The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 103

Ephesians · Chapter 4

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 103 of 174 · about 3 min

← Chapter 102Chapter 104 →

[ breyta] Svo áminni eg yður nú, eg bandingi í Drottni, að þér gangið svo sem verðugt er yðvarri kallan þar þér eruð inni kallaðir með öllu lítillæti og hógværi og með þolinmæði og umlíðið hver annan í kærleika. Og verið kostgæfnir að halda eindregni í andanum fyrir band friðarins. Einn líkami og einn andi svo sem að þér eruð kallaðir upp á eina von yðrar kallanar. Einn Drottinn, ein trúa, ein skírn, einn Guð og faðir allra, sá sem að er yfir yður öllum og fyrir yður öllum og í yður öllum. * En einum sérhverjum vorum er gefin náð eftir mæling gjafar Kristi, hvar fyrir að hann segir: Hann er upp farinn í hæðina og hefir %herleiðingina að herfangi tekið og mönnum gáfur gefið.

En það hann er upp farinn, hvað er það utan það hann er áður niður stiginn í hinar yðstu álfur jarðar? Sá er niður er stiginn, það er, hann er sá sami sem upp er farinn yfir alla himna upp á það hann alla hluti uppfyllti.

Og suma hefir hann sett til postula, en suma til spámanna, suma til guðsspjallara, suma til hirðara og lærifeðra svo að hinir heilögu sé fullkomnir í verk þess embættis þar sem líkami Krists verður upp á byggður þar til vér komum allir í eindrægni trúarinnar og viðurkenningar Guðs sonar og fullgjörður maður verðum, sá hann er í mæling fullkomins aldurs Kristi, svo að vér séum eigi lengur börn og látum hræra oss og feykja af allsháttuðum vindi lærdómsins fyrir prettskap og undirhyggju mannanna þar með þeir ástunda oss að villa.

Verum heldur sannleiknum eftirfylgjandi í kærleikanum og vöxum í öllu á honum sem að er höfuðið, Kristur, á hverjum allur líkaminn saman tengist og einn limur á öðrum hengur fyrir alla liðu, hvar af hver öðrum hjálp veitir eftir verki hvers sem eins lims í sinn máta og gjörir það að líkaminn vex til sinnar eiginnar betrunar og það allt í kærleika.

Svo segi eg nú og vitna í Drottni að þér gangið eigi lengur svo sem að hinir aðrir heiðingjar í hégómleik síns hugskots, hverra hugskot formyrkvað er og eru annarlegir frá því lífi sem af Guði er fyrir þá fávisku sem í þeim er og blindleik sjálfs þeirra hjarta, hverjir vonarlausir eru og sig gáfu í lausung og frömdu allsháttaðan óhreinleik með ágirni. En þér hafið ekki svo numið Kristum ef þér hafið annars af honum heyrt og eruð í honum lærðir hversu það sannindin eru í Jesú.

Svo afleggið í frá yður eftir fornri breytni hinn gamla mann sem sig fordjarfar í girndum villudómsins, en fornýið yður í anda yðvars hugskots og klæðist þeim nýja manni sem eftir Guði er skapaður í sannarlegu réttlæti og heilagleik. Hvar fyrir afleggið lygar og talið sannleik hver við sinn náunga því að vér erum innbyrðis hver annars limur. Reiðist og syndgist ekki. Látið eigi sólina undir ganga yfir yðvarri reiði. Gefið og ekkert rúm fjandanum.

Hver stolið hefir, sá steli nú eigi meir, heldur erfiði og afli með höndunum hvað góðslegt er svo að hann hafi að gefa þeim sem þurftugir eru. * Látið öngva vonda ræðu fram fara af yðrum munni, heldur hvað nytsamlegt er til betrunar þar sem þörf gjörist að það sé þakknæmilegt að heyra. Og hryggvið ekki heilagan anda Guðs þar þér eruð með innsiglaðir upp á dag endurlausnarinnar. Allur beiskleiki og grimmd, r guðlastan sé langt í frá yður samt allri illsku. En verið innbyrðis hver við annan vingjarnlegir og ástúðlegir og fyrirgefið hver öðrum líka svo sem að Guð hefir fyrirgefið yður í Kristo.

← Chapter 102Chapter 104 →