1 Thessalonians · Chapter 1
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 113 of 174 · about 1 min
[ breyta] Páll og Silvanus og Tímóteus. Þeim safnaði til Tessalonia í Guði föður og Drottni Jesú Kristo. Náð sé með yður og friður af Guði vorum föður og Drottni Jesú Kristo. Vér þökkum Guði alla tíma fyrir yður alla og þenkjum yðar óaflátanlega í vorum bænum, hugleiðandi yðar verk í trúnni og yðvart erfiði í kærleikanum og yðra þolinmæði í voninni, hver að er vor Drottinn Jesús Kristur fyrir Guði vorum föður. Því, kærir bræður af Guði elskaðir, vér vitum það þér eruð útvaldir. Því að vort evangelium er hjá yður verið, eigi alleinasta í orðinu, heldur hvorutveggja í krafti og helgum anda og í næsta miklum algjörvileik svo sem að þér vitið hvílíkir vér vorum meðal yðar fyrir yðar skuld.
Og þér eruð vorir eftirfylgjarar vorðnir og Drottins og hafið orðið meðtekið í miklum mótgangi meður fögnuði í helgum anda svo að þér eruð fyrirmynd vorðnir allra trúaðra í Makedónía og Akkaia. Því að af yður er orð Drottins víðfrægt vorðið, eigi alleinasta í Makedónía og Akkaia, heldur í allar álfur er yðar trú til Guðs útdreifð svo að eigi er þörf yður nokkuð að segja. Því að þeir sjálfir kunngjöra af yður hvað vér höfum fyrir inngang haft til yðar og hverninn þér eruð umsnúnir til Guðs í frá skurguðum til að þjóna lifanda og sannarlegum Guði og eftir að bíða hans sonar af himnum, hvern hann uppvakti af dauða, Jesúm, sá oss hefir frelsað af tilkomandi reiði.