The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 30

Luke · Chapter 2

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 30 of 174 · about 5 min

← Chapter 29Chapter 31 →

[ breyta] En það bar til á þeim dögum að það boð gekk út frá keisaranum Ágústo það heimurinn allur skyldi skattskrifast. Og þessi skattur hófst fyrst upp hjá Kýreno sem þá var landstjórnari í Sýria. Og allir fóru að tjá sig, hver til sinnar borgar. Þá fór og Jósef af Galílea úr borginni Naðaret upp í Júdeam, til Davíðs borgar, sú er kallast Betlehem, af því að hann var af húsi og kyni Davíðs, að hann tjáði sig þar meður Maríu, sinni festarkvon óléttri. En það gjörðist þá þau voru þar að þeir dagar fullnuðust eð hún skyldi fæða. Og hún fæddi sinn frumgetinn son og vafði hann í reifum og lagði hann niður í jötuna því að hún fékk ekkert annað rúm í herberginu.

Og fjárhirðar voru þar í sama byggðarlagi um grandana við fjárhúsin, sem varðveittu og vöktu yfir hjörð sinni. Og sjá, að engill Drottins stóð hjá þeim, og Guðs birti ljómaði kringum þá. Og þeir urðu af miklum ótta hræddir, og engillinn sagði til þeirra: Eigi skulu þér hræðast, sjáið, því að eg boða yður mikinn fögnuð, þann er sker öllum lýð, því í dag er yður lausnarinn fæddur, sá að er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið það til merkis: Þér munu finna barnið í reifum vafið og lagt vera í jötuna.

Og jafnskjótt þá var þar hjá englinum mikill fjöldi himneskra hersveita sem lofuðu Guð og sögðu: Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu og mönnum %góðvilji.* Og þá er englarnir fóru frá þeim aftur til himins, töluðu hirðarnir sín á milli: Göngu vær allt til Betlehem og sjáum þau merki er þar hafa skeð og Drottinn hefir kunngjört oss. Og þeir komu með skunda og fundu Maríu og Jósef og barnið liggja í jötunni. En þá er þeir höfðu það séð, víðfrægðu þeir það orð út sem þeim var sagt af þessu barni. Og allir þeir það heyrðu, undruðust það hvað þeim var af hirðurunum sagt. En María varðveitti öll þessi orð og rótfesti í sínu hjarta.

Og fjárhirðarnir sneru aftur, dýrkandi og lofandi Guð um allt það hvað þeir höfðu heyrt og séð og eftir því sem þeim var til sagt.* Þá átta dagar voru liðnir og að barnið skyldi umskerast, var hans nafn kallað Jesús, hvað er kallað var af englinum áður en að hann var meðtekinn í móðurkviði.* Og þá dagar hennar hreinsunar fullnuðust eftir Móses lögum, höfðu þeir hann til Jerúsalem að þeir á hendur fæli hann Drottni - svo sem skrifað er í lögmáli Drottins að allt hvað karlkyns var, það er fyrst opnaði sinnar móður kvið, þá skyldi kallast Drottni helgað - og að þeir gæfi offrið eftir því sem segist í lögmáli Drottins, tvær turtildúfur eður tvo dúfuunga.

Og sjá, að maður var þar í Jerúsalem sá er Símeon hét. Og þessi sami mann var réttlátur og guðhræddur, bíðandi eftir huggun Íraels, og heilagur andi var meður honum. Símeon hafði og andsvar fengið af helgum anda að hann skyldi eigi dauðann líta nema hann sæi áður fyrri Krist Drottins, og kom af andans tillaðan í musterið.

Og þá er foreldrannir höfðu barnið Jesúm í musterið og gjörðu fyrir honum eftir siðvenju laganna, og hann tók hann þá upp á sína armleggi, lofaði Guð og sagði: Nú láttu, Drottinn, þjón þinn eftir orðum þínum í friði fara því að mín augu hafa séð þitt hjálpráð, þann þú tilreiddir fyrir augliti allra þjóða, ljós til uppbirtingar heiðnum þjóðum og til dýrðar þíns fólks Írael.* Og hans faðir og móðir undruðust það hvað af honum sagðist. Og Símeon blessaði þau og sagði til Maríu móður hans: Sjá, þessi er settur til falls og upprisu margra í Írael og til merkis hverjum í móti mun mælast (það sverð mun í gegnum smjúga sjálfrar þinnar önd) svo að augljós verði hugskots hjörtu margra.

Og þar var þá Anna spákona, dóttir Fanúels, af kyni Aser. Hún var og komin til sinna ára og hafði lifað í sjö ár meður sínum eignarmanni frá meydómi sínum. Og þessi ekkja hafði nær fjóra vetur um áttrætt, hver eð eigi gekk úr musterinu, þjónandi Guði nótt og dag með föstum og bænahaldi. Þessi gekk og samstundis þangað að og prísaði Drottin og sagði af honum til allra þeirra sem lausnarinnar biðu til Jerúsalem. Og er þeir höfðu allt algjört eftir lögmáli Drottins, sneru þau aftur í Galíleam til borgar sinnar Naðaret. En sveinninn vóx upp og styrktist í anda fullur vísdóms, og Guðs náð var með honum.* Hans foreldrar gengu og árlega árs til Jerúsalem í móti páskahátíðinni.

Og þá hann var tólf ára, fóru þau upp til Jerúsalem eftir vana til hátíðarinnar. Og er þeir dagar voru liðnir og þau fóru heimleiðis, bleif barnið Jesús eftir til Jerúsalem. Og hans foreldrar vissu það eigi, en meintu hann væri hjá selskapnum. Og þau voru komin þá eina dagferð og leituðu hans á meðal frænda og kunningja. Og þá er þau fundu hann eigi, hurfu þau aftur til Jerúsalem og leituðu að honum. Og það skeði svo eftir þrjá daga að þau fundu hann í musterinu, sitjandi mitt á millum lærifeðranna, heyrandi þeim yfir og aðspyrjandi þá. En allir þeir er hann heyrðu, undruðust yfir hans skilningi og andsvörum.

Og er þau sáu hann, brá þeim við, og hans móðir talaði til hans: Sonur minn, því breyttir þú svo við okkur? Sjáðu, faðir þinn og eg leituðum harmþrungin að þér. Og hann sagði til þeirra: Hvað er það, að þér leitið að mér? Viti þér eigi að mér byrjar að vera í því sem míns föðurs er? Og þau undirstóðu eigi þessi orð sem hann mælti til þeirra og fór með þeim ofan og kom til Naðaret, var þeim og hlýðugur. Og hans móðir geymdi öll þessi orð í sínu hjarta. Og Jesú jókst aldur og viska og náð hjá Guði og mönnum.*

← Chapter 29Chapter 31 →