1 Thessalonians · Chapter 2
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 114 of 174 · about 2 min
[ breyta] Af því þér vitið, kærir bræður, vorn inngang til yðar það hann er eigi ónýtur verið, heldur svo sem vér höfðum áður til forna margt liðið og háðung þolað til Filippenses (sem að þér vitið), þó vorum vér samt og áður alldjarfir í vorum Guði hjá yður að tala evangelion Guðs í stórri baráttu að vor áminning hefir eigi verið til villudóms né til óhreinleiks né með vél, heldur eftir því vér erum af Guði reyndir það oss er tiltrúað að predika evangelion, svo tölu vér, eigi sem vildu vér mönnum þókknast, heldur Guði sem vor hjörtu reynir.
Því að vér höfum aldri neitt sinn með smjaðrunarorðum umgengið sem að þér vitið og eigi með nokkru ágirndartilefni (Guð er þess vottur) og eigi heldur leitað neinnrar sæmdar af mönnum, hvorki af yður né af öðrum hefðu vér eigi mátt gjöra yður þyngsl sem aðrir apostular, heldur vorum vér ástúðlegir hjá yður. Líka sem önnur fóstra þá elur börn sín, svo höfðu vér góðvild af hjarta til yðar og vorum fúsir til að hlutskipta við yður, eigi alleinasta Guðs evangelion, heldur jafnvel voru lífi fyrir því að vér höfum yður ástfólgna. Þér minnist vel, kærir bræður, vors erfiðis og vorrar mæðu.
Því að dag og nótt erfiðuðum vér svo að vér veittum öngum nein þyngsl meðal yðar og predikuðum hjá yður evangelium Guðs. Þess eru þér vottar og Guð (þér sem trúaðir eru) hversu heilaglega, réttferðuglega og óstraffanlega vér vorum hjá yður svo sem að þér vitið hverninn að vér höfum hvern sem einn af yður svo sem faðirinn sín börn áminnt og huggað og það vottað að þér skylduð verðuglega ganga fyrir Guði, þeim yður hefir kallað til síns ríkis og sinnar dýrðar.
Fyrir það þökkum vér einninn Guði óaflátanlega það þér, þann tíð þér meðtókuð af oss það orð guðlegrar predikunar, meðtóku þér það eigi svo sem mannanna orð, heldur (eftir því það sannarlega er) sem Guðs orð það einninn verkar í yður, þér sem trúið. Því að þér eruð eftirfylgjarar vorðnir, kærir bræður, Guðs söfnuðum í Júdea í Kristo Jesú svo það þér hafið það sama liðið af yðrum náfrændum sem hinir af Gyðingum, hverjir einninn Drottin Jesúm hafa líflátið og þeirra eigin spámenn og hafa oss ofsókt og þókknast ekki Guði og eru öllum mönnum gagnstaðlegir, tálma oss að segja heiðingjum þar þeir megi af hjálpast svo að þeir uppfylli sínar syndir alls staðar. Því að reiði er óendaleg yfir þá komin.
En vér, kærir bræður, með því að oss er stíað verið í frá yður um stundarsakir eftir yfirliti og þó eigi eftir hjartanu, þá höfum vér þess framar flýtt oss yðart auglit að sjá af stórri þreyjan. Fyrir það höfum vér viljað til yðar koma, eg, Páll, tvysar sinnum, og Satanas hefir hindrað oss. Því hver er vor von eða fögnuður eður kóróna hrósunarinnar? Eru þér það eigi fyrir vorum Drottni Jesú Kristo í hans tilkomu? Þér eruð vor vegsemd og fögnuður.