Philippians · Chapter 4
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 108 of 174 · about 2 min
[ breyta] Líka svo, mínir kærir og æskilegir bræður, minn fögnuður og mín kóróna, standið svo í Drottni elskanlegir. Hinn Evodían áminni eg, hinn Sýntýken áminni eg það þeir sé samlyndir í Drottni. Eg bið þig einninn, minn trúr lagsmaður, veit þeim hjástoð sem með mér strítt hafa yfir evangelio með Klemesi og hinum öðrum mínum hjálparmönnum, hverra nöfn að eru á lífsbókinni.* Gleðjið yður í Drottni alla tíma. Og enn aftur segi eg: Gleðjið yður. Yðra umgengni látið kunna vera öllum mönnum. Drottinn er nálægur. Syrgið ekki, heldur látið yðrar bænir í öllum hlutum í bænahaldi og ákalli með þakkargjörð fyrir Guði kunnar verða.
Og friður Guðs, sá hærri er öllum skilningi, varðveiti yðar hjörtu og hugskot í Kristo Jesú.* Framar, kærir bræður, hvað sannarlegt er, hvað heiðursamlegt er, hvað réttlegt er, hvað hreinferðugt er, hvað ástsamlegt er, hvað vel samir, er þar dyggð nokkur, er þar lof nokkuð, hugsið þar eftir, hvert þér einninn lært og meðtekið, heyrt og séð hafið á mér, það gjörið. Þá mun Drottinn friðarins með yður vera. Eg em næsta mjög glaður vorðinn í Drottni það þér endurblómguðust fyrir mér að syrgja sem þér hafið þó allt jafnt fyrir mér sorgað, en tíðin hefir það eigi viljað líða. Eigi segi eg það nauðþurftarinnar vegna því að eg hefi lært hjá þeim að eg em mér að nægja láta.
Eg kann lágur og hár að vera. Eg em í öllum hlutum og hjá öllum skaffellegur, bæði saddur að vera og svo hungraður, bæði gnóg að hafa og vesöld líða. Eg formá alla hluti fyrir þann sem mig máttugan gjörir (Kristur). Þó hafi þér vel gjört það þér hafið mína hörmung á yður tekið. En þér, Filippenses, vitið það að af upphafi evangelii þann tíð eg burt fór af Makedónía það enginn söfnuður hefir mér samlagað í reikningsskapnum úti að láta og inn að taka utan þér einir saman. Því að til Tessalonisen sendu þér nokkuð til minnar nauðþurftar eitt sinn og þar eftir enn einu sinni. Eigi það eg spyrji að gjöfinni, heldur spyr eg að ávextinum það hann sé gnóglegur í yðrum reikningskap.
Því að eg hefi alla hluti og hefi gnóglegana, eg fylltunst þann tíð eg meðtók fyrir Epafroditon það frá yður kom sætan ilm, þægilegt offur, Guði þakknæmt. En minn Guð uppfylli alla yðar nauðþurft eftir sínum dýrðarinnar ríkdómi í Kristo Jesú. En Guði og vorum föður sé dýrð um aldur og ævi að eilífu. Amen. Heilsið öllum heilögum í Kristo Jesú. Yður heilsa þeir bræður sem eru hjá mér. Yður heilsa allir bræður, sérdeilis þeir af keisarans húsi. Náð vors Drottins Jesú Kristi sé með yður öllum. Amen. Skrifaður af Róm með Epafroditon.