína lampa. En þær fávísu sögðu til hinna forsjálu: Gefið oss af viðsmjöri yðru því að vorir lampar slokkna út. Hinar forsjálu svöruðu og sögðu: Má vera að eigi sé nóg fyrir oss og svo yður. Fari þér heldur til sölumanna og kaupið yður. En er þær gengu að kaupa, kom brúðguminn, og þær sem reiðubúnar voru, gengu með honum inn til brullaupsins, og hurðinni var aftur lokað. En að síðustu komu og hinar aðrar meyjar og sögðu: Herra, herra, lúk þú upp fyrir oss.
En hann svaraði og sagði til þeirra: Sannlega segi eg yður að eg þekki yður eigi. Fyrir því vakið að þér vitið eigi þann dag né stund, á hverri mannsins son mun koma.* Líka sem sá maður er ferðaðist langt burt, kallaði sína þjóna og fékk þeim sitt góss. Og einum fékk hann fimm pund, en öðrum tvö, hinum þriðja eitt, hverjum einum eftir sínum formætti, og ferðaðist strax af stað. Þá gekk sá til sem fimm pund hafði meðtekið og verkaði með þeim sömum og vann þar á önnur fimm pund. Líka einninn sá sem tvö pund hafði meðtekið, vann og á tvö önnur. En sá er eitt hafði meðtekið, fór burt, gróf í jörð og faldi þar síns herra fé.
En eftir langan tíma liðinn kom herrann þessara þjóna og hélt reikningsskap við þá. Og sá gekk til sem fimm pund hafði meðtekið og færði honum önnur fimm pund og sagði: Herra, fimm pund fékkstu mér, sjá, önnur fimm hefi eg áunnið. Hans herra sagði honum: Ey, þú hinn góði og trúlyndi þjón. Af því þú vart trúr yfir litlu, þá man eg setja þig yfir mikið. Gakk inn í þíns herra fögnuð. Þá gekk og sá að sem tvö pund hafði meðtekið og sagði: Herra, tvö pund fékkstu mér, sjá, önnur tvö pund hefi eg áunnið. Hans herra sagði til hans: Ey, þú hinn góði þjón og trúlyndi. Því að þú vart trúr yfir fáu, mun eg setja þig yfir mikið. Gakk inn í þíns herra fögnuð.
Þá gekk sá að sem eitt pund hafði meðtekið og sagði: Herra, eg veit að þú ert harður mann, uppsker hvar þú sáðir eigi og saman safnar hvar þú dreifðir eigi. Og óttasleginn fór eg burt og faldi pund þitt í jörðu. Sjá, þar hefir þú það hvað þitt er. En hans herra svaraði og sagði til hans: Þú vondur þjón og latur, vissir þú að eg sker upp hvar eg sáði eigi og saman safna hvar eg dreifða eigi. Því byrjaði þér að fá minn pening verslunarmönnum, og nær eg kæma, hefða eg hvað mitt er til mín tekið með ábata. Fyrir því takið af honum það pund og gefið honum sem tíu pund hefur.
Því að hverjum sem hefur, honum mun gefið verða, og mun hann nægð hafa, en hver eð eigi hefur, frá þeim mun tekið verða og það hann sýnist hafa. Og þeim ónýta þjón kasti þér í hin yðstu myrkur. Þar mun vera óp og tannagnístran. En þá mannsins son mun koma í sínu tignarveldi og allir helgir englar með honum, hann mun þá sitja í sæti síns veldis. Og allar þjóðir munu saman safnast fyrir honum, og hann mun þá sundur skilja hvora frá öðrum svo sem hirðir sundur greinir sauði frá kiðum. Og sauðina mun hann skipa til sinnar hægri handar, en kiðin til vinstri.
