Colossians · Chapter 4
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 112 of 174 · about 2 min
[ breyta] Verið stöðugir í bænaákallinu og vakið í því hinu sama með þakkargjörð. Biðjið og einninn með fyrir oss svo að Guð upplúki oss orðsins dyr til að tala leyndan dóm Kristi, fyrir hvað eg em bundinn upp á það að eg opinbera það sama sem mér byrjar að tala. Gangið víslega í bland þeim sem að eru þar fyrir utan og skikkið yður í tíðina. Yðar ræða sé ætíð ljúfleg og með salti krydduð það þér vitið hverninn þér skulið hverjum sem einum andsvara.
Hverninn um mig er háttað, það mun yður allt saman kunngjöra Týkikos, kær bróðir og trúr þénari og meðþjón í Drottni, þann eg hefi þar fyrir til yðar sent það eg vissa hverninn yður færi að og það hann hugsvalaði yðar hjörtum samt Onesímo, þeim trúa og kæra bróður, hver í frá yður er. Og allt hverninn hér fer að, munu þeir kunngjöra yður. Yður heilsar Aristarkus, minn sambandingi, og Markús, systrungur Barnabe, af hverjum þér hafið nokkurn bífalning meðtekið. Ef svo er það hann kemur til yðar, þá meðtakið hann. Og Jesús, sá kallast Júst, hverjir út af umskurninni eru. Þessir eru alleinasta mínir hjálpendur á Guðs ríki, þeir mér eru huggan vorðnir.
Yður heilsar Epafras, hver í frá yður er, einn þjón Kristi og jafnan fyrir yður áhyggju berandi í bænum upp á það þér standið fullkomnir og uppfylltir í öllum Guðs vilja. Eg ber honum það vitni að hann hefir stóra ástúð til yðar og til þeirra í Laódíkea og Híerapóli. Yður heilsar Lúkas, læknir elskulegur, og Demas. Heilsið bræðrunum til Laódíkea og Nýmfan og söfnuðinum sem að er í hans húsi. Og nær pistillinn er lesinn hjá yður, þá útvegið það hann verði einninn og lesinn í samkundunni til Laódíkea og það þér lesið þann sem til þeirra í Laódíkea er ritaður. Og segið Arkippo það: Sjá upp á embættið það er þú meðtekið hefur í Drottni að þú fullkomnir það. Heilsan af minni hendi, Páls.
Verið minnugir minna fjötra. Náðin sé með yður. Amen. Skrifaður af Róm meður Týkikon og Onesímon.