Luke · Chapter 1
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 29 of 174 · about 7 min
[ breyta] Af því að margir hafa stundað í lag að færa þær sagnir sem eru af þeim hlutum er á meðal vor hafa til borið og eftir því eð þeir hafa oss í hendur fengið, sem í upphafi hafa sjálfir séð og þénarar orðsins höfðu verið, sýnist mér, af því að eg hefi og sjálfur gjörvallt numið af upphafi, að eg skrifaði þér innilega og skikkanlega til, minn góði Teófíli, svo að þú kynnir sannan grunn þeirra orða sem þér eru undirvísuð. Á dögum Heródis, konungs af Júdea, var sá kennimaður er Sakarías er nefndur af stéttum Abía. Og hans húsfrú var af dætrum Arons, sú er hét Elísabet. En þau voru bæði réttlát fyrir Guði og gengu í öllum boðorðum og réttlætingum Drottins óstraffanlega.
Þau áttu ekki barn því að Elísabet var óbyrja, og bæði voru þau öldruð. En svo bar til þá Sakarías átti að flytja prestlegt embætti (fyrir Guði) eftir tilskikkan sinnar stéttar og siðvenju kennimannsskaparins, og er honum hlotnaðist að hann skyldi veifa reykelsinu, gekk hann inn í musteri Drottins. Og allur fólksfjöldinn var fyrir utan og baðst fyrir um reykelsisveifunartímann. En honum birtist þá engill Drottins, standandi á hægra veg altarisins, þess er reykelsið var yfir borið. Og Sakarías varð hræddur er hann sá hann, og miklum ótta þá sló yfir hann. En engillinn sagði til hans: Óttast þú eigi,Sakaría, því að þín bæn er alheyrð.
Og Elísabet, eiginkona þín, mun þér son fæða, og hann skalt þú Jóhannes að nafni kalla. Og það mun þér fögnuður og gleði, og margir munu fagna af hans burðartíð því að hann mun verða mikill fyrir Guði. Vín og áfengan drykk mun hann eigi drekka, og þegar frá móðurkviði mun hann uppfylltur verða af helgum anda. Og marga af sonum Íraels mun hann snúa til Guðs, Drottins sjálfra þeirra. Og hann mun fyrir honum fara í anda og krafti Elíe, að hann snúi hjörtum feðra til sona og vantrúuðum til kænsku réttlátra, að til búa svo Drottni algjört fólk. Og Sakarías sagði til engilsins: Af hverju skal eg það vita? Því að eg em gamall og húsfrú mín er komin til ára sinna.
Engillinn svaraði og sagði til hans: Eg em Gabríel sá er frammi fyrir Guði stendur. Og eg em sendur að tala við þig og að boða þér þetta. Og sjá, að þú munt mállaus verða og eigi talað geta allt til þess dags hvenær þetta mun fram koma, fyrir því að þú trúðir ei mínum orðum, þau er upp munu fyllast á sínum tíma. Fólkið beið og eftir Sakaría og undraðist hvað hann dvaldi í musterinu. En er hann gekk út, gat hann ei talað við þá, og þeir þóttust þá vita að hann mundi sýn séð hafa í musterinu. Hann benti þeim og var mállaus. Það skeði og þá er liðnir voru dagar hans embættis að hann gekk til síns heimkynnis.
En eftir þá daga varð hans húsfrú Elísabet þunguð og leyndi á sér fimm mánuði og sagði: Þannig gjörði Guð við mig á þeim dögum hann leit til mín er hann vildi burt taka mitt hneyksli, það eg bar á millum manna. En á hinum sétta mánaði var Gabríel engill sendur af Guði í þá borg í Galílea sem nefndist Naðaret til þeirrar meyjar er föstnuð var þeim manni eð Jósef hét af húsi Davíðs, og heiti meyjarinnar var María. Og engillinn gekk inn til hennar og sagði: Heil sért þú náðarfulla. Drottinn er með þér. Blessuð ert þú á meðal kvenna. En þá hún sá hann, varð hún hrædd af hans orðum og hugleiddi að hvílík væri þessi kveðja.
Og engillinn sagði til hennar: Óttast þú eigi, María, því að þú fannt náð hjá Guði. Sé, þú munt barn geta í kviði þínum og munt son fæða, og hans nafn skalt þú Jesús kalla. Hann mun mikill verða og kallaður sonur ins hæðsta. Og Guð Drottinn mun gefa honum sæti síns föðurs Davíðs, og hann mun ríkja yfir húsi Jakobs að eilífu, hans ríkis mun og enginn endir verða. Þá sagði María til engilsins: Hverninn má það ske af því eg hefi öngvan mann kennt? Engillinn svaraði og sagði til hennar: Heilagur andi mun koma yfir þig, og kraftur ins hæðsta mun umskyggja þig af því að það hið helga, sem af þér mun fæðast, skal nefnast sonur Guðs.