Þá mun konungurinn segja til þeirra sem á hans hægri hönd eru: Komi þér, blessaðir föður míns, og eignist það ríki sem yður var til búið frá upphafi veraldar. Því að hungraður var eg, og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var eg, og þér gáfuð mér að drekka, gestur var eg, og þér hýstuð mig, nakinn var eg, og þér klædduð mig, sjúkur var eg, og þér vitjuðuð mín, í myrkvastofu var eg, og þér komuð til mín. Þá munu hinir réttlátu svara honum og segja: Herra, hvenar sáu vær þig hungraðan og söddum þig eða þyrstan svo vér gáfum þér [að] drekka? Eða hvenar sáu vær þig gest kominn og hýstum þig eða nakinn og klæddum þig? Eða hvenar sáu vær þig sjúkan eða í myrkvastofu og komum til þín?
Og konungurinn mun svara og segja til þeirra: Sannlega segi eg yður: Hvað þér gjörðuð einum af þessum mínum minnstum bræðrum, það gjörðu þér mér. Þá mun hann og segja til þeirra sem til vinstri handar eru: Farið burt frá mér, þér bölvaðir, í eilífan eld, þann sem fyrirbúinn er fjandanum og hans árum. Því að hungraður var eg, og þér gáfuð mér eigi að eta, þyrstur var eg, og þér gáfuð mér eigi að drekka, gestur var eg, og þér hýstuð mig eigi, nakinn var eg, og þér klædduð mig eigi, sjúkur og í myrkvastofu var eg, og þér vitjuðuð mín eigi. Þá munu þeir svara og segja: Herra, hvenar sáu vær þig hungraðan eður þyrstan, gest eða nakinn, sjúkan eða í myrkvastofu og höfum þér eigi þjónað?
Þá mun hann svara þeim og segja: Sannlega segi eg yður: Hvað þér gjörðuð eigi einum af þessum inum minnstum, það gjörðuð þér mér eigi. Og munu þeir þá ganga í eilífar píslir, en réttlátir í eilíft líf.* xxvi. kapítuli [ breyta] Og það gjörðist þá Jesús hafði lyktað öll þessi orð, sagði hann til sinna lærisveina: Þér vitið að eftir tvo daga verða páskar og mannsins son mun ofurseljast að hann krossfestur verði. Þá saman söfnuðust kennimannahöfðingjar, skriftlærðir og öldungar lýðsins í forbyrgi kennimannahöfðingjans, þess er Kaífas hét, og samsettu ráð hverninn þeir gæti með slægð gripið Jesúm og líflátið. En þeir sögðu: Eigi á hátíðardeginum svo að eigi verði upphlaup með fólkinu.
En þá Jesús var nú í Betanía í húsi Símonar vanheila, gekk kona að honum hafandi buðk dýrlegs smyrslavats, og hún hellti því yfir höfuð honum er hann sat við borðið. En er það sáu hans lærisveinar, þykktust þeir og sögðu: Til hvers er þessi spilling? Því það hefði mátt seljast fyrir mikið og gefist fátækum. En er Jesús fornam það, sagði hann til þeirra: Hvað eruð þér ýfnir við þessa konu? Því gott verk gjörði hún á mér. Fátæka hafi þér jafnan hjá yður, en mig hafi þér eigi alla tíma. Það hún hellti þessu smyrslavatni yfir minn líkama, það gjörði hún mér til greftrunar.
Sannlega segi eg yður: Hvar helst þetta evangelium predikað verður í öllum heimi, mun sagt verða: Í hennar minning, hvað hún hefir gjört. Þá gekk burt einn af tólf, sá er Júdas Skariot hét, til kennimannahöfðingja og sagði til þeirra: Hvað vilji þér gefa mér, og mun eg selja yður hann? En þeir buðu honum þrjátigi silfurpeninga, og þaðan í frá leitaði hann lægis það hann sviki hann. En á fyrsta sætubrauðsdegi gengu lærisveinarnir til Jesú og sögðu til hans: Hvar viltu að vér tilreiðum þér páskalambið að eta? En Jesús sagði: Farið þér í borgina til nokkurs og segið honum: Meistarinn lét segja þér: Minn tími er í nánd, hjá þér vil eg páska halda með lærisveinum mínum.
