The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 174

Revelation · Chapter 16

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 174 of 174 · about 2 min

← Chapter 173

[ breyta] Og hann sýndi mér hreint vatsfall svo skært sem kristallus framfljótandi af stóli Guðs og lambsins. Mitt á hennar stræti og báðumegin vatsins stóðu lífsins tré, og það bar tólfháttaðan ávöxt og færði sinn ávöxt á sérhverjum mánaði, og laufblöð trésins dugðu til heilsubótar heiðinnar þjóðar. Og þar man ekkert bölvanlegt meir vera. Og stóll Guðs og lambsins mun þar inni vera. Og hans þjónar munu honum þjóna og hans andlit sjá, og hans nafn man í þeirra ennum vera. Og eigi mun þar nótt vera og eigi við þurfa nokkurrar lýsingar eður ljósi sólar því að Guð Drottinn mun sjálfur lýsa þeim, og þeir munu ríkja um aldir að eilífu. Og hann sagði til mín: Þessi orð eru traust og sönn.

Og Drottinn, Guð heilagra spámanna, hefir sent sinn engil til að kunngjöra sínum þjónum hvað snarlega hlýtur að ske. Sjáið, eg kem snart. Sæll er sá sem varðveitir orðin spádómsins í þessari bók. Og eg em Jóhannes sem þetta séð og heyrt hefir. Og þá eg hafða það heyrt og séð, féll eg fram að tilbiðja fyrir fætur engilsins, þess mér sýndi þetta. Og hann sagði til mín: Gæt að þú gjör eigi þetta. Því að eg em þinn samþjón og þinna bræðra, spámannanna og þeirra sem varðveita orð þessarar bókar. Tilbið þú Guð. Og hann segir til mín: Uppteikna ekki orð spádómsins í þessari bók því að tíminn er í nánd.

Hver skaðsamur er, sá sé skaðsamur, hver óhreinn er, sá sé óhreinn, en hver réttvís er, sá verði enn réttvísari, og hver heilagur er, sá verði enn heilagri. Og sjáðu, eg kem snarlega og mín verðlaun meður mér að eg gjaldi hverjum sem einum svo sem hans verk vera mun. Eg em A og O, upphaf og endir, fyrstur og síðastur. Sælir eru þeir sem hans boðorð varðveita upp á það að þeirra makt sé á lífstrénu og um hliðin innganga í borgina. Því að þar fyrir utan eru hundarnir, fjölkynngismenn og saurlifnaðar og manndráparar og skurguðadýrkendur og allir þeir sem elska og gjöra lygina. Eg, Jesús, útsendi minn engil að hann vitnaði yður þetta í samkundunum. Eg em af rót og kyni Davíðs, skær morgunstjarna.

Og andinn og brúðurin sögðu: Kom. Og hver eð heyrir, sá segi: Kom. Og hver hann þyrstir, sá komi. Og hver að vill, sá meðtaki orðið lífsins fyrir ekki. En eg vitna öllum þeim sem heyra orð spádómsins þessarar bókar að ef einhver setur þar nokkuð til, þá mun Guð tilsetja yfir hann allar plágur sem skrifaðar eru í þessari bók. Og ef einhver tekur þar nokkuð í frá út af orðum bókarinnar þessarar spásögu, þá mun Guð afmá hans deild af lífsbókinni og frá hinni heilögu borg og af því sem í þessari bók skrifað er. Þetta segir sá sem þessu ber vitni: Já, eg kem snarlega. Amen. Já, kom þú, Drottinn Jesús. Náð vors Drottins Jesú Kristi sé með yður öllum. Amen.

← Chapter 173