The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 111

Colossians · Chapter 3

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 111 of 174 · about 2 min

← Chapter 110Chapter 112 →

[ breyta] Eru þér nú upp aftur risnir með Kristi, þá leitið þess hvað þar uppi er þar eð Kristur situr til Guðs hægri handar. Kostgæfið eftir því sem þar uppi er og ei eftir því sem á jörðu er. Því að þér eruð dauðir og yðart líf er fólgið með Kristo í Guði. En nær Kristur yðvart líf man sig opinbera, þá munu þér einninn meður honum opinberaðir verða í dýrðinni.* Svo deyðið nú yðra limu sem á jörðu eruð, hórdóma, fúlan lifnað, lostasemi, vondar girndir, saurlífi og ágirni (sem er skurgoðadýrkan), fyrir hvað að kemur Guðs reiði yfir börn vantrúarinnar, í hverjum þér hafið og forðum daga gengið þá þér lifðuð í þeim.

En afleggið nú allt í frá yður, reiði, grimmd, illsku, háðung, skemmileg orð af yðrum munni. Ljúgið ekki innbyrðis, afklæðist hinum gamla manni með sínum verkum og íklæðist hinum nýja, sá sem endurnýjast til viðurkenningar eftir þess ímynd sem hann hefir skapað þar enginn girskur, Gyðingur, umskorinn, yfirhúð, útlendur, Sýta, þræll og frelsingi að er, heldur allir hlutir og í öllum Kristur. Svo íklæðist nú svo sem Guðs útvaldir, heilagir og elskanlegir hjartfólginni miskunnsemi, góðvilja, hógværi, þolinmæði og umlíðið hver annan. Og ef að nokkur hefir klögumál móti öðrum, þá fyrirgefið það hver öðrum innbyrðis. Líka svo sem Kristur hefir fyrirgefið yður, svo skulu þér einninn.

En fram yfir allt þetta þá íklæðist kærleikanum, hver að er band algervileiksins. Og friður Guðs regeri í yðrum hjörtum, til hvers að þér eruð einninn kallaðir í einum líkama. Verið og þakklátir. Látið Kristi orð gnóglega byggja meðal yðar í allri visku. Lærið og áminnið yður með sálmum og lofsöngum og andlegum, ljúflegum kvæðum og syngið Drottni í yðrum hjörtum. Og allt hvað þér gjörið með orð eður verk, það gjörið allt í nafni Drottins Jesú og þakkið Guði föður fyrir hann. Þér kvinnur, verið yðar bændum undirgefnar í Drottni svo sem að byrjar. Þér menn, elskið yðrar eiginkonur og verið ekki harðúðugir viður þær.

Þér börn, verið hlýðug foreldrunum í öllum hlutum því að það er Drottni þakknæmilegt. Þér feður, reitið ekki yðar börn til vanvirðu svo að þau verði ei of körg. Þér þénarar, verið hlýðugir í öllum hlutum yðrum líkamlegum herrum, eigi meður þjónustu fyrir augum svo sem mönnum til þókknunar, heldur með einfaldleik hjartans og meður Guðs ótta. Allt hvað þér gjörið, það gjörið af hjarta svo sem Drottni og eigi mönnum. Og vitið það þér munuð öðlast af Drottni verðlaun arftökunnar. Því að þér þjónið Drottni Kristo. En hver órétt gjörir, sá mun það meðtaka hvað hann hefir órétt gjört, og ekkert manngreinarálit er hjá Guði.

Þér drottnar, hvað rétt og heyrilegt er, það auðsýnið þénurunum, og vitið það þér hafið einninn Drottin á himni.

← Chapter 110Chapter 112 →