The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 116

1 Thessalonians · Chapter 4

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 116 of 174 · about 2 min

← Chapter 115Chapter 117 →

[ breyta] Framar, kærir bræður, biðjum vér yður og áminnum í Drottni Jesú að því þér hafið af oss meðtekið hverninn þér skuluð ganga og Guði þókknast svo að þér æ meir og meir fullkomnari verðið í trúnni. Því að þér vitið hvað fyrir boðorð vér höfum gefið yður fyrir Drottin Jesúm. Því að það er vilji Guðs yðvarrar helgunar að þér haldið yður í frá frillulífi og hver yðar sem einn kunni að eignast sitt ker í helgan og heiðri og ekki í girndarbruna sem heiðingjar, þeir af Guði ekkert vita, og það enginn niðurþrykki né svíki sinn bróður í nokkri höndlan. Því að Drottinn er hann sem hefnir alls þessa sem að vér höfum áður fyrri sagt og yður vottað.

Því að Guð hefir ekki kallað oss til óhreinleiks, heldur til helgunar.* Því hver hann forsmár nú, hann forsmár öngvan mann, heldur Guð, sá sinn heilaga anda hefir í yður gefið. En af bróðurlegum kærleika er ekki þörf yður að skrifa því að þér eruð sjálfir af Guði lærðir yður innbyrðis að elska. Og það gjöri þér einninn við alla bræður sem í öllu Makedónía eru. En vér beiðum yður, kærir bræður, það þér verðið enn algjörðari og kostgæfið spakferðugir að vera og yðvart eigið að stunda og erfiðið með yðar eigin höndum svo sem að vér höfum boðið yður upp á það þér mættuð ærlega ganga hjá þeim sem þar fyrir utan eru og einskis þeirra við þurfandi.

En vér viljum (kærir bræður) eigi dylja fyrir yður af þeim sem sofa upp á það þér séuð eigi hryggvir sem þeir aðrir er öngva von hafa. Því fyrst vér vitum það Jesús er dáinn og upp aftur risinn, svo mun Guð og einninn þá sem sofnaðir eru fyrir Jesúm með honum fram leiða. Því segjum vér yður svo sem orð Drottins það vér, hverjir vér lifum og yfirblífum í tilkomu Drottins, það vér munum eigi fyrir þeim koma sem sofa. Því að Drottinn sjálfur mun með herópi og höfuðengilsins raust og Guðs lúðri ofan koma af himnum, og hinir dauðu í Kristo munu fyrst upp aftur rísa.

Eftir á vér, þeir vér lifum og yfirblífum, verðum til líka uppnumnir með þeim sömum í skýin til móts við Drottin í loftið og munum svo hjá Drottni vera alla tíma. Svo huggið nú hver annan innbyrðis með þessum orðum.

← Chapter 115Chapter 117 →