The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 104

Ephesians · Chapter 5

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 104 of 174 · about 5 min

← Chapter 103Chapter 105 →

[ breyta] Svo verið nú Guðs eftirfylgjarar svo sem kærustu börn og gangið í ástseminni líka svo sem að Kristur hefir oss elskað og sig sjálfan útgefið fyrir oss til fórnfæringar og offurs Guði í sætleiksilm. En frillulífi og allan óhreinleik eður ágirni látið eigi af yður segjast svo sem að heilögum hæfir, skammarleg orð og fíflslegt hjal eða keskni, hvað yður heyrir ekki, heldur miklu framar þakkargjörð. Því það skulu þér vita það enginn frillulífismaður eður óhreinn eða ágjarn (hver að er skurgoðaþénari) hefir arftöku í ríki Kristi o reiði Guðs yfir börn vantrúarinnar. Af því verið eigi þeirra hluttakarar. Því að þér voruð forðum myrkur, en nú eru þér ljós í Drottni.

Gangið svo sem börn ljóssins. Því ávöxtur ljóssins er allsháttuð góðgirni, réttlæti og sannleikur.* Og reynið hvað þar þakknæmt sé Drottni. Og hafið ekkert samlag við ófrjósamleg verk myrkvanna, en straffið þau miklu heldur. Því hvað heimulegt sker af þeim er skammarlegt að segja. En allt það verður opinbert nær það verður af ljósinu straffað. Því að allt hvað opinbert verður, það er ljós. Fyrir því segir hann: Vakna þú sem sefur og rís upp af dauða, og Kristur mun svo upplýsa þig. Svo sjáið nú til það þér gangið grandvarlega, eigi svo sem fávísir, heldur svo sem vísir. Og skikkið yður í þeirri tíð því að það er vond tíð.

Fyrir því verðið ekki gálausir, heldur skiljandi hvað vilji Drottins er. Og drekkið yður eigi víndrukkna því þar af kemur saurugt líferni, heldur uppfyllist í anda og talið hver við annan af sálmum og lofsöngum og andlegum kvæðum. Syngið og spilið Drottni í yðrum hjörtum og segið þakkir alla tíma Guði og föður fyrir alla hluti í nafni vors Drottins Jesú Kristi. Og verið hver öðrum undirgefnir í Guðs ótta. Konunnar veri sínum bændum undirgefnar svo sem Drottni. Því að maðurinn er kvinnunnar höfuð líka svo sem Kristur er safnaðarins höfuð og hann er frelsari síns líkama. En líka svo sem söfnuðurinn er nú Kristi undirgefinn svo og einninn konunnar sínum bændum í öllu.

Þér menn, elskið yðrar húsfreyjur líka svo sem Kristur elskaði söfnuðinn og gaf sig sjálfan út fyrir hann upp á það hann helgaði hann og hreinsaði fyrir skírnarsáinn í orðinu svo að hann tilbyggi sér sjálfum dýrðlega safnan sem öngva flekkan né hrukku eður þess konar hefði, heldur það hún sé heilög og óstraffanleg. Svo skulu og mennirnir elska sínar eiginkonur sem sína eigin líkami. Hver sína eiginkonu e hold hatað, heldur nærir það og fóstrar svo sem að Drottinn söfnuðinn. Því að vér erum limir hans líkama, af hans holdi og af hans beinum. Hvers vegna mun maðurinn forláta föður og móður og nálægjast sína eiginkonu, og þau tvö munu eitt hold vera. Leyndur dómurinn er stór.

En eg segi af Kristi og safnaðinum. Þá elski þér þó hver sem einn sína eiginkonu sem sjálfan sig, en konan óttist manninn.% Sétti kapítuli [ breyta] Þér börn, verið hlýðug yðrum foreldrum í Drottni því að það er réttvíslegt. Heiðra þú föður þinn og móður, - það er hið fyrsta boðorð sem fyrirheit hefir: svo að þér vegni vel og sért langær á jörðu. Og þér feður skuluð eigi egna yðar börn til reiði, heldur alið þau upp í siðsemd og áminningu til Drottins. Þér þjónustumenn, verið hlýðugir yðrum líkamlegum drottnum með ótta og skjálfta í einfaldleik yðvars hjarta svo sem Kristi.

Eigi alleinasta með þjónustu fyrir augum svo sem mönnum til þókknunar, heldur svo sem þjónar Kristi það þér gjörið þennan Guðs vilja af hjarta með góðum huga. Látið yður þykja svo sem þér þjónið Drottni og eigi mönnum. Og vitið að hvað sem hver einn gjörir gott, það mun hann af Drottni meðtaka hvort hann er þræll eður frelsingi. Og þér drottnannir, gjörið einninn þetta hið sama við þá og eftirlátið ógninnar, vitandi einninn það yðvar Drottinn er á himnum og það hjá honum er ekkert manngreinarálit. Hvað að auk er, mínir bræður: Styrkist í Drottni og í mætti hans kraftar. Íklæðið yður Guðs herskrúða svo að þér getið staðið í gegn umsátum djöfulsins.

Því að vér höfum eigi við hold og blóð að berjast, heldur við höfðingja og volduga sem er við drottna veraldarinnar, þeir eð í myrkrum þessarar veraldar drottna viður illskuandana undir himninum. Hvar fyrir þá höndlið Guðs herneskju svo að þér getið í móti staðið á hinum vonda degi og verið í öllum yðrum verkum fullgjörðir. Svo standið nú, umgyrðið yðrar lendar með sannleiknum og ískrýddir með brynju réttlætisins og um fæturna skófataðir meður evangelio friðarins upp á það þér séuð fyrirbúnir. En umfram alla hluti þá höndlið skjöld trúarinnar, með hverjum þér kunnið út að slökkva öll eldleg skeyti hins prettvísa.

Og grípið hjálm hjálpræðisins og sverð andans, hvert að er Guðs orð.* Og biðjið iðulega í allri nauðþurft með bænum og beiðni í andanum. Og þar til vakið með öllu staðfesti og ákalli fyrir öllum heilögum og fyrir mér upp á það að mér gefist það orð með dristugri opnan míns munns svo að eg mætta kunngjöra leyndan dóm evangelions, hvers sendiboði eg em í festinni, svo að eg megi djarflega þar inni höndla og svo að tala sem tilheyrilegt er. En það að þér vitið einninn hversu háttað er um mig og hvað eg gjöri, það kann Týkikos, minn kæri bróðir og trúr þénari í Drottni, kunngjöra yður allt saman.

Því að eg hefi sent hann til yðar vegna þess að þér vissuð hverninn oss vegnaði og það hann hugsvalaði yðrum hjörtum. Friður sé bræðrunum og kærleiki með trúnni af Guði föður og Drottni Jesú Kristo. Náð sé með öllum þeim sem elska vorn Drottin Jesúm Kristum hreinferðuglega. Amen. Skrifaður af Róm til þeirra í Efeso meður Týkikon.

← Chapter 103Chapter 105 →