Og lærisveinarnir gjörðu svo sem Jesús hafði þeim boðið og reiddu til páskalambið. En að kveldi komnu setti hann sig til borðs með sínum tólf lærisveinum. Og er þeir átu, sagði hann: Sannlega segi eg yður að einn yðar mun svíkja mig. Þeir hryggðust mjög við það og tóku allir til að segja: Er eg það nokkuð, herra? En hann svaraði og sagði: Sá er hendinni drepur í fatið með mér, hann mun mig forráða. Mannsins son mun að sönnu fara svo sem skrifað er af honum, en vei þeim manni, fyrir hvern mannsins son mun forráðinn verða. Betra væri honum að sá sami maður hefði aldri fæddur verið. En Júdas svaraði, sá er forréð hann, og sagði: Er eg það nokkuð, rabbí? Hann sagði til hans: Þú sagðir það.
En þá þeir neyttu, tók Jesús brauðið, blessaði og braut það, gaf sínum lærisveinum og sagði: Takið og etið, þetta er mitt hold. Hann tók og kalekinn, gjörði þakkir, gaf hann þeim og sagði: Drekkið allir hér út af. Því að það er mitt blóð, ens nýja testaments, hvert eð úthellist fyrir marga til syndanna fyrirgefningar. En eg segi yður að eg mun eigi héðan í frá drekka af þessum vínviðarins ávexti allt til þess dags er eg mun drekka það nýtt með yður í míns föðurs ríki. Og að lofsöngnum sögðum gengu þeir út í fjallið Oliveti. Þá sagði Jesús til þeirra: Á þessari nótt munu þér allir hneykslan líða á mér, því að skrifað er: Hirðirinn mun eg slá, og sauðir hjarðarinnar munu í sundur tvístrast.
En eftir það eð eg er upprisinn, mun eg ganga fyrir yður í Galíleam. Pétur svaraði og sagði til hans: Og þó allir skammfyllist við þig, þá skal eg þó aldri skammfyllast þér. Jesús sagði til hans: Sannlega segi eg þér að á þessari nótt, áður en haninn gelur, muntu afneita mig þrysvar. Pétur sagði til hans: Einninn þó mér byrjaði með þér að deyja, skylda eg eigi neita þér. Slíkt hið sama sögðu og allir lærisveinarnir. Jesús kom þá með þeim í það gerðistún sem kallaðist Getsemani og sagði til sinna lærisveina: Sitjið hér á meðan eg fer þangað og bið, - og tók með sér Petrum og tvo sonu Sebedei, tók síðan til að hryggvast og harmþrunginn að verða.
Hann sagði þá til þeirra: Hrygg er sála mín allt til dauða. Blífið hér og vakið með mér. Hann gekk litlu eina fram lengra, féll fram á sína ásjónu, biðjandi og sagði: Faðir minn, ef mögulegt er, þá líði af mér kalekur þessi, en eigi þó sem eg vil, heldur svo sem þú vilt. Og hann kom til sinna lærisveina og fann þá sofandi og sagði til Péturs: Máttir þú ekki eina stund vaka með mér? Vakið þér og biðjið svo að þér fallið eigi í freistni. Andinn er að sönnu reiðubúinn, en holdið er breyskt. Í annað sinn gekk hann enn burt og bað, segjandi: Faðir minn, ef þessi kalekur má eigi af mér líða utan eg drekki hann, þá verði þinn vilji. Og hann kom aftur og fann þá sofandi, og þeirra augu voru þrungin.
Og hann lét þá kyrra og gekk í burt aftur og bað í þriðja sinn, segjandi in sömu orð. Þá kom hann til sinna lærisveina og sagði til þeirra: Ó, já, vilji þér nú sofa og hvílast? Sjáið, sú stund tekur að nálgast eð mannsins son mun ofurseljast í syndugra hendur. Standið upp, föru vær. Sjáið, hann tekur að nálgast, sá er mig forræður. Og sem hann var þetta að tala, sjá, að Júdas, einn af tólf, kom og með honum flokkur mikill með sverðum og stöngum, út sendir af kennimannahöfðingjum og öldungum lýðsins. En sá er hann forréð, gaf þeim teikn til og sagði: Hvern helst eð eg kyssi, sá er það. Haldið honum. Og jafnsnart gekk hann að Jesú og sagði: Heill sért þú, rabbí. Og hann kyssti hann.
