The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 8

Matthew · Chapter 8

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 8 of 174 · about 7 min

← Chapter 7Chapter 9 →

[ breyta] Og hann kallaði tólf sína lærisveina til sín og gaf þeim makt yfir óhreina anda að þeir ræki þá út og að þeir læknuðu alls kyns sóttir og öll meinlæti. En þeirra tólf postulanna nöfn eru þessi: Fyrstur er Símon, sá er kallaðist Pétur, og Andrés bróðir hans, Jakob, son Sebedei, og Jóhannes hans bróðir, Filippus, Bartólómeus, Tómas og Matteus tollheimtari og Jakob Alfeison, %Lebbeus er að viðurnefni hét Taddeus, Símon Kananeus og Júdas Skariot sá er forréð hann. Þessa tólf út sendi Jesús, bjóðandi þeim og sagði: Farið eigi á götu heiðinnar þjóðar og gangið eigi inn í borgir samverskra manna, heldur gangið til þeirra fortapaðra sauða af húsi Íraels.

En farið út, predikið og segið það himnaríki tekur að nálgast. Læknið sjúka, hreinsið líkþráa, uppvekið dauða, út rekið djöfla. Fyrir ekkert hafi þér það fengið, gefið það og út fyrir ekkert. Þér skuluð eigi eignast gull eður silfur né peninga hafa í lindum yðar né tösku til vegar og eigi tvo kyrtla, engin skóklæði, öngvan staf. Því að verður er verkmaðurinn sinnar fæðu. En í hverja borg eður kauptún þér inn gangið, spyrjið að hver í henni verðugur sé, og þar hjá þeim sama blífið þar til þér farið burtu þaðan. En nær þér inn gangið í húsið, heilsið því, og ef það sama hús er þess verðugt, mun yðar friður koma yfir það, en ef það er þess eigi verðugt, mun yðar friður til yðar aftur hverfa.

Og hver hann meðtekur yður eigi og eigi heyrir yðvarri ræðu, gangið út af því húsi eða borg og hristið duftið af fötum yðrum. Sannlega segi eg yður að bærilegra mun verða landinu Sódóme og Gómorre á dómsdegi, heldur en þeirri sömu borg. Sjáið, eg sendi yður svo sem sauði í millum varga. Fyrir því verið forsjálir svo sem höggormar og einfaldir sem dúfur. En varið yður við þeim mönnum; því að þeir munu ofurselja yður fyrir sín ráðhús, og í sínum samkunduhúsum munu þeir yður strýkja. Þér munuð leiddir verða fyrir kónga og landshöfðingja til vitnis yfir þá og fyrir heiðinn lýð.

En nær eð þeir framselja yður, verið eigi hugsjúkir fyrir hverninn eða hvað þér skuluð tala; því að það mun yður á þeirri stundu gefið verða hvað þér eigið að tala. Því að þér eruð eigi þeir sem tala, heldur andi yðvars föðurs sá er talar fyrir yður. En bróðir mun selja bróður í dauða og faðir soninn. Og niðjarnir munu upp rísa í móti foreldrunum og þeim fjörræði veita. Og þér verðið að hatri hafðir af öllum mönnum fyrir míns nafns sakir. En hver hann er staðfastur allt til enda, sá mun hólpinn verða.* En nær þeir ofsækja yður í þeirri borg, flýið í aðra. Sannlega segi eg yður að þér munuð eigi fullkomnað geta borgirnar í Írael þar til að mannsins sonur hann kemur.

Eigi er lærisveinninn yfir meistaranum og ekki þjóninn yfir sínum herra. Nægist lærisveininum að hann sé svo sem hans meistari og þjóninum sem hans herra. Ef þeir hafa húsföðurinn Beelsebúb kallað, hve miklum mun meir munu þeir þá hans heimamenn svo kalla? Af því óttist þá eigi. Því að ekkert er svo hulið að eigi verði augljóst og eigi svo leynt að ei vitist. Hvað eg segi yður í myrkri, það talið í ljósi, og hvað þér heyrið í eyra, það predikið á ræfrum. Hræðist eigi þá sem líkamann aflífa og sálina geta eigi líflátið, heldur hræðist þann framar sem sálu og líkama getur tortýnt til helvítis. Kaupast eigi tveir skógarþrestir fyrir pening?

Og eigi fellur einn af þeim á jörð án yðvars föðurs vild. Svo eru einninn öll yðar höfuðhár talin. Fyrir því óttist eigi, þér eruð mörgum skógarþröstum betri. Fyrir því hver hann meðkennir mig fyrir mönnum, þann mun eg meðkenna fyrir mínum föður sem á himnum er. En hver hann afneitar mig fyrir mönnum, þeim mun eg afneita fyrir mínum föður sem á himnum er. Þér skuluð eigi meina að eg sé kominn frið að senda á jörðina. Eigi kom eg frið að senda heldur sverð. Því að eg em kominn að ýfa manninn í móti föður sínum og dótturina í gegn móður sinni og sonarkonuna í gegn móður manns síns. Og mannsins óvinir eru hans eigin hjú.

