The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 100

Ephesians · Chapter 1

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 100 of 174 · about 2 min

← Chapter 99Chapter 101 →

[ breyta] Páll apostuli Jesú Kristi fyrir Guðs vilja þeim heilögum sem eru til Efeso og trúuðum á Kristum Jesúm. Náð sé með yður og friður af Guði vorum föður og Drottni Jesú Kristo. Blessaður sé Guð og faðir vors Drottins Jesú Kristi, sá oss hefir blessað með alls háttaðri andlegri blessan í himneskri auðlegð fyrir Kristum svo sem hann útvaldi oss fyrir þann sama áður en veröldin var grundvölluð það vér skyldum vera heilagir og óstraffanlegir fyrir honum í kærleikanum og hefir fyrirhugað oss í sonarleifðina til sjálfs síns fyrir Jesúm Kristum eftir þókknan síns vilja til lofs sinni dýrðarlegri náð, fyrir hverja hann hefir oss þakknæma gjört í sínum elskulega syni.

Í hverjum vér höfum endurlausnina fyrir hans blóð sem er syndanna fyrirgefning eftir ríkdómi hans náðar sem oss er gnóglegana út skipt í alls háttuðum vísdómi og forsjáleik og hefir oss vita látið leyndan dóm síns vilja eftir sinni þókknan og hefir þann sama hér fram flutt fyrir hann það hann yrði predikaður þá uppfylling tímanna væri komin upp á það að hann upprétti alla hluti í Kristo, bæði þá sem á himnum og á jörðu eru, fyrir hann sjálfan, fyrir hvern vær erum einninn til arfskiptis komnir, vér sem erum áður fyrirfram fyrirhugaðir eftir forsjó þess sem alla hluti verkar eftir ráði síns vilja upp á það vér séum hans dýrð til lofs sem áður fyrirfram vonum upp á Kristum.

Fyrir hvern þér hafið heyrt sannleiksins orð sem er evangelium af yðvarri sáluhjálp, fyrir hvert (ef þér trúið) eruð innsiglaðir með heilögum fyrir heitsins anda, sá sem að er pantur vorrar arfleifðar til endurlausnar svo að vér erum vorðnir hans fasta eign til lofs hans dýrðar.

Hvar fyrir eg einninn, eftir því að eg hefi heyrt hjá yður út af þeirri trú á Drottin Jesúm og af yðrum kærleika til allra heilagra, þá læt eg eigi af þakkir að gjöra fyrir yður og minnunst yðar í mínum bænum það Guð vors Drottins Jesú Kristi, dýrðarinnar faðir, gefi yður vísdómsins og uppbirtingaranda til hans eiginnar viðurkenningar og upplýsi augu yðvars hugskots það þér megið vita hver þar sé von yðrar kallanar og hver þar sé ríkdómur hans dýrðarfullrar arfleifðar til sinna heilagra og hver þar sé hin yfirgnæfanlega stærð hans kraftar við oss, vér sem trúum, eftir verkan hans volduga styrkleiks sem hann hefir verkað í Kristo þá hann uppvakti hann af dauða og setti til sinnar hægri handar á himnum yfir allan höfðingskap, valdsstétt, makt og herradóm og allt hvað nefnast má, eigi einasta í þessari veröld, heldur jafnvel í tilkomandi.

Og alla hluti hefir hann honum undir fætur lagt og sett hann höfuð yfir allan söfnuðinn, hver að er hans líkami og fylling hans sem alla hluti í öllum uppfyllir.

← Chapter 99Chapter 101 →