Mark · Chapter 12
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 27 of 174 · about 4 min
[ breyta] Og strax um morguninn héldu höfuðprestarnir með öldungunum og skriftlærðum öllu ráðuneytinu ráðstefnu og bundu Jesúm, leiddu hann og framseldu Pílato. Og Pílatus spurði hann að: Ertu konungur Gyðinga? En hann svaraði og sagði til hans: Þú segir það. Og höfuðprestarnir áklöguðu hann um margt. Pílatus spurði hann enn aftur að og sagði: Svarar þú öngu? Sjá í hversu mörgu þeir ákæra þig. En Jesús svaraði honum öngu þaðan í frá svo að Pílatus undraðist. En hann var vanur að láta þeim lausan um hátíðina einn af bandingjunum, eftir hverjum helst þeir beiddust. En þar var sá er nefndist Barrabas meður illræðismönnum bundinn, hver með illræði hafði víg unnið.
Og þá fólkið gekk upp, tók það að biðja að hann veitti því sem hann plagaði jafnan. En Pílatus svaraði þeim og sagði: Vilji þér að eg láti yður Gyðingakonunginn lausan? Því að hann vissi að höfuðprestarnir höfðu af öfund framselt hann. En biskuparnir eggjuðu lýðinn að hann gefi þeim heldur Barrabam lausan. Pílatus svaraði enn aftur og sagði til þeirra: Hvað vilji þér þá að eg skuli gjöra honum, hvern þér segið konung Gyðinga? En þeir kölluðu þá aftur: Krossfestu hann. Pílatus sagði til þeirra: Hvað illt hefir hann gjört? En þeir kölluðu því meir: Krossfestu hann. En Pílatus vildi fólkinu fullnægju gjöra, lét þeim lausan Barrabam og framseldi Jesúm svipum barðan að hann krossfestist.
En stríðsþénararnir leiddu hann í fordyr þinghússins og kölluðu saman allan hópinn og færðu hann í purpuraklæði, fléttandi þyrnikórónu og settu á hann og tóku að heilsa honum: Heill sért þú konungur Gyðinga, - og slógu hans höfuð með reyrvendi og hræktu á hann, féllu og á hné og tilbáðu hann. Og þá þeir höfðu spottað hann, færðu þeir hann úr purpuranum og færðu hann aftur í sín klæði og leiddu hann út að þeir krossfestu hann. Þeir þrengdu og þeim sem framhjá gekk, Símoni hinum sýrneska er kominn var af akurlendi, föður þeirra Alexandri og Ruffi, að hann bæri hans kross. Og þeir höfðu hann í þann stað er heitir Golgata, það þýðist gálgaklettur.
Og þeir gáfu honum myrrat vín að drekka, og hann tók það eigi til sín. Og þá er þeir höfðu krossfest hann, skiptu þeir klæðum hans og köstuðu hlutverpi yfir þeim hvað hver tæki. En það var %um þriðju stund er þeir krossfestu hann. Og titill hans sakferlis var yfir honum skrifaður, það hann væri konungur Gyðinga. Og með honum krossfestu þeir tvo spillvirkja, einn til hægri handar, en annan til vinstri. Og sú ritning er uppfyllt sem segir: Meður illvirkjum er hann reiknaður. Og þeir gengu þar fram hjá og hæddu hann, skóku höfuð sín og sögðu: Svei, hverninn niðurbrýtur þú musteri Guðs og byggir upp á þrim dögum aftur? Frelsa nú sjálfan þig og stíg niður af krossinum.
Líka einninn spéuðu hann höfuðprestarnir sín á meðal meður skriftlærðum og sögðu: Aðra frelsaði hann, sjálfan sig getur hann eigi frelsað. Sé hann Kristur, konungur Íraels, stígi hann nú niður af krossinum að vér sjáum og megum svo trúa. Og þeir er með honum voru krossfestir, átöldu hann einninn. Og að liðinni séttu stund urðu myrkur um allt landið, allt til níundu stundar. Og á hinni níundu stund kallaði Jesús upp hárri röddu og sagði: Eloy, Eloy lamma a sabthani, hvað er útleggst: Guð minn, Guð minn, hví forléstu mig? Og þá nokkrir af þeim, er þar stóðu hjá, heyrðu það, sögðu þeir: Sjá hann kallar á Elíam.
En einn hljóp að og fyllti upp njarðarvött með edik, látandi upp á einn reyrlegg, gaf honum svo að drekka og sagði: Lát fara, sjáum hvort ef Elías kemur að taka hann ofan. En Jesús kallaði upp hárri röddu og andaðist. Og tjaldið musterisins rifnaði sundur í tvo frá ofanverðu allt niður í gegnum. En er hundraðshöfðinginn sá það, hver þar stóð gegnt, að hann kallaði svo þá er hann lést, sagði hann: Sennilega hefir þessi maður verið Guðs sonur. Og konur voru þar og langt frá sem horfðu og á það, á meðal hverra var María Magdalena og María, minna Jakobs og Jósefs móðir, og Salóme.
Og þá hann var í Galílea, höfðu þær fylgt honum eftir og þjónað honum og margar aðrar, hverjar undir eins með honum höfðu upp farið til Jerúsalem. Og þá er kveld var komið, af því það var aðfangadagur, hver að er næstur fyrir þvottdaginn, kom Jósef af Arímatía, einn eðluborinn ráðherra, sá er og stundaði eftir Guðs ríki, og gekk djarflega inn til Pílato og bað um líkama Jesú. En Pílatus undraðist að hann væri þegar látinn og kallaði hundraðshöfðingjann til sín, spurði hann að ef hann væri þegar andaður. Og er hann var þess vís orðinn af höfuðsmanninum, gaf hann Jósef líkamann.
En Jósef keypti líndúka, tók hann ofan og sveipaði hann í léreftinu og lagði hann í gröfina, hver eð klöppuð var í hellustein, og velti steini að grafarmunnanum. En María Magdalena og Jósefs María sáu hvar hann var lagður.