The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 115

1 Thessalonians · Chapter 3

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 115 of 174 · about 2 min

← Chapter 114Chapter 116 →

[ breyta] Fyrir því höfum vér ekki lengur það viljað umlíða og létum oss þókknast það vér værum einir saman látnir til Aþenis og höfum útsent Tímóteum, vorn bróður og Guðs þénara og vorn hjálparmann í evangelio Kristi, til að styrkja og á að minna yður í yðvarri trú svo að enginn yðar skelfdist í þessum hörmungum. Því að þér vitið að vér erum þar tilsettir. Og þá er vér vorum hjá yður, sögðu vér yður það fyrir það vér hlytum mótgang að hafa svo sem að skeð er og þér vitið. Þar fyrir að eg gat það eigi lengur liðið, þá útsenda eg svo að eg mætti reyna yðra trú upp á það að eigi mætti ske það freistarinn freistaði yðar og yrði vort erfiði svo til ónýts.

En nú það Tímóteus er í frá yður til vor kominn og hefir kunngjört oss yðra trú og kærleika og það þér hugsið til vor alltíð til hins besta og það yður forlengir eftir að sjá oss svo sem oss einninn líka eftir yður, þá urðu vér, kærir bræður, huggaðir á yður í allri vorri hörmung og nauð fyrir yðra trú. Því að nú eru vér lifandi meðan þér standið í Drottni. Því hverja þakkargjörð getu vér Guði endurgoldið fyrir yður, fyrir allan þann fögnuð sem vér höfum yðar vegna fyrir vorum Guði? Vér biðjum dag og nótt allharðlega það vér mættum sjá yðart auglit og uppfylla svo það hvað á brestur yðra trú. En Guð vor faðir og Drottinn Jesús Kristus greiði vorn veg til yðar.

En Drottinn margfaldi yður og láti kærleikinn yfirgnæfa innbyrðis hjá yður og við hvern mann (svo sem að vér erum einninn við yður) svo að yðart hjarta sé styrkt og óstraffanlegt í heilagleik fyrir Guði vorum föður í tilkomu vors Drottins Jesú Kristi með öllum hans heilögum.

← Chapter 114Chapter 116 →