Og sjáðu, að Elísabet, frændkona þín, hefir og son getið í elli sinni, og þessi er hennar sétti mánuður, sem kölluð var óbyrja, því að Guði er ekkert orð ómáttugt. En María sagði: Sjá, eg em ambátt Drottins. Verði mér eftir orði þínu. Og engillinn veik frá henni.* En á þeim dögum stóð María upp og fór með flýti til fjallbyggða í borgina Júda og gekk inn í hús Sakaríe og heilsaði Elísabet. Og það varð svo þá er Elísabet heyrði heilsun Maríu að barnið spratt upp í hennar kviði, og Elísabet varð full af helgum anda, kallaði hárri röddu og sagði: Blessuð ert þú á meðal kvenna, og blessaður er ávöxtur kviðar þíns. Og hvaðan kemur mér þetta að móðir Drottins míns kemur til mín?
Sjáðu, því að þá er rödd þinnar kveðju kom mér til eyrna, spratt barnið upp af fagnaði í mínum kviði. Og sæl ertu sem trúðir því að það mun fullkomnast hvað þér var heitið af Drottni. Og María sagði: Önd mín miklar Drottin, og gladdist andi minn í Guði, heilsugjafara mínum, því að hann leit á læging ambáttar sinnar. Sjá, af því munu mig héðan af sæla segja allar ættir. Því að hann veitti mér mikið sá er voldugur er, og hans nafn er heilagt. Og hans miskunnsemd er yfir kyni til kyns þeim er hann hræðast. Hann veitti mátt meður sinni hendi og dreifði dramblátum í fyrirhyggju síns hjarta. Volduga setti hann af stóli og upphafði lítilláta. Hungraða fyllti hann auðæfum og ríka lét hann fáfenga.
Hann minntist miskunnar sinnar og meðtók sinn þjón Írael svo sem hann talaði til feðra vorra Abrahams og hans afspringis að eilífu. En María var hjá henni svo nær sem þrjá mánuðu og fór aftur til síns heimkynnis.* En er tími var kominn að Elísabet skyldi fæða, og hún fæddi son. Og er grannar hennar og náfrændur heyrðu að Drottinn hafði miklað miskunn sína við hana, samglöddust þeir henni. Og það skeði að þeir komu á hinum átta degi að umskera sveininn og nefndu hann síns föðurs nafni Sakarías. En móðir hans svaraði og sagði: Öngvaneginn, heldur skal hann Jóhannes heita. Þeir sögðu til hennar: Þar er þó enginn í þinni ætt sem heitir þessu nafni.
En þeir bentu föður hans hvað hann vildi að hann héti, en hann beiddist hnefaspjalds, skrifaði og sagði: Heiti hann Jóhannes. Og þeir undruðust allir. Og jafnskjótt laukst upp hans munnur, og tunga hans talaði, lofandi Guð. Og ótti kom yfir alla hans nágranna, og um allar fjallbyggðir í Júdea víðfrægðust öll þessi orð. Og allir þeir er það heyrðu, settu það sér í hjarta og sögðu: Hver grunar þig að þessi sveinn verði? Því að hönd Drottins var meður honum. Og Sakarías faðir hans fylltist af helgum anda, spáði og sagði: Blessaður sé Guð, Drottinn Íraels, því að hann vitjaði og frelsan gjörði sínu fólki.
Og hann upp reisti vort heilsu horn í húsi þjóns síns Davíðs svo sem hann hefir talað fyrir munn sinna heilagra spámanna, þeirra sem nú eru af heiminum. Hann frelsaði oss í frá óvinum vorum og af hendi allra þeirra sem oss hötuðu. Hann gjörði og miskunnsemd við feður vora og minntist á sinn heilagan sáttmála og á það særi er hann svór föður vorum Abraham að hann gæfi oss sjálfan sig svo að vér, leystir af hendi vorra óvina, þjónuðum honum án ótta, í heilagleik og réttlæti fyrir honum sjálfum, alla daga vora.
Og þú, sveinn, munt kallaður vera spámaður ins hæðsta því að þú munt fyrir renna augliti Drottins að til búa hans vegu og að gefa hans fólki skilning heilsunnar til fyrirgefningar synda þeirra. Fyrir miskunnar iður Guðs vors, í hverjum hann vitjaði vor, upprunninn af hæðum, að birta þeim sem í myrkrum og dauðans skugga sitja, að tilgreiða fætur vora á friðar götu. En sveinninn vóx upp og styrktist í anda og var á eyðimörkum allt til þess dags er hann skyldi auðsýnast Íraels fólki.*