Revelation · Chapter 15
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 173 of 174 · about 8 min
[ breyta] Eftir þetta heyrða eg mikla rödd mikils fjölda á himni, segjandi: Hallelúja, heilsa og heiður, dýrð og kraftur sé Guði vorum Drottni. Því að sannir og réttvísir eru hans dómar það hann fordæmdi hina miklu hórkonu sem jörðina meður sinni hóran fordjarfaði, og blóðs sinna þjóna af hennar hendi hefir hann hefnt. Og þeir sögðu enn aftur í annað sinn: Hallelúja. Og rödd gekk út af stólnum sem sagði: Lofið vorn Guð, allir hans þjónar og þeir hann óttast, bæði smáir og stórir. Og eg heyrða rödd mikils fjölda og svo sem nyð mikilla vatna og svo sem rödd megnrar reiðarþrumu. Þeir sögðu: Hallelúja, því að Guð almáttugur hefir ríkið undir sig lagt.
Fögnum og verum glaðir og gefum honum dýrð því að brúðkaup lambsins er komið, og þess húsfrú hefir sig tilreitt. Og henni varð gefið það hún skyldi umklæða sig með hreinu og skínanda silki. En það silki eru réttlætingar heilagra. Og hann sagði til mín: Sælir eru þeir sem til kveldmáltíðar lambsins eru kallaðir. Og hann sagði til mín: Þetta eru sannarleg Guðs orð. Og eg féll niður fyrir honum til fóta hans að eg tilbæði hann, og hann sagði til mín: Sjá til að þú gjör það ei. Eg em þinn samþjón og þinna bræðra og þeirra sem hafa Jesú vitnisburð. Tilbið þú Guð. En vitnisburður Jesú er andi spádómsins.
Og eg sá himininn opinn, og sjá, að hvítur hestur og sá sem þar sat á hét Trúr og Sannarlegur og dæmir og stríðir meður réttlæti. Og hans augu er[u] sem eldslogi og á hans höfði margar kórónur. Og hann hafði nafn skrifað það enginn þekkti nema sjálfur hann og var klæddur því klæði sem með blóði var dreift, og hans nafn hét Guðs orð. Og honum eftirfylgdi allur her, sá á himni er, á hvítum hestum klæddir í hvítu og hreinu silki. Og af hans munni framgekk tvíeggjað sverð það hann slægi þar með heiðnar þjóðir, og hann mun stjórna þeim meður járnvendi.
Og hann fóttreður þrúgu bræðinnar víns og reiði Guðs almáttugs og hefir nafn skrifað á sínu fati, á sinni lend líka svo: Konungur konunganna og Drottinn drottnanna. Og eg sá einn engil standa í sólunni. Og hann kallaði hárri rödd og sagði til allra fugla sem undir himni fljúga: Komið og samansafnið yður til kveldverðar hins mikla Guðs að þér etið hold konunganna og landsstjórnaranna og hold öflugra og hestanna og þeirra sem þar upp á sátu og hold allra frelsingja og þjónustumanna, bæði smárra og stórra. Og eg sá dýrið og konunga jarðarinnar og þeirra lið samansafnað til að halda stríð við þann sem á hestinum sat og við hans her.
Og dýrið varð höndlað og með því sá falski spámaður sem teiknin gjörði fyrir því af hverjum hann villti þá sem auðkenningarmerki dýrsins meðtóku og þá er mynd dýrsins tilbáðu. Þessir báðir tveir urðu lifandi fleygðir í eldsins díki það með brennusteini logar. Og þeir aðrir urðu í hel slegnir með sverði þess sem á hestinum sat það út af hans munni gekk, og allir fuglar urðu saddir af þeirra holdi. xx. kapítuli [ breyta] Og eg sá engil ofan stíga af himni. Sá hafði lykil undirdjúpsins og mikla járnhlekki í sinni hendi.
Og hann höndlaði drekann hinn gamla höggorm, hver að er djöfullinn og andskotinn, og batt hann um þúsund ár og fleygði honum í undirdjúpið og innilukti hann og innsiglaði þar ofan yfir að hann skyldi eigi meir villa heiðnar þjóðir þangað til að útenduð yrði þúsund ár og eftir það hlyti hann laus að verða um stutta stund. Og eg sá stóla, og þeir sátu á þeim, og þeim varð dómur gefinn. Og þeirra sálir sem afhöfðaðir voru vegna vitnisburðarins Jesú og fyrir Guðs orðs sakir og þeir sem ekki höfðu tilbeðið dýrið né þess mynd og þeir eigi meðtekið höfðu auðkenningarmerki í sín enni eður á sínar hendur, þessir lifðu og ríktu með Kristi þúsund ára.
En hinir aðrir dauðu endurlifnuðu ekki þar til að þúsund ár fullkomnuðust. Þetta er hin fyrsta upprisa. Sæll er sá og heilagur sem hlutdeild hefir á hinni fyrstu upprisu. Yfir þvílíkum hefir sá annar dauði öngva makt, heldur verða þeir kennimenn Guðs og Kristi og ríkja með honum þúsund ára. Og nær þau þúsund ár eru fullkomnuð, þá man sá andskoti laus verða af sínu fjötri og mun út ganga að villa hina heiðnu sem að eru í fjórum áttum jarðarinnar, Góg og Magóg, að samansafna þeim til baráttu, hverra tala er sem sjávarsandur og hverjir uppstíga yfir vídd jarðar og umkringja herbúðir heilagra og hina elskulegu borg. Og eldur kom að ofan frá Guði af himninum og svelgdi þá.
