Ephesians · Chapter 3
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 102 of 174 · about 2 min
[ breyta] Hvar fyrir eg, Páll, bandingi Kristi Jesú fyrir yður heiðingja, að því þér hafið heyrt út af embætti Guðs náðar, þeirri mér er til yðar gefin, það mér er kunnur vorðinn þessi leyndur dómur fyrir opinberan (eftir því eg hefi áður hið allra stysta skrifað) það þér, ef þér læsuð það, kunnið að merkja minn skilning í leyndum dómi Kristi, hver ekki er forðum mannanna sonum kunngjörður svo sem nú er hann opinberaður hans heilögum postulum og spámönnum fyrir andann það að hinir heiðnu eru samarfar og samlifaðir og hluttakendur hans fyrirheits í Kristo fyrir evangelion, hvers þénari eg em vorðinn eftir gáfu Guðs náðar sem mér er gefin eftir hans volduga krafti.
Mér, hinum síðsta meðal allra heilagra, er gefin þessi náð það eg kunngjörða meðal heiðinna þjóða þann óútspyrjanlegan ríkdóm Kristi og upp að birta hverjum manni hver þar sé sameign leyndardómsins sem af veraldar upphafi er í Guði hulinn verið, sá alla hluti hefir skapað fyrir Jesúm Kristum upp á það hann kunngjörðist nú höfðingjum og herradómum á himnunum fyrir söfnuðinn þá margfalda speki Guðs eftir fyrirhyggjunni frá veraldar upphafi sem hann hefir auðsýnt í Kristo Jesú vorum Drottni, fyrir hvern vér höfum djörfung og aðgang í öllu trausti fyrir trúna á hann. Fyrir því bið eg það þér tregist ekki vegna minnar hörmungar sem eg þoli fyrir yður, hver yðar dýrð er.
Hvar fyrir eg beygi mín kné fyrir föður vors Drottins Jesú Kristi, sá sem réttur faðir er yfir allt, hvað faðir kallast á himnum og á jörðu, að hann gefi yður kraft eftir ríkdómi sinnar dýrðar, að styrkjast fyrir hans anda í hinum innra manni og láta Kristum fyrir trúna búa í yðrum hjörtum og fyrir kærleikinn innrætast og grundvallast svo að þér mættuð höndla með öllum helgum hver þar sé vídd og lengd, dýpt og hæð, og að vita einninn kærleika Krists sem þó alla viðurkenning yfirgengur svo að þér uppfylltust með alls háttaðri Guðs gnægð.
En honum sem máttugur er alla hluti yfirgnæfanlegar að gjöra heldur en vér biðjum eður skiljum eftir þeim krafti sem í oss verkar, þeim sama sé dýrð í safnaðinum, sá í Kristo Jesú er um allar aldir alda að eilífu. Amen. *