The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 107

Philippians · Chapter 3

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 107 of 174 · about 2 min

← Chapter 106Chapter 108 →

[ breyta] Framar (kærir bræður) þá gleðjið yður í Drottni. Því það eg skrifa yður jafnan, hið sama tregar mig ekki og gjöri yður þess öruggari. Gefið gætur að hundunum, gefið gætur að illum erfiðurum, gefið og gætur að %tilsníðingunni. Því að vær erum umsníðing, vér sem Guði þjónum í andanum og hrósum oss af Kristo Jesú og forlátum oss ekki upp á holdið þó að eg hafi það eg megi mér af holdinu hrósa.

Fyrst einn annar lætur sér þykja hann megi sér holdsins hrósa, en þá miklu framar eg sem á hinum átta degi em umskorinn einn út af Íraelsfólki, af ætt Benjamíns, ebreskur af ebreskum og eftir lögmáli faríseus, eftir vandlætinu ofsóknari safnaðarins, eftir réttlætinu í lögmálinu verið óstraffanlegur. En hvað mín ávinning var, það hefi eg Kristus vegna fyrir skaða reiknað.

Því að eg held alla hluti skaða vera í hjá þeirri yfirgnæfanlegri viðurkenningu Kristi Jesú vors Drottins, fyrir hvers sakir eg hefi alla hluti fyrir skaða reiknað og held þá fyrir þrek svo að eg ávinni Kristum og í honum fundinn verði, það eg hafi ekki mitt réttlæti út af lögmálinu, heldur það sem fyrir trúna á Kristum kemur sem er það réttlæti er af Guði í trúnni til reiknað verður, hann að kenna og kraft hans upprisu og sameign hans harmkvæla, það eg verði og hans dauða líkur svo að eg mætta honum í móti renna í upprisu framliðinna. Ekki það eg hafi það þegar höndlað eður sé þegar fullkominn.

Eg skunda honum eftir hvort að eg geta einninn höndlað eftir því að eg em af Kristo Jesú höndlaður. Mínir bræður, eg held mig eigi sjálfan fyrir þann að eg hafi það höndlað. En eitt vil eg segja það eg gleymi því hvað til baka er og dreg mig að því sem í fyrir er. Eg skunda að því uppsettu takmarki eftir því hnossi, hvert fram heldur þeirri himneskri kallan Guðs í Kristo Jesú. Svo margir sem af oss eru nú fullkomnir, þá verum svo sinnaðir. Og ef þér skuluð nokkuð annað halda, þá látið Guð yður það opinbera, þó svo framt það vér fram göngum eftir reglunni er vér erum inn komnir og verum líka sinnaðir.

Fylgið mér eftir, kærir bræður, og gætið að þeim sem svo ganga líka sem að þér hafið oss til fyrirmyndar. Því að margir ganga svo (af hverjum eg hefi oftsinnis sagt yður, en nú segi eg yður grátandi) þeir óvinir krossins Kristi, hverra ævilok er fyrirdæmingin, hverra Guð maginn er. Og þeirra vegsemd, sem jarðlega sinnaðir eru, verður til skammar, en vor starfan er á himnum, hvaðan vér væntum frelsarans Drottins Jesú Kristi, sá vorn fáfengan líkama mun forklára það hann líkur verði hans forkláruðum líkama eftir þeirri verkan þar hann kann sér alla hluti með undirgefna að gjöra.

← Chapter 106Chapter 108 →