Philippians · Chapter 1
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 105 of 174 · about 3 min
[ breyta] Páll og Tímóteus, þjónustumenn Jesú Kristi. Öllum heilögum í Kristo Jesú til Filippenses samt biskupum og þénurum. Náð sé með yður og friður af Guði vorum föður og Drottni Jesú Kristo. Eg þakka Guði mínum svo oft sem eg hugsa yður, hvað eg gjöri alla tíma í mínum bænum fyrir öllum yður, og þá bæn gjöri eg með fögnuði (yfir yðru samlagi í evangelio) í frá hinum fyrsta degi allt til þessa. Og eg em þess hins sama í góðu trausti að sá sem í yður hefir upp byrjað hið góða verkið, hann muni það og einninn fullkomna allt á þann dag Jesú Kristi svo sem að mér er vel heyrilegt það eg haldi af yður öllum í þeim máta.
Því að eg hefi yður í mínu hjarta í þessum mínum fjötrum, hvar inni eg forsvara og vernda þetta evangelium, hvar af að þér eruð allir náðarinnar hluttakarar meður mér. Því að Guð er minn vottur hversu það mig forlengir af hjartans grunni í Kristo Jesú eftir yður öllum.
Og þess sama bið eg það yðvar kærleiki auðgist æ meir og meir í allri viðurkenning og allri raun svo að þér megið reyna hvað best er upp á það þér séuð skírir og óhindrunarlegir allt upp á þann dag Kristi, uppfylltir ávexti réttlætisins sem er fyrir Jesúm Kristum í yður skeð til dýrðar og lofs Guði.* En það læt eg yður vita, kærir bræður, hvað mig er yfir komið að það er til meiri algjörðar skeð evangelio svo að mín fjötur í Kristo eru opinskár vorðin í öllu þinghúsinu og hjá þeim öllum öðrum, og margir bræður í Drottni fengu hugarstyrk af mínum fjötrum þess djarflegar það orð að tala utan hræðslu. Sennilega sumir þá predika Kristum fyrir hatur og þrætu sakir, en sumir út af góðri meining.
Þeir hinir kunngjöra Kristum af hatri og eigi hreinlega því að þeir meina það þeir geti mínum fjötrum nokkra hörmung til lagt, en þessir út af kærleika því að þeir vita það eg ligg hér til forsvars evangelii. En hverninn skal það þá fara? Því að Kristur verður með allsháttuðu móti kunngjörður hvort það sker í réttan máta eða fyrir tilfellis sakir, þá gleð eg mig þó þar inni og vil mig einninn gleðja.
Því að eg veit að það sama mun mér falla til hjálpræðis fyrir yðra bæn og fyrir tilstyrking Jesú Kristi anda sem eg öldungis vænti og vona það eg verði í öngri grein skammaður, heldur það Kristur með allri djörfung svo sem allt hingað til, líka og einninn nú miklaður verði á mínum líkama, sé það fyrir lífið eða fyrir dauðann. Því að Kristur er mitt líf og dauðinn er mín ávinning. En með því það í holdinu að lifa þénar meir til ávaxtar að afla, þá veit eg eigi hvort eg skal kjósa. Því að hvorutveggja sturlar mig harðlega. Eg hefi girnd á frá að skiljast og hjá Kristi að vera, hvað einninn miklu betra væri.
En það er miklu nauðsynlegra í holdinu að blífa fyrir yðar sakir, þess treystandi það eg muni blífa hjá yður og vera yður öllum til framkvæmdar og til trúarinnar gleði upp á það þér megið mjög hrósa yður í Kristo Jesú á mér fyrir mína tilkomu aftur til yðar. Gangið sem verðugt er evangelio Kristi upp á það, hvort heldur eg kem að sjá yður eða em eg fjarlægur, að eg megi það af yður heyra að þér standið í einum anda og einni sálu og með oss berjist í trú þess evangelii og látið öngvaneginn blygða yður af mótstöndurunum, hvert að þeim er full sök fyrirdæmingarinnar, en yður heilsugjafarinnar og það sama af Guði.
Því að yður er það gefið fyrir Kristus sakir, eigi alleinasta það að gjöra að þér á hann trúið, heldur einninn hans vegna liðið og hafið þá sömu baráttu sem þér hafið á mér séð og nú frá mér heyrið.