The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 7

Matthew · Chapter 7

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 7 of 174 · about 4 min

← Chapter 6Chapter 8 →

[ breyta] Og er Jesús sté á skip, fór hann yfir um aftur og kom í sína borg. Og sjá, að þeir færðu til hans iktsjúkan mann, sá er í sæng lá. En sem Jesús leit þeirra trú, sagði hann til hins iktsjúka: Þínar syndir eru þér fyrirgefnar. Og sjá, að nokkrir af skriftlærðum sögðu með sjálfum sér: Þessi guðlastar. Og sem Jesús sá þeirra hugsanir, sagði hann: Hvar fyrir hugsi þér svo vont í yðrum hjörtum? Hvort er auðveldara að segja: Þér eru þínar syndir fyrirgefnar, eða að segja: Statt upp og gakk? En svo að þér vitið það er mannsins son hefir makt á jörðu syndir að fyrirgefa, - þá sagði hann til hins iktsjúka: Statt upp, tak ílegu þína og gakk í þitt hús. Og hann stóð upp og fór í sitt hús.

En þá fólkið sá þetta, undraðist það og prísaði Guð, sá er þvílíka makt hafði mönnum gefið.* Og er Jesús gekk þaðan, sá hann mann sitja í tollbúðinni, Matteum að nafni, og sagði til hans: Fylg þú mér. Og hann stóð upp og fylgdi honum eftir. Og það skeði er hann sat til borðs í húsinu, sjá, að margir tollheimtumenn og bersyndarar komu og settu sig til borðs með Jesú og hans lærisveinum. Og er farísei sáu það, sögðu þeir til hans lærisveina: Því etur yðar meistari með tollheimturum og glæpamönnum? En þá Jesús heyrði það, sagði hann til þeirra: Megendur hafa eigi læknarans þörf, heldur þeir sem vanmegna eru. En fari þér og nemið hvað það er (að miskunn hefi eg þókknan og eigi að offri).

Því að eigi kom eg að kalla réttláta, heldur synduga til iðranar.* Þá gengu Jóhannis lærisveinar til hans og sögðu: Hvar fyrir föstu vér og farísei svo tíðum, en þínir lærisveinar fasta eigi? Jesús sagði til þeirra: Eigi mega brúðgumabörnin þvingan líða svo lengi sem brúðguminn er með þeim En þeir dagar munu koma eð brúðguminn mun frá þeim takast, og þá munu þeir fasta. Enginn setur bót af nýju klæði á gamalt fat því að bótin gliðnar frá fatinu aftur, og verða svo slitin verri. Og eigi láta þeir nýtt vín í forna leðurbelgi, annars sprengjast belgirnir, og vínið spillist, og belgirnir fordjarfast, heldur láta þeir nýtt vín í nýja belgi, og verði svo bæði samt forvarað.

Og sem hann var þetta að tala við þá, sjá, að foringi nokkur gekk að og kraup fyrir honum niður og sagði: Herra, dóttir mín er ný sáluð; því kom og legg þína hönd yfir hana, og mun hún lifna. Jesús stóð upp og fylgdi honum eftir og svo hans lærisveinar. Og sjá, að kona, hver eð í tólf ár hafði blóðfall haft, gekk á bak til við hann og snerti fald hans klæða. Því að hún sagði með sjálfri sér: Ef eg mætta aðeins snerta hans klæðnað, munda eg heil verða. En Jesús snerist við, leit á hana og sagði: Vert glöð dóttir, þín trúa gjörði þig hólpna. Og konan varð heil á þeirri sömu stundu. Og er Jesús kom í foringjans hús og sá spilmennina og ys fólksins, sagði hann til þeirra: Farið frá.

Því að stúlkan er eigi dauð, heldur sefur hún. Og þeir dáruðu hann. En er fólkið var út drifið, gekk hann þar inn og greip um hönd hennar, og stúlkan stóð upp. Og þetta rykti barst út um allt það sama land.* Og er Jesús gekk burt þaðan, fylgdu honum eftir tveir menn blindir, þeir eð kölluðu og sögðu: Ó, þú sonur Davíðs, miskunna oss. En er hann kom inn í húsið, gengu hinir blindu til hans. Jesús sagði til þeirra: Trúi þér að eg kunni að gjöra yður þetta? Þeir sögðu til hans: Að vísu, lávarður. Þá snart hann þeirra augu og sagði: Verði yður eftir trú ykkari. Og þeirra augu lukust upp. Og Jesús ógnaði þeim og sagði: Sjáið til að það viti eigi nokkur.

En er þeir gengu burt þaðan, báru þeir hans rykti út um allt það land. En þá þessir voru út gengnir, sjá, höfðu þeir til hans þann mann sem dumbi var og djöfulóði. Og að út reknum djöflinum talaði hinn mállausi. Og fólkið undraðist það og sagði: Aldri hefir slíkt séð verið í Írael. En farísei tóku að segja það hann ræki djöful út fyrir djöflahöfðingjann. Og Jesús gekk um kring í öllum borgum og kauptúnum, kennandi í þeirra og [sic] samkunduhúsum, predikaði evangelium ríkisins og læknaði allar sóttir og öll krankdæmi með fólkinu. Og er hann leit fólkið, sá hann aumur á því, því að þeir voru hungurmorða vorðnir og tvístraðir sem þeir sauðir er öngvan hirði hafa.

Hann sagði þá til sinna lærisveina: Að sönnu er kornskeran mikil, en verkmennirnir fáir. Fyrir því biðjið herrann kornskerunnar að hann sendi verkmenn í sína kornskeru.

← Chapter 6Chapter 8 →