Colossians · Chapter 2
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 110 of 174 · about 2 min
[ breyta] Eg vil yður vita láta hverja áhyggju eg hefi fyrir yður og fyrir þeim í Laódíkea og öllum þeim sem mitt auglit hafa ei séð í holdinu svo að þeirra hjörtu hugsvöluðust og samlynduð yrði í kærleikanum og í allri auðgan fullkomins skilnings að viðurkenna leyndan dóm Guðs föðurs og Kristi, í hverjum huldir liggja allir sjóðar viskunnar og viðurkenningarinnar. En eg segi þar af það enginn tæli yður með skynsamlegri ræðu því að þó eg sé þar ekki eftir holdinu, þá em eg þó í andanum hjá yður fagnandi það eg sé yðra skikkan og yðra staðfasta trú á Kristum. Líka svo sem þér hafið nú meðtekið Drottin, Kristum Jesúm, svo líka gangið í honum og verið innrættir og uppbyggðir í honum.
Verið og staðfastir í trúnni sem þér eruð lærðir til og yfirgnæfið í honum með þakkargjörð. Sjáið til það enginn herleiði yður fyrir fílosófíam og hégómlegar tælingar eftir mannasetningi og veraldarinnar setningi, en eigi eftir Kristo Jesú. Því að í honum byggir öll gnægð guðdómsins líkamlega, og þér eruð fullkomnir í honum. Hann sem er höfuð alls höfðingjadóms, valdsstéttar, í hverjum þér eruð umskornir með umskurn án handa fyrir aflögu syndsamlegs líkama fyrir umskurning Kristi í því þar þér eruð með honum greftraðir fyrir skírnina, í hverri þér eruð upp aftur risnir fyrir trúna sem Guð verkar, hver eð hann uppvakti af dauða.
Og hefir yður einninn með honum lifandi gjört þann tíð þér voruð dauðir í syndum og í yfirhúð yðvars holds og hefir oss fyrirgefið allar vorar syndir og afskafið þá handskrift sem móti oss var, hver fyrir setningana sannaðist og oss gagnstaðleg var, og hefir hana mitt á burt frá oss tekið og á krossinn neglt og hefir afflett höfðingjadóma og volduga og til sýnis fram leitt opinberlega og sigri hrósað yfir þeim fyrir sig sjálfan. Af því látið öngvan gjöra yður samvisku neina í mat eður drykk elligar með sérdeilis helgihöld eða tunglkomur eður þvottdaga, hvert að er skuggi af því sem tilkomandi var, en sjálfur kroppurinn er í Kristo.
Látið öngvan svipta yður málteikninu af þeim sem eftir eigin þótta ganga í eyðmýkt og andlegleik englanna, hverja hann sá aldri og er til ónýts upphrokaður í sínu kjötlegu sinni og heldur sig ekki við höfuðið sem er Kristur, á hverjum allur líkaminn fyrir limu og liðanna samtenging öðlast styrking og samanhald og vex svo til guðlegrar stærðar. Fyrst þér eruð nú dauðir með Kristi frá veraldarinnar setningum, hverninn láti þér þá veiða yður með setningum líka svo sem að lifðu þér enn nú í veröldinni?
Hinir sem segja: Eigi skaltu á því taka, eigi skaltu því bergja, eigi skaltu það áhræra, - hvert þó allt slitnar eður mást ef það er með höndum haft og eru manna boðorð og kenningar, hverjar eð hafa yfirlit viskunnar fyrir sjálfvaldan hugarins andlegleik og eyðmýkt og fyrir það þeir þyrma eigi líkamanum og gjöra eigi holdinu sína %sæmd til sinnar nauðþurftar.