Mark · Chapter 11
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 26 of 174 · about 7 min
[ breyta] En eftir tvo daga þá voru páskar og sætubrauðsdagar. Og höfuðprestar og skriftlærðir sóktu eftir hverninn þeir gætu höndlað hann með vélum og líflátið, en þeir sögðu: Eigi þó um hátíðina svo að ei verði upphlaup með fólkinu. Og þá hann var í Betanía í hús Símonar vanheila og sat við borð, kom kona, hafandi alabastrumbuðk með ómengað og kostulegt smyrslavatn. Hún braut buðkinn og hellti yfir höfuð honum. En þar voru nokkrir sem stugguðust við í sjálfum sér og sögðu: Til hvers er þessi smyrslaspilling gjör. Því að þetta smyrslavatn mætti seljast meir en þrjú hundruð %peninga og gefast fátækum, - og deildu á hana. En Jesús sagði: Látið hana kyrra. Til hvers styggi þér hana?
Gott verk gjörði hún á mér. Því að fátæka hafi þér jafnan hjá yður, og nær þér viljið, megi þér gjöra þeim gott, en mig þá hafi þér eigi jafnan. Hvað hún hafði til, það gjörði hún. Hún kom og fyrirfram að smyrja minn líkama til graftrar. Sannlega segi eg yður: Hvar helst í heimi öllum er þetta guðsspjall verður predikað, þá mun segjast í hennar minning hvað hún gjörði. Og Júdas Skariot, einn af tólf, gekk burt til höfuðprestanna að hann forréði hann fyrir þá. Og er þeir heyrðu það, glöddust þeir, og þeir lofuðu að gefa honum peninga. Hann leitaði og eftir hverninn skapferlilegast hann gæti forráðið hann.
Og á hinum fyrsta sætabrauðsdegi þá páskalambið fórnaðist, segja hans lærisveinar til hans: Hvert viltu vér förum og reiðum til að þú neytir páskanna? Og hann sendi tvo af sínum lærisveinum og sagði til þeirra: Gangið inn í staðinn. Maður mun renna í mót yður, berandi vatsskjólu. Fylgið honum eftir, og hvar helst hann gengur inn, segi þér húsherranum að meistarinn segir: Hvar er það herbergi er eg skal neyta páskanna í meður mínum lærisveinum? Og hann mun sýna yður astrakaðan sal stóran, tilbúinn. Reiði þér þar til fyrir oss. Og hans lærisveinar gengu burt og komu inn í staðinn og fundu svo sem hann hafði sagt þeim og bjuggu til páskalambið. Og er kvelda tók, kom hann meður þá tólf.
Og er þeir voru niður sestir og átu, sagði Jesús: Sannlega segi eg yður að einn af yður sá er etur með mér, forræður mig. En þeir urðu hryggvir við og sögðu hver eftir öðrum til hans: Er eg það nokkuð? En hann svaraði og sagði til þeirra: Einn af tólf, sá er drepur hendinni í fatið meður mér. Að sönnu fer mannsins sonur héðan svo sem skrifað er af honum, en ve þeim manni, af hverjum mannsins sonur framselst. Betra væri þeim manni að eigi hefði hann fæddur verið. Og er þeir neyttu, tók Jesús brauðið, blessaði og braut það og gaf þeim og sagði: Taki þér, neytið, þetta er mitt hold. Hann tók og kaleikinn, blessaði og gaf þeim og þeir drukku allir af honum.
Hann sagði til þeirra: Þetta er mitt blóð eins nýs testaments sem fyrir marga úthellist. Sannlega segi eg yður að eg mun ei héðan í frá drekka af þessum vínviðarávexti allt til þess dags þá að eg drekk það nýtt í Guðs ríki. Og að sögðum lofsöngnum gengu þeir í fjallið Oliveti. Jesús sagði til þeirra: Allir munu þér sk mun slá hirðirinn, og sauðirnir skulu tvístrast. En eftir það er eg rís upp, skal eg ganga fram fyrir yður í Galíleam. En Pétur sagði til hans: Og það allir skammfyllist þér, þá skal eg þó eigi. Jesús sagði til hans: Sannlega segi eg þér að í daglangt á þessari nótt áður en haninn gelur tvisvar, munt þú neita mér þrisvar.
Hann talaði þá enn framar: Þó að mér byrjaði að deyja jafnframt þér, skyldi eg þó eigi neita þér. Og líka einninn sögðu allir þeir. Og þeir komu í það gerðistún er hét Getsemani, og hann sagði til sinna lærisveina: Sitji þér hér á meðan eg biðst fyrir, - og tók með sér Petrum, Jakob og Jóhannem og tók til að skjálfa og angrast og sagði til þeirra: Sála mín er hrygg allt í dauðann. Blífið hér og vakið. Og þá gekk hann litlu einu lengra fram, féll á jörð og tók að biðja ef það væri mögulegt að sú stund liði hjá honum og sagði: Abba faðir minn, allt er þér mögulegt. Tak burt þenna kalek af mér. En eigi sem eg vil, heldur sem þú vilt.