Og djöfullinn, sá þá villti, varð kastaður í eldsins díki og brennistein þar eð dýrið og sá falski spámaður var og verða kvaldir dag og nótt um aldur og ævi að eilífu. Og eg sá mikinn stól skínanda og þann sem þar upp á sat, fyrir hvers augliti að flýr himinn og jörð, og þeim var enginn staður fundinn. Og eg sá hina dauðu, bæði stóra og smá, standa fyrir Guðs augliti, og bækurnar urðu upplátnar. Og önnur bók varð opnuð, hver að er lífsins. Og hinir dauðu urðu dæmdir eftir því sem skrifað er á bókum eftir þeirra verkum. Og sjórinn gaf fram þá dauðu sem í honum voru, og dauði og helvíti gaf upp þá dauðu sem í þeim voru, og þeir urðu dæmdir, hver einn eftir sínum verkum.
Og dauði og helvíti urðu köstuð í eldsins díki, það er sá annar dauði. Og ef nokkur finnst eigi skrifaður á lífsbókinni, sá verður kastaður í eldsins díki. xxi. kapítuli [ breyta] Og eg sá nýjan himin og nýja jörð því að hinn fyrsti himinn og fyrsta jörð forgekk, og sjórinn er eigi meir. Og eg, Jóhannes, sá hina heilögu borg, þá nýju Jerúsalem, ofan fara af himni frá Guði tilreidda svo sem prýdd brúður sínum manni. Og eg heyrði rödd mikla af stólinum segja: Sjá, þar tjaldbúð Guðs hjá mönnum, og hann man hjá þeim byggja, og þeir munu hans fólk vera, og Guð sjálfur meður þeim mun þeirra Guð vera. Og Guð mun þerra öll tár af þeirra augum.
Dauði man eigi meir vera, eigi harmur né kveinan eða hryggð mun meir vera, því að hið fyrsta er umliðið. Og sá upp á stólnum sagði: Sjá, eg gjöri það allt saman nýtt. Og hann sagði til mín: Skrifa þú því að þessi orð eru sönn og trúanleg. Og hann sagði til mín: Það er gjört. Eg em A og O, upphaf og niðurlag. Eg man þyrstum gefa af brunni lifanda vats fyrir ekki. Hver eð yfirvinnur, sá mun eignast allt það, og eg man hans Guð vera, og hann mun minn sonur vera.
En þeim óttafullum og vantrúuðum og svívirðilegum og manndrápurum og frillulifnaðarmönnum og töfrurum og skurguðadýrkurum og öllum ljúgurum, þeirra hlutdeild mun vera í díkinu sem með eldi og brennisteini logar, hvert að er sá annar dauði. Og einn af þeim vii englunum, sem hafði þær vii skálir fullar með þær vii síðustu plágur, kom að mér og talaði við mig og sagði: Kom, eg man sýna þér húsfrúna, brúður lambsins. Og hann tók mig burt í anda upp á hátt og mikið fjall og sýndi mér hina miklu borg, þá heilögu Jerúsalem, ofan fara af himni frá Guði, hafandi bjartleik Drottins.
Og hennar ljós var líkt hinum dýrmætasta steini svo sem skær jaspis og hafði mikla og háva múrveggi og hafði tólf hlið og í þeim hliðunum tólf engla og nöfn skrifuð, hver að eru tólf kynkvíslir Íraelssona, af austri þrjú hlið, af norðri þrjú hlið, af suðri þrjú hlið, af vestri þrjú hlið. Og múrveggir borgarinnar höfðu tólf grundvelli og í þeim sömum nöfn þeirra tólf postula lambsins. Og sá við mig talaði hafði gulllegan reyrkvarða það hann skyldi mæla borgina og hennar hlið og múrveggi. Og borgin er sett ferköntuð, og lengd hennar er svo mikil sem breiddin. Og hann mældi borgina með gullreyrnum upp á tólf þúsund renniskeiða. Lengdin og breiddin og hæðin hennar er líka jafnt.
Og hann mældi hennar múrveggi hundrað fjórar og fjörutigi álnir eftir þess manns mæling sem engil hefir. Og smíði hennar múrveggja var af jaspis og borgin af skíru gulli lík skæru gleri. Og grundvellirnir og múrveggir borgarinnar voru prýddir með allsháttaða gimsteina. Hinn fyrsti grundvöllur var jaspis, sá annar safír, þriðji kalsedóníus, fjórði smaragðus, fimmti sardóníkus, sétti sardís, sjöundi krýsólítus, áttandi beryllus, níundi tópasíus, tíundi krýsófras, ellifti hýasintus, tólfti ametýst. Og þau tólf hliðin voru tólf perlur, og sérhvert hliðið var af sérhverri perlunni. Og strætin borgarinnar voru skíra gull svo sem gegnum skínanda gler.
Og eg sá þar ekkert mustéri inni því að Drottinn Guð almáttugur er hennar mustéri og lambið. Og borgin þarf eigi sólar né tungls það þau lýsi í henni því að Guðs bjartleiki upplýsir hana, og ljós hennar er lambið. Og þær þjóðir sem hjálpast, ganga í því sama ljósi, og konungar á jörðu munu innflytja sína dýrð í þá hina sömu. Og hennar hlið verða ekki um daginn afturlukt því að þar man engin nótt vera. Og ekkert saurugt og svívirðilegt og lygn man þar innganga utan þeir sem skrifaðir eru á lífsbókinni lambsins. Tvö og