Hver hann elskar föður og móður meir en mig, sá er mín eigi verðugur, og hver hann elskar son eður dóttir yfir mig, sá er mín eigi verðugur. Og hver hann tekur eigi sinn kross á sig og fylgi mér eftir, sá er mín eigi verðugur. Hver eð finnur sitt líf, sá mun týna því, og hver sínu lífi týnir minna vegna, hann mun það finna. Hver hann meðtekur yður, sá meðtekur mig, og hver mig meðtekur, hann meðtekur þann sem mig sendi. Hver hann meðtekur spámann í spámanns nafni, sá fær spámanns laun, og hver hann meðtekur réttlátan í réttláts nafni, sá fær réttláts laun.

Og hver hann gefur einum af þessum vesalingum kaldan vatsbikar að drekka í lærisveins nafni, sannlega segi eg yður að eigi missir hann sín verðlaun. Ellifti kapítuli [ breyta] Og það skeði er Jesús hafði lyktað þessar boðanir til sinna tólf lærisveina, gekk hann þaðan að kenna og predika í þeirra borgum. En þá Jóhannes heyrði í fjötrunum verk Krists, sendi hann tvo af sínum lærisveinum og lét segja honum: Ertu sá sem koma mun eða eigu vér annars að bíða? Jesús svaraði og sagði til þeirra: Fari þér og kunngjörið Jóhanni aftur hvað þér sjáið og heyrið: Blindir sjá, haltir ganga, líkþráir hreinsast, daufir heyra, dauðir upprísa, og fátækum verða guðsspjöllin boðuð.

Og sæll er sá sem eigi hneykslar sig á mér. En að þeim burtgengnum hóf Jesús að segja til fólksins af Jóhanni: Hvað fóruð þér á eyðimörk að sjá? Vildu þér sjá reyr vindi skekinn? Eða hvað fóru þér út að sjá? Vildu þér sjá mjúkklæddan? Sjáið, þeir eð mjúkan klæðnað bera, eru í kóngahúsum. Eða hvað fóru þér út að sjá? Vildu þér spámann sjá? Eg segi yður fyrir sann, þann meiri er en nokkur spámann, því að þessi er, af hverjum skrifað er: Sjá, eg sendi minn engil fyrir þínu augliti, sá er þinn veg skal tilreiða fyrir þér.* Sannlega segi eg yður. Á meðal þeirra, sem af konum eru fæddir, er eigi annar upp um kominn sá meiri sé en Jón baptista. En hann, sem minnstur er í himnaríki, er honum meiri.

En í frá dögum Jóhannis baptista allt til þess nú er komið, þolir himnaríki ofurefli, og þeir sem ofureflið gjöra, hrifsa það til sín. Því að allir spámenn og lögmálið spáðu til Jóhannis. Ef þér viljið það meðtaka, þá er hann Elías sá er koma skal. Hver eyru hefir að heyra, hann heyri.* En hverju skal eg þessari kynslóð forlíkja? Lík er hún þeim börnum sem sátu á torgi, hver eð kölluðu til sinna líka og sögðu: Vær höfum yður í pípur blásið, og þér vilduð eigi dansa, vær þuldum yður vorar raunir, og þér grétuð eigi. Jóhannes er kominn, át eigi og drakk eigi, og þeir segja hann hafi djöful.

Mannsins son er kominn, át og drakk, og þeir segja: Sjáið ofátsmanninn og vínsvelgjarann, vininn tollheimtumanna og syndugra. Og spekin hlýtur svo að réttlætast láta af sínum niðjum. Þá tók hann að formæla borgunum, í hverjum gjörð voru flest hans kraftaverk og höfðu þó eigi betrað sig. Vei þér, Korasin. Vei þér, Betsaida. Því að ef í Týro og Sídon hefði gjörst þau kraftaverk sem í yður hafa gjörst, hefði þeir forðum í sekk og ösku iðran gjört. En þó segi eg yður að Týro og Sídon mun bærilegra vera á dómsdegi heldur en yður. Og þú Kapernaum, sem allt til himins ert upp hafin, munt niður þrykkjast allt til helvítis.

Því að ef í Sódóma hefði þau kraftaverk gjörst sem í þér hafa gjörð verin, kann vera að þær hefði staðið allt til þessa dags. En þó segi eg yður það að bærilegra mun vera landi Sódómu á dómadegi en þér.* Á þeim sama tíma andsvaraði Jesús og sagði: Eg prísa þig faðir, herra himins og jarðar, að þú duldir þetta fyrir spekingum og forvitringum og opinberaðir það smælingjum. Að sönnu, faðir, því að svo var það þekkt fyrir þér. Allir hlutir eru mér ofurgefnir af mínum föður, og enginn kennir soninn nema faðirinn, og enginn kennir föðurinn nema sonurinn, og hverjum eð sonurinn vill það opinbera. Komið til mín allir þér sem erfiði drýgið og þunga eruð hlaðnir, og eg mun endurnæra yður.

Takið á yður mitt ok og lærið af mér því að eg em hógvær og af hjarta lítillátur, og munu þér hvíld finna sálum yðrum. Því að mitt ok er sætt og minn þungi er léttur.*

← Chapter 7Chapter 9 →