En Jesús sagði til hans: Minn vin, hvar til komt þú hingað? Þá gengu þeir þangað að og lögðu hendur á Jesúm og gripu hann. Og sjá, að einn út af þeim sem með Jesú voru, rétti höndina, rykkti sínu sverði og sló þjón kennimannahöfðingjans og hjó af hans eyra. Þá sagði Jesús til hans: Snú þú sverði þínu aftur í sína slíður. Því að hverjir sem sverðið taka, þeir munu fyrir sverði farast. Eður meinar þú að eg kunni eigi að biðja föður minn að hann skikkaði mér meir en tólf %legion engla? Eða hverninn uppfyllast þá ritningarnar svo byrjar að ske skuli? Á þeim tíma sagði Jesús til flokksins: Þér eruð út gengnir líka sem til annars spillvirkja með sverðum og stöngum að höndla mig.
Daglega hefi eg þó hjá yður setið og kennt í musterinu, og þér hafið mig eigi gripið. En allt þetta er skeð svo að uppfylltust ritningar spámannanna. Þá forlétu hann allir lærisveinarnir og flýðu. En þeir sem Jesúm höfðu gripið, leiddu hann til Kaífas kennimannahöfðingja, hvar eð skriftlærðir og öldungar voru saman komnir. En Pétur fylgdi honum eftir langt í burt frá allt í forbyrgi kennimannahöfðingjans og gekk inn, setti sig hjá þénurunum svo að hann sæi hver endir á yrði. En kennimannahöfðingjar og allt ráðið leituðu ljúgvitna í gegn Jesú svo að þeir gætu selt hann í dauða og fundu engin. Og þó að mörg falsvitni gengu fram að, þá fundu þeir engin.
En að síðustu gengu tveir falsvottar til og sögðu: Þessi sagði: Eg get niður brotið musteri Guðs og eftir þrjá daga það upp aftur byggt. Kennimannahöfðinginn stóð upp og sagði til hans: Svarar þú öngu til þessa sem þeir vitna í móti þér? En Jesús þagði. Kennimannahöfðinginn ansaði og sagði til hans: Eg særi þig fyrir lifanda Guð að þú segir oss ef þú ert Kristur, sonur Guðs. Jesús sagði: Þú sagðir það. En þó segi eg yður: Hér eftir man það ske að þér munuð sjá mannsins son sitja til hægri handar Guðs kraftar og komandi í skýjum himins. Þá reif kennimannahöfðinginn sín klæði og sagði: Hann guðlastaði, hvað þurfu vær vitnanna við? Sjá, þér heyrðuð nú sjálfir hans guðlastan. Hvað virðist yður?
Þeir svöruðu og sögðu: Hann er dauðans sekur. Þá spýttu þeir í hans ásján og börðu hann með hnefum, en aðrir gáfu pústra í hans andlit og sögðu: Spá þú oss, Kristur, hver sá er sem þig sló? En Pétur sat úti í fordyrinu. Og ambátt ein gekk að honum og sagði: Og þú vart með hinum Jesú af Galílea. En hann neitaði fyrir öllum og sagði: Eg veit eigi hvað þú segir. En sem hann gekk út um dyrnar, leit hann ein önnur og sagði til þeirra sem þar voru: Þessi var og með Jesú af Nasaret. Og í annað sinn neitaði hann með eiði, að - eigi þekkti eg þann mann. Og innan skamms gengu þeir að sem þar stóðu og sögðu til Petro: Að sönnu ertu og af þeim því að þitt mál opinberar þig.
