Philippians · Chapter 2
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 106 of 174 · about 3 min
[ breyta] Því fyrst hjá yður er nú hugsvalan í Kristo, fyrst þar er huggan kærleiksins, fyrst þar er sameign andans, fyrst þar er hjartgróin ástsemi og miskunnsemi, svo uppfyllið minn fögnuð það þér séuð einnrar lundar, hafandi hinn sama kærleika, verandi samhugaðir og eins sinnaðir, ekkert gjörandi fyrir öfund eður hégómadýrð, heldur fyrir lítillæti. Haldið hver sem einn annan æðra en sig sjálfan, og hver einn líti eigi upp á það hvað hans er, heldur upp á það hvað hins annars er. Hver einn sé svo sinnaður sem Jesús Kristus var, hver þó eð var Guðs ímynd.
Hélt hann það þó ekki fyrir neitt rán Guði líkur að vera, heldur minnkaði hann sig sjálfan og tók á sig mynd eins þjóns, varð líkur öðrum mönnum og að hegðan fundinn sem maður, lítillætti sig sjálfan og varð hlýðugur allt til dauða, já, allt til krossins dauða.
Fyrir því hefir Guð upphafið hann og gaf honum nafn það yfir öllum nöfnum er svo að í nafni Jesú skulu sig beygja öll kné sem á himnum og á jörðu og undir jörðunni eru, og allar tungur skulu viðurkenna það Jesús Kristus sé Drottinn til dýrðar Guðs föðurs. * Líka svo, mínir kærustu, sem þér hafið alla tíma hlýðugir verið, eigi alleinasta í minni náveru, heldur nú miklu meir í minni fráveru, verkið sjálfir yðvart hjálpræði með ugg og ótta. Því að Guð er hann sem í yður verkar bæði viljann og gjörninginn eftir sinni þókknan.
Gjörið alla hluti án möglunar og án örvæntingar upp á það þér séuð skuldalausir og skírir og óstraffanleg Guðs börn mitt í milli þeirrar vondrar og umsnúinnar kynslóðar, meðal hverra þér skínið svo sem ljós í heiminum, þar með ef þér blífið við ljóssins orð mér til hrósunar á degi Krists svo að eg hafi ekki til ónýts hlaupið né forgefins erfiðað. Og ef svo er það eg verð fórnfærður yfir offri og guðsþjónustu yðrar trúar, gleð eg mig með yður öllum. Þess skulu þér einninn gleðja yður og skuluð gleðja yður meður mér. En eg vona í Drottni Jesú það eg muni innan skamms senda Tímóteum til yðar svo að eg glöddunst í huga þá eg fengi að vita hversu yður fer að.
Því að eg hefi öngvan sem svo algjörlega sé míns sinnis, er svo af hjarta fyrir yður syrgir. Því að hinir allir leita þess hvað þeirra er, eigi hvað Jesú Kristi er. En vitið það hann er reyndur því að líka svo sem barnið föðurnum, þá hefir hann meður mér þjónað í evangelio. Þann sama vona eg það eg muni skjótlega þangað senda, þá að eg sé hvað mér líður. En eg treystunst í Drottni það eg muni einninn sjálfur innan skamms koma. Mér leist nauðsynlegt það eg senda til yðar þann bróður Epafroditon, sá minn hjálpari og meðstríðari og yðar apostuli og nauðþurftarþénari er, af því að þér höfðuð heyrt það hann hefði sjúkur verið.
Og hann var að sönnu dauðsjúkur, en Guð veitti honum miskunn, eigi einasta honum, heldur jafnvel mér svo að eg hefða eigi sorg á sorg ofan. En eg hefi sent hann þess skjótara hingað svo að þér sæjuð hann og yrðuð glaðir aftur og það eg hefða þess minni sorg. Svo meðtakið hann nú í Drottni af allri gleði og hafið þess konar menn í heiðri. Því að fyrir sakir verks Kristi er hann dauðanum svo nær kominn það hann sitt líf feygið aktaði upp á það hann þjónaði mér í yðvarn stað.