Mark · Chapter 1
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 16 of 174 · about 4 min
[ breyta] Þetta er upphaf evangelia Jesú Kristi, Guðs sonar, svo sem skrifað er af Esaia spámanni: Eg sendi minn engil fyrir þínu augliti, sá er tilreiðir þinn veg fyrir þér. Ein hrópandi rödd í eyðimörku: Greiði þér vegu Drottins og gjörið hans stigu rétta. Jóhannes var í eyðimörku, skírði og predikaði iðrunarskírn til syndanna fyrirgefningar, og þar gengu út til hans allar Júðasveitir og aðrir fleiri af Jerúsalem að þeir skírðust af honum í Jórdanarflóði, játandi sínar syndir. En Jóhannes var klæddur með úlfbaldshárum, og eitt ólarbelti var um hans lendar, en hann át engisprettur og skógarhunang.
Hann predikaði og sagði: Sá kemur eftir mig sem mér er styrkri, hvers að eg em eigi verðugur framfallandi upp að leysa þvengi hans skófata. Eg skírða yður með vatni, en hann mun skíra yður með helgum anda. Það varð og á þeim dögum að Jesús af Nasaret úr Galílea kom og skírðist af Jóhanni í Jórdan. Og strax þá hann sté upp úr vatninu, sá hann himnana opna og helgan anda í dúfulíki ofan stígandi yfir hann. Þá varð og rödd af himnum: Þú ert sonur minn elskulegur, að hverjum mér vel þókknast. Og þá strax dreif andinn hann á eyðimörk. Þar var hann í fjörutigi daga og xl nátta og freistaðist. Hann var þar og með villudýrum, og englar þjónuðu honum þar.
En eftir það er Jóhannes var gripinn, kom Jesús í Galíleam og predikaði evangelium af Guðs ríki, svo segjandi: Sá tími er nú uppfylltur að Guðs ríki nálgast. Iðrist þér og trúið evangelio. En er hann gekk með sjónum í Galílea, sá hann Símonem og Andream bróður hans látandi sín net í sjóinn því að þeir voru fiskarar. Jesús sagði til þeirra: Fylgið mér eftir, og eg mun gjöra það að þér verðið fiskendur manna. Strax forlétu þeir sín net og fylgdu honum eftir. Og þá hann var skammt í burt þaðan genginn, sá hann Jakob, son Sebedei, og Jóhannem bróður hans, og þeir voru á skipi, bæta að neti.
Og strax þá kallaði hann á þá, og þeir forlétu sinn föður Sebedeum í skipinu eftir hjá leiguliðunum og fylgdu honum eftir. Þeir gengu þá til Kapernaum. Og strax um þvottdaginn gekk hann inn í samkunduhúsið, lærði þá og þeim ægði hans kenning því að hann kenndi þeim sem af valdi, en eigi svo sem hinir skriftlærðu. Einn maður var þar í þeirra samkunduhúsi haldinn af óhreinum anda, sá kallaði og sagði: Hei, hei, hvað höfu vær með þig, Jesús af Nasaret. Komt þú að glata oss? Eg veit að þú ert hinn heilagi Guðs. Jesús straffaði hann og sagði: Þegi þú, og far út af manninum. Og sá hinn óhreini andi hreif hann og kallaði upp hárri röddu og fór út frá honum.
Þeir undruðust allir svo að þeir spurðu að sín á millum, svo segjandi: Hvað er þetta? Eða hver er þessi hin nýja kenning? Því að af valdi skipar hann óhreinum öndum og þeir hlýða honum. Og hans rykti gekk strax út um öll Galíleahéröð. Þá gengu þeir strax út af samkunduhúsinu og komu til húsa Símonar og Andree með Jakobo og Jóhanni. En móðir húspreyju Péturs lá þar krönk í köldu, og strax þá sögðu þeir honum til hennar. Hann gekk þá til, reisti hana upp og hélt um hönd hennar. Og strax þá missti hún köldunnar og þjónaði þeim. En að kveldi komnu, þá sól sett var, fluttu þeir alls kyns sjúka menn og djöfulóða til hans, og allur borgarmúgur safnaðist fyrir dyrunum.
Og hann læknaði marga sem kvöldust af ýmissum sóttum. Hann rak og út marga djöfla, og eigi leyfði hann þeim að mæla því að þeir þekktu hann. En að morgni fyrir dögun stóð hann upp, gekk út og fór burt í einn eyðistað og baðst þar fyrir. En Petrus og þeir, er með honum v sögðu þeir honum: Allir leita að þér. Hann sagði þá til þeirra: Göngu vær í hinar næstu borgir og byggðarlög svo að eg prediki og þar því til þess kom eg. Hann predikaði og í þeirra samkunduhúsum um allt Galíleahérað og rak út djöfla. Og einn líkþrár mann kom til hans, biðjandi hann með hneigðu kné og sagði: Ef þú vilt, þá fær þú mig hreinsað.
En Jesús vorkynnti honum, rétti út sína hönd, áhrærði hann og sagði honum: Eg vil, vert þú hreinn. Og þá hann sagði svo, hvarf strax líkþráin af honum, en hann varð hreinn. Jesús hastaði á hann og lét hann strax frá sér og sagði honum: Sjá nú til að þú seg það öngum, heldur far þú og sýn þig prestahöfðingjanum og fórna fyrir þinni hreinsun sem Móses bauð til vitnisbyrðar yfir þá. En þá hann kom út, hóf hann upp og kunngjörði margt þar út af og víðfrægði þessi orð svo að hann mátti eigi opinberlega innganga í borgina, heldur var hann þar fyrir utan í eyðistöðum. Og margir komu til hans úr ýmsum álfum.