Þá tók hann að formæla sér og sverja að eigi þekkti hann þann mann. Og jafnsnart gól haninn. Og þá minntist hann orða Jesú er hann sagði til hans: Áður en haninn gelur, neitar þú mér þrysvar, - gekk út og grét beisklega. xxvii. kapítuli [ breyta] En að morgni gengu allir kennimannahöfðingjar og öldungar lýðsins saman í ráð móti Jesú svo að þeir gætu hann líflátið. Þeir bundu hann og leiddu í burt og ofurseldu hann pontverskum Pílato landsdómara. Þá er Júdas, sá er forréð hann, leit það að hann var til dauða dæmdur, iðraðist hann þess og færði aftur kennimannahöfðingjum og öldungum lýðsins þá xxx silfurpeninga og sagði: Misgjörða eg, það eg forréð saklaust blóð.
En þeir sögðu: Hvað kemur það við oss? Sjá þú þar fyrir. Og hann snaraði þeim silfurpeningum í mustérið, fór þaðan, gekk í burt og hengdi sjálfan sig í snöru. En kennimannahöfðingjar tóku silfurpeningana og sögðu: Eigi hæfir að vér látum þá í guðskistuna því að það er blóðsöluverð. En að samteknu ráði keyptu þeir meður þeim leirkerarans akur vegförundum til greftrunar. Fyrir það er sá akur kallaður Blóðakur allt til þessa dags. Þá er nú uppfyllt hvað sagt er fyrir Jeremíam spámann, segjanda: Og þeir tóku þá xxx silfurpeninga er hinn seldi með bítalaður varð, hvern þeir keyptu af sonum Íraels og hafa gefið þá fyrir leirkerarans akur eftir því sem Drottinn hafði mér umboðið.
En Jesús stóð fram fyrir landsdómaranum. Og landsdómarinn spurði hann að og sagði: Ertu konungur Gyðinga? En Jesús sagði til hans: Þú segir það. Og sem hann klagaðist af kennimannahöfðingjum og öldungum, svaraði hann öngu. Þá sagði Pílatus til hans: Heyrir þú ekki hve mörg vitni þeir segja í móti þér? Og eigi svaraði hann honum til nokkurs orðs svo að dómarinn undraðist það næsta. En á hátíðardeginum var landsdómarinn vanur fólkinu lausan að láta einn bandingja, hvern helst þeir vildu. En þá hafði hann einn formætan bandingja, sá er Barrabas hét. Sem þeir voru til samans komnir, sagði Pílatus til þeirra: Hvorn vilji þér að eg láti yður lausan, Barrabam eða Jesúm, sá er kallast Kristur?
Því að hann vissi vel að þeir höfðu fyrir öfundar sakir ofurselt hann. Og sem hann sat á dómstólinum, sendi hans húsfrú til hans, segjandi: Haf þú ekkert með þennan réttláta því að margt hefi eg liðið í dag í svefni fyrir hann. Kennimannahöfðingjar og öldungar réðu fólkinu að það skyldi biðja um Barrabam, en Jesú skyldu þeir fyrirfara. Landsdómarinn svaraði og sagði til þeirra: Hvorn af þessum tveimur vilji þér að eg láti yður lausan? Þeir sögðu: Barrabam. Pílatus sagði til þeirra: Hvað skal eg þá gjöra af Jesúm, hver eð Kristur kallast? Þeir sögðu honum allir: Krossfestist hann. En landsdómarinn sagði: Hvað hefir hann þess illt gjört? En þeir kölluðu því meir, segjandi: Krossfestist hann.
Og er Pílatus sá það hann fékk ekki að gjört, heldur það að þar yrði enn meira upphlaup af, tók hann vatn, þvó hendurnar fyrir fólkinu og sagði: Saklaus em eg af blóði þessa ins réttláta. Sjái þér til. Allur lýðurinn svaraði og sagði: Hans blóð komi yfir oss og yfir sonu vora. Þá lét hann þeim Barrabam lausan, en húðstrýktan Jesúm gaf hann þeim ofur að hann krossfestist. Þá höfðu stríðssveinar landsdómandans Jesúm meður sér inn í þinghúsið. Þeir söfnuðu saman að honum allt liðið og afklæddu hann.
