The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 109

Colossians · Chapter 1

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 109 of 174 · about 3 min

← Chapter 108Chapter 110 →

[ breyta] Páll postuli Jesú Kristi fyrir Guðs vilja og Tímóteus bróðir. Þeim heilögum til Kolossia og þeim trúuðum bræðrum í Kristo. Náð sé með yður og friður af Guði vorum, föður og Drottni Jesú Kristo. Vér þökkum Guði og föður vors Drottins Jesú Kristi og biðjum alla tíma fyrir yður af því vér höfum heyrt af yðvarri trú á Jesúm Kristum og af kærleiknum til allra heilagra fyrir þeirrar vonar sakir sem yður er tillögð á himnum, af hverri þér hafið til forna heyrt fyrir sannleiksins orðið í evangelio það til yðar er komið svo sem það er um allan heiminn, grær og frjóvgast.

Svo og einninn líka meðal yðar allt í frá þeim degi er þér höfðuð það heyrt og viðurkennt Guðs náð í sannleika svo sem þér lært hafið af Epafra, vorum kæra meðþénara, hver að er trúr þjón Kristi fyrir yður, sá oss einninn kunngjörði yðvarn kærleika í andanum.

Hvar fyrir vér einninn, allt í frá þeim degi þá vér höfðum það heyrt, gefu vér eigi upp fyrir yður að beiða og biðja það þér uppfyllist meður viðurkenning hans vilja í allsháttuðum vísdómi og skilningi svo að þér gangið Drottni verðuglegana til allrar þókknunar og verið ávaxtarsamir í öllum góðum verkum og að vaxa í Guðs játningu og styrkjast í öllum krafti eftir hans dýrðlegri makt í allri þolinmæði og langlundargeði meður fögnuði og þakkir gjöra föðurnum sem oss hefir skapfellega gjört til arfskiptis heilagra í ljósinu.

Sá að oss hefir frelsað af yfirvaldi myrkranna og hefir oss sett um í ríki síns elskulega, á hverjum vér höfum endurlausnina fyrir hans blóð sem er syndanna fyrirgefning.* Sá sem að er ímynd ósýnilegs Guðs, hinn frumgetni fyrir allar skepnur. Því að fyrir hann eru allir hlutir skapaðir það á himnum og á jörðu er, hið sýnilega og hið ósýnilega, bæði yfirkórar og drottnanir, höfðingjadómar og valdsstéttir. Allt saman er það fyrir hann og í honum skapað. Og hann er fyrir öllum, og allir hlutir standast í honum. Hann er höfuð líkamans sem er söfnuðurinn, hver að er upphafið og hinn frumgetni frá dauðum upp á það hann hafi í öllum hlutum fyrirgang.

Því að það er svo þakknæmt verið að í honum skyldi öll fylling byggja og allir hlutir yrði fyrir hann forlíktir til hans sjálfs, það sé á jörðu eður á himnum, þar með að hann friðinn gjörði fyrir blóðið á sínum krossi fyrir sjálfan sig. Og yður, þér sem forðum daga voruð framandi og óvinir fyrir hugskotið í vondum verkum, en nú hefir hann forlíkt yður meður líkama síns holds fyrir dauðann upp á það hann upprétti yður heilaga og óstraffanlega og sakalausa í sínu augliti ef þér blífið annars í trúnni grundvallaðir, staðfastir og óhræranlegir af voninni þessa evangelii sem þér hafið heyrt, hvert predikað er meðal allra skepna sem undir himninum er, þess þénari eg, Páll, em vorðinn.

Eg gleð mig nú í mínum harmkvælingum, þær eg líð fyrir yður, og uppfylli á mínu holdi hvað að vantar á þær harmkvælingar í Kristo fyrir hans líkama, hver að er söfnuðurinn, þess þénari eg em vorðinn eftir guðlegu predikunarembætti sem mér er gefið meðal yðar að eg það Guðs orð ríkulega predika skal, sem er leyndur dómurinn, hver hulinn er verið frá veraldar upphafi og um ævi, en nú opinberaður er hans heilögum, hverjum Guð hefir viljað kunngjöra hver að sé sá dýrðlegur ríkdómur þessa leyndardóms meðal heiðinna þjóða (hver að er Kristur) sem er vonin dýrðarinnar, hvern vér boðum, áminnandi alla menn og lærandi alla menn í allsháttaðri speki upp á það vér uppréttuðum hvern mann algjörðan í Kristo Jesú, þar eg inni erfiða og stunda eftir verkan þess sem í mér kröftuglega verkar.

← Chapter 108Chapter 110 →