Galatians · Chapter 5
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 99 of 174 · about 4 min
[ breyta] Svo standið nú í því frelsi þar Kristur hefir frelsað oss með, og látið ekki færa yður aftur í það þrældómsokið. Sjáið, eg, Páll, segi yður það ef svo er að þér látið umskera yður, þá er Kristur ekki yður nytsamur. Eg vitna enn sérhverjum manna það aftur sem sig lætur umskera að hann er enn nú allt lögmálið skyldugur að gjöra. Þér eruð Kristi fráskildir sem fyrir lögmálið viljið réttlátir vera og eruð náðinni fráfallnir. En vér vonum í andanum fyrir réttlætisins trúna, hverja vér hljótum að vona. Því að í Kristo Jesú gildir hvorki umskurn né yfirhúð nokkuð, heldur sú trúa sem fyrir kærleikinn verkar. Þér hlupuð fínlega. Hver aftraði yður sannleiknum eigi að hlýða?
Þessi fortala er eigi af honum sem yður hefir kallað. Lítið súrdeig sýrir allt deigið. Eg forsé mig þess til yðar í Drottni það þér munuð ekki öðruvís sinnaðir vera. En hver yður villir, sá mun bera sinn dóm. Hann sé hver hann vill. En eg, kærir bræður, ef eg predika nú umskurnina, hvar fyrir líð eg þá ofsóknina? Þá er og af skafin krossins hneykslan. Gæfa Guð það þeir yrði og afsniðnir sem yður sturla. En þér, kærir bræður, eruð til frelsisins kallaðir. Einasta sjáið svo til það þér gefið fyrir frelsið holdinu ekkert tilefni, heldur fyrir kærleikann, þá þjóni hver öðrum. Því að öll lög verða í einu orði uppfyllt, í því: Elska þinn náunga sem sjálfan þig.
En ef svo er það þér tönnlið og tyggið hver annan innbyrðis, þá sjáið til það hver yðar svelgist ekki af öðrum. En eg segi: Gangið í andanum. Þá munu þér ekki fullkomna holdsins girndir. Því að líkaminn girnist í móti andanum og andinn í móti líkamanum. Og þessir eru hvor í móti öðrum svo þér gjörið ekki hvað þér viljið. En ef andinn stjórnar yður, þá eru þér ekki undir lögmálinu.
Því holdsins verk eru opinber svo sem að er hórdómur, frillulifnaður, saurlífi, lausung, skurgoðadýrkan, fjölkynngi, fjandskapur, hat, agg, reiði, þræta, sundurþykkja, tvídrægni, öfundskapur, manndráp, ofdrykkja, ofát og þessu líkt, út af hverjum eg hefi áður fyrri sagt og segi enn nú fyrir það þeir sömu sem þetta gjöra, erfa ekki Guðs ríki. En hér í gegn er ávöxtur andarins, kærleiki, fögnuður, friður, þolinmæði, blíðleiki, góðgirni, trú, hógværð, hreinlífi. Í gegn slíkum er ekki lögmálið.
Því þeir sem Kristi tilheyra, krossfesta sitt hold með girndum og tilhneigingum. * Sétti kapítuli [ breyta] Fyrst vér lifum í andanum, þá göngum og einninn í andanum og verum eigi ágjarnir hégómadýrðar hver annan innbyrðis að reita og að öfunda. Kærir bræður, ef maðurinn verður í einhverjum glæp hindraður, þá leiðréttið hann með hógværum anda, þér sem eruð andlegir. Og haf gát á sjálfum þér það þú verðir ekki freistaður. Einn beri annars byrði og svo munu þér uppfylla Krists lögmál. En ef einhver lætur sér þykja það hann sé nokkuð (sem hann er þó ekkert), sá tælir sjálfan sig.
Hver einn reyni sín eigin verk, og þá man hann á sjálfum sér hrósan hafa, og eigi á einum öðrum því að hver einn man sína byrði bera. En sá er leiðréttur verður með orðinu, hann býti honum allsháttuðum auðæfum sem hann leiðréttir. Farið eigi villir vega. Guð lætur ekki að sér hæða. Því hvað maðurinn sáir niður, það man hann uppskera. Hver á holdið sáir niður, sá man af holdinu skaðsemi uppskera, en hver í andanum niður sáir, sá mun af andanum uppskera eilíft líf. Þreytunst vér eigi gott að gjöra því að sínum tíma munu vér einninn óþrotnandi uppskera.
Fyrst vér höfum nú tíðina, þá gjörum gott hverjum manni, einna mest þeim sem er trúarinnar heimkynni. * Sjáið, hve mörg orð eg skrifaði yður með eiginni hendi. Þeir eð sig vilja þakknæma gjöra eftir holdinu, þeir þvinga yður til að umskerast einasta upp það þeir verði eigi með krossi Krists ofsóktir. Því að þeir sjálfir sem sig láta umskera, halda ekki lögmálið, heldur vilja þeir það að þér látið umskera yður svo að þeir megi hrósa sér af yðru holdi. En fjarri mér sé að hrósast nema einasta í krossi vors Drottins Jesú Kristi, fyrir hvern mér er heimurinn festur og eg heiminum. Því að í Kristo Jesú dugir hvorki umskurn né yfirhúð nokkuð, heldur ný skepna.
Og svo margir sem eftir þessari %reglu ganga, yfir þeim sé friður og miskunn og yfir Írael Guðs. Hér eftir gjöri mér enginn meiri mæðu því að eg ber jafnan benjar Drottins á mínum líkama. Náð vors Drottins Jesú Kristi sé með yðrum anda, kærir bræður. Amen. Til þeirra í Galatia sendur af Róma.