Þeir lögðu yfir hann purpuramöttul og fléttuðu kórónu af þyrnum og settu upp á hans höfuð og reyr í hans hægri hönd og beygðu knéin fyrir honum, spéuðu hann og sögðu: Heill sért þú konungur Gyðinga, - og hræktu á hann, tóku reyrvöndinn, og börðu um höfuð honum. Og eftir það þeir höfðu spottað hann, færðu þeir hann úr möttlinum og færðu hann aftur í sinn klæðnað og leiddu hann út að þeir krossfestu hann. En er þeir gengu út, fundu þeir mann af Kýrenia, Símonem að nafni. Honum þrengdu þeir til að hann bæri hans kross. Og er þeir komu í þann stað sem kallaðist Golgata, hvað er þýðist aftökustaður, gáfu þeir honum edik að drekka galli blandað. Og er hann smakkaði það, vildi hann eigi drekka.
En sem þeir höfðu krossfest hann, skiptu þeir klæðum hans, kastandi þar um þrautkesti, svo að uppfylltist hvað sagt er fyrir spámanninn er hann segir: Þeir skiptu sér klæðum mínum, og yfir mínu fati köstuðu þeir hlutkesti. Og þar sátu þeir og varðveittu hann. Og upp yfir hans höfuð settu þeir hans sök skrifaða: Þessi er Jesús, konungur Gyðinga. Þá voru og krossfestir með honum tveir spillvirkjar, einn til hægri handar og einn til hinnar vinstri. Og þeir sem þar gengu hjá, hæddu hann, skakandi höfuð sín og sögðu: Þú sá sem niður brýtur musterið og uppbyggir það aftur á þrimur dögum, frelsa þú sjálfan þig. Ef þú ert Guðs sonur, þá stíg þú ofan af krossinum.
Líka einninn spottuðu hann kennimannahöfðingjar með skriftlærðum og öldungum og sögðu: Aðra frelsaði hann, sig sjálfan getur hann eigi frelsað. Ef hann er konungur Íraels, stígi hann nú af krossinum, og munu vér trúa honum. Hann trúði á Guð. Hann frelsi hann nú ef hann vill. Því að hann sagði: Eg em Guðs sonur. Og um það sama hæddu hann og spillvirkjarnir, þeir með honum voru krossfestir. En í frá séttu stund gjörðist myrkur yfir allt til níundu stundar. Og nærri níundu stund kallaði Jesús hárri röddu og sagði: Elí, Elí, lama asabthani. Það er: Guð minn, Guð minn, hvar fyrir forlést þú mig? En nokkrir af þeim sem stóðu þar og heyrðu það sögðu: Þessi kallar Elíam.
Og jafnsnart hljóp einn af þeim til, tók njarðarvött, fyllti af ediki og setti hann ofan á reyrlegg og gaf honum að drekka. En aðrir sögðu: Vert kyrr, sjáum hvort Elías kemur að frelsa hann. Jesús kallaði enn upp í annað sinn hárri röddu og gaf upp andann. Og sjáið, að tjaldið musterisins er í sundur rifnað í tvo parta frá ofanverðu og allt niður í gegnum, og jörðin skalf og hellurnar klofnuðu, og grafir framliðinna lukust upp, og margir líkamar heilagra risu upp, þeir eð sváfu og gengu út eftir hans upprisu úr gröfunum, komu og í hina heilögu borg og auglýstust þar mörgum.
En höfuðsmaðurinn og þeir sem með honum voru að varðveita Jesúm, þá þeir sáu jarðskjálftann og það hvað þar skeði, urðu þeir mjög óttaslegnir, sögðu: Sannlega var þessi Guðs sonur. Þar voru og margar konur langt í frá sem sáu á það, hverjar Jesú höfðu eftir fylgt af Galílea og honum þjónað, meðal hverra var María Magdalena og María móðir Jakobs og Jósef og móðir þeirra Sebedei sona. En að kveldi kom nokkur mann ríkur af Arimaþia, Jósef að nafni, hver eð sjálfur var og lærisveinn Jesú. Hann gekk til Pílato og beiddi hann um líkama Jesú. Þá skipaði Pílatus að honum skyldi fást líkið.
