Ephesians · Chapter 2
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 101 of 174 · about 2 min
[ breyta] Og einninn yður þá þér voruð dauðir fyrir afbrot og syndir, í hverjum þér hafið forðum daga gengið eftir hætti þessarar veraldar og eftir þeim höfðingja sem í loftinu drottnar sem er eftir þeim anda er á þessari tíð hefir sína verkan í börnum vantrúarinnar, meðal hverra vér höfum allir forðum haft vort athæfi í girndum vors holds, fremjandi holdsins og hugskotsins vilja og vorum af náttúru börn reiðinnar líka svo sem hinir aðrir.
En Guð sá auðigur er af miskunn fyrir sína mikla elsku þar hann hefir oss með elskað þá vér vorum dauðir í syndunum, hefir hann gjört oss lifandi meður Kristi (því að af náðinni eru þér hjálplegir vorðnir) og uppvakt oss meður honum og sett oss meður honum meðal himneskra í Kristo Jesú upp á það hann auðsýndi í eftirkomandi öld yfirgnæfanlegan ríkdóm sinnar náðar fyrir sína góðgirni viður oss í Kristo Jesú. Því að af náðinni eru þér hjálplegir vorðnir fyrir trúna, og það ekki af yður. Guðs gáfa er það, eigi af verkunum svo að enginn hrósi sér. Því að vér erum hans verk, skapaðir í Kristo Jesú til góðra verka, til hverra að Guð hefir oss áður forðum fyrir búið það vér skyldum þar inni ganga.
Hvar fyrir að verið þess minnugir það þér sem forðum daga voruð heiðnar þjóðir eftir holdinu og yfirhúð kölluð af þeim sem kallaðir eru umskurn eftir holdinu sem með hendinni sker það þér voruð í þann sama tíma án Krists framandi og fráskildir borgarrétti Íraels og ókenndir af testamento fyrirheitsins af því þér höfðuð ekkert hop og voruð án Guðs í þessum heimi. En þér sem í Kristo Jesú eruð og forðum voruð í fjarska, þá eruð nú nálægir vorðnir fyrir blóð Kristi.
Því að hann er vor friður, sá út af hvoru tveggja gjörir eitt og af hefir brotið þann túngarð sem þar var milli í því það hann burt tók fyrir sitt hold þann óvinskap sem fyrir lögmálið var í boðorðunum til settur svo að hann skapaði af tveimur einn nýjan mann í sjálfum sér og gjörði svo frið það hann forlíkti hvoru tveggju við Guð í einum líkama fyrir krossinn og deyddi svo óvinskapinn fyrir sig sjálfan og er kominn og kunngjörði yður í evangelio þann frið, yður sem voruð fjarri og hinum sem nærri voru. Því að fyrir hann höfum vér hvorir tveggju aðgang í einum anda til föðursins.
Svo eru þér nú eigi meir gestir og framandi, heldur samborgarmenn heilagra og Guðs heimamenn, uppbyggðir yfir grundvöll postula og spámanna þar Jesús Kristus er hyrningarsteinninn, á hverjum öll uppbyggingin í eitt saman sett vex til heilags mustéris í Drottni, upp á hvern þér verðið einninn með upp á byggðir til Guðs íbúðar í andanum.