Hann kom og fann þá sofandi og sagði til Péturs: Símon, sefur þú? Kunnir þú eigi að vaka eina stund meður mér? Vakið og biðjið að þér fallið eigi í freistni. Andinn er að sönnu reiðubúinn, en holdið er breyskt. Hann gekk og enn burt aftur og bað og talaði hin sömu orð. Hann kom aftur og fann þá enn sofandi því að þeirra augu voru bólgin af svefni og eigi vissu þeir hverju þeir svöruðu honum. Og hann kom í þriðja sinn og sagði til þeirra: Sofið nú og hvílið yður, það nægist. Stundin er komin, það mannsins sonur framselst í syndugra hendur. Standið upp, göngum héðan. Sjáið að sá er mig forræður, hann er í nánd.
Og strax sem hann var að tala um þetta, kom Júdas Skariot, einn af tólf, og með honum mikil sveit meður sverðum og stöngum, útsendir af höfðingsprestum, skriftlærðum og öldungum. En svikarinn hafði gefið þeim teikn og sagt: Hvern helst eg kyssi, sá er það. Haldið honum og leiðið varygðarlega. Og þá hann kom, gekk hann strax til hans og sagði: Heill sért þú, Rabbí, - og kyssti hann. En þeir lögðu strax hendur á Jesúm og héldu honum. Og einn af þeim sem hjá stóð eyrað. Jesús svaraði og sagði til þeirra: Þér eruð út gengnir svo sem til annars spillvirkja með sverðum og stöngum að grípa mig.
Hversdaglega var eg í musterinu hjá yður og kenndi, og eigi gripuð þér mig, heldur það ritningin uppfylltist. Og þá forlétu hann allir hans lærisveinar og flýðu. En nokkuð ungmenni fylgdi honum eftir klæddur línklæði yfir bert hörund. Og hann gripu önnur ungmenni, en hann snaraði línklæðinu og flýði nakinn í burt frá þeim. Þeir leiddu Jesúm til höfuðprestsins. Þar komu saman allir kennimenn, skriftlærðir og öldungar. En Pétur fylgdi eftir, þó langt burt frá, inn allt í höfuðprestsins fordyri og sat hjá þénurunum við eldinn og bakaði sig við logann. En höfuðprestarnir og allt ráðið leituðu vitna í gegn Jesú svo að þeir gætu selt hann til dauða og fundu engin.
Margir töluðu falsvitni í gegn honum, en þeirra vitnisburðar voru eigi samlátandi. Og þá stóðu nokkrir upp og báru falsvitni í móti honum og sögðu: Vér höfum heyrt hann segja: Eg mun þetta musteri niður brjóta sem höndum er gjört og á þrim dögum upp byggja annað það eigi er með höndum gjört. En þeirra vitnisburðar komu og eigi saman. Og höfuðpresturinn reis upp í miðið, spurði Jesúm að og sagði: Svarar þú öngu til þess sem að þessir leggja í móti þér? En hann þagði og svaraði öngu. Þá spurði höfuðpresturinn hann enn aftur að og sagði til hans: Ert þú Kristur, sonur Guðs ins blessaða? En Jesús sagði honum: Eg em hann.
Og þér munuð sjá mannsins son sitja á hægri hönd Guðs kraftar og komandi í skýjum himins. En höfuðpresturinn reif þá klæði sín og sagði: Hvað þurfu vær nú að girnast vitnanna? Þér heyrðuð guðlöstunina. Hvað sýnist yður? En þeir fordæmdu hann allir sekan vera dauðans. Og nokkrir tóku að spýta á hann og byrgja hans ásjánu og að dusta hann með hnefum og að segja til hans: Spáðu. Og þénararnir slógu hann pústra í andlitið. Og er Pétur var niðri í fordyrunum, kom ein af ambáttum höfuðprestsins. Og þá hún leit Petrum verma sig, horfði hún á hann og sagði: Vart þú og með Jesú af Nasaret. En hann neitaði og sagði: Eg þekki hann eigi, og ei veit eg hvað þú segir.
Og er hann gekk út fyrir dyrnar, gól haninn. En er ambáttin sá hann aftur, tók hún að segja þeim er kringum stóðu: Þessi er af þeim. En hann neitaði nú enn aftur. Og litlu einu þar eftir sögðu þeir aftur er hjá stóðu til Péturs: Sannlega ertu einn af þeim því að þú ert einn Galíleari, og þitt mál hljóðar svo. En hann tók að formæla sér og sverja það, - ei þekki eg þann mann, af hverjum þér segið. Og strax gól haninn aftur. Og Pétur minntist þess orðs sem Jesús hafði sagt til hans: Áður haninn gelur tvisvar, muntu neita mér þrisvar, - og tók að gráta.