Og er Jósef hafði tekið við líkinu, sveipaði hann það í hreinu lérefti og lagði það í sitt eigið nýtt leiði, hvert hann hafði út höggva látið í hellusteini og velti að dyrum leiðisins stórum steini og gekk í burt. Þar var María Magdalena og önnur María, sitjandi gegnt yfir frá gröfinni. En annan dag, þann sem eftir aðfangadaginn er, söfnuðust saman kennimannahöfðingjar og farísei til Pílato og sögðu: Herra, vær minnunst á það að þessi falsari sagði þá er hann lifði: Eftir þrjá daga mun eg upp rísa.
Af því skipa þú að forvara gröfina allt til hins þriðja dags svo að eigi komi hans lærisveinar og steli honum í burt og segi fólkinu að hann sé upp risinn af dauða, og verði svo hin síðari villan argari inni fyrri. Pílatus sagði til þeirra: Þar hafi þér varðmennina, farið og forvarið sem þér kunnið. En þeir gengu í burt og forvöruðu gröfina meður varðmönnunum og mörkuðu steininn. xxviii. kapítuli [ breyta] En að aftni þvottdagsins, sá er hefst að morgni hins fyrsta dags þvottdaganna, kom María Magdalena og hin önnur María að sjá gröfina. Og sjá, þar varð jarðskjálfti mikill því að engill Drottins sté af himni, gekk til og velti steininum frá dyrunum og sat á honum.
En hans ásján var sem elding og hans klæði hvít sem snjár. En fyrir ógninni, er af honum var, urðu varðhaldsmennirnir sem væri þeir dauðir. En engillinn svaraði og sagði til kvennanna: Eigi skulu þér óttast því að eg veit að þér spyrjið að Jesú sem krossfestur er. Ei er hann hér. Upp er hann risinn svo sem hann sagði. Komi þér hér og sjáið þann stað hvar herrann var lagður. Gangið skyndilega og segið það hans lærisveinum að hann sé upp risinn af dauða. Og sjá, að hann gengur fyrir yður í Galíleam. Þar munu þér sjá hann. Sjá nú, eg sagða yður það.* Og þær gengu skyndilega frá gröfinni meður ótta og fagnaði miklum og hlupu svo að þær undirvísuðu það hans lærisveinum.
En meðan þær gengu að kunngjöra það hans lærisveinum, sé, þá mætti þeim Jesús og sagði: Heilar séu þér. En þær gengu til hans og héldu hans fötum og krupu fyrir honum. Þá sagði Jesús til þeirra: Eigi skulu þér óttast, farið og kunngjörið mínum bræðrum að þeir gangi í Galíleam. Og þar skulu þeir mig sjá. En meðan þær gengu á burt, sjá, þá komu nokkrir af varðhaldsmönnunum í borgina og undirvísuðu kennimannahöfðingjum allt hvað til hafði borið. Og þeir söfnuðust saman með öldungunum, haldandi ráðstefnu og gáfu stríðsmönnunum ærna peninga og sögðu: Segið að hans lærisveinar kæmu um nótt og stæli honum á meðan vér sváfum.
Og ef það kann að heyrast fyrir dómaranum, skulu vér stilla hann og gjöra að þér séuð traustir. Og þeir tóku peningana og gjörðu svo sem þeim var kennt. Og þessi orðrómur er víðfrægur orðinn meðal Gyðinga allt til þessa dags. En þeir ellifu lærisveinar gengu burt í Galíleam á eitt fjall þar eð Jesús hafði þeim fyrirskipað. Og er þeir sáu hann, hnékrupu þeir honum. En nokkrir efuðu það. Jesús gekk til þeirra, talaði við þá og sagði: Allt vald er mér gefið á himnum og á jörðu. Fyrir því gangi þér út og lærið allar þjóðir og skírið þær í nafni föður og sonar og heilags anda. Kennið þeim og að geyma allt hvað eg bauð yður. Og sjáið, að eg em með yður alla daga allt til enda veraldar.
Hér er endi S. Matteus guðsspjalla.