The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 117

1 Thessalonians · Chapter 5

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 117 of 174 · about 2 min

← Chapter 116Chapter 118 →

[ breyta] En af tímanum og stundunni, kærir bræður, er ekki þörf yður að skrifa. Því að þér vitið sjálfir glögglega það dagur Drottins mun koma sem þjófur um nótt af því nær þeir munu segja: Það er friður og allt er utan hættu, - þá mun fordjörfunin snögg yfir þá koma líka svo sem kveinan jóðsjúkrar konu. Og eigi skulu þeir umflúið geta. En þér, kærir bræður, verið ekki í myrkrinu svo að sá dagur grípi yður ekki sem þjóf. Þér eruð allir saman ljóssins börn og dagsins börn. Vér erum eigi af nóttinni né myrkrunum. Fyrir því látum oss eigi sofa svo sem hina aðra. Því að þeir sem sofa, þeir sofa á nóttinni, og þeir sem drukknir eru, þeir drekka á nóttinni.

En vér, þeir vér erum dagsins, skulum sparlífir vera, íklæddir brynju trúarinnar og kærleiksins og með hjálmi vonarinnar til hjálpræðisins. Því að Guð hefir eigi sett oss til reiði, heldur það vér skyldum hjálpræðið öðlast fyrir vorn Drottin Jesúm Kristum, sá fyrir oss hefir dáið, svo hvort að vér vökum eður sofum, skulum til samans með honum lifa. Fyrir því áminni hver yðar annan innbyrðis og leiðréttið hver annan svo sem að þér og gjörið. En vér biðjum yður, kærir bræður, það þér þekkið þá sem erfiða meðal yðar og forstöðu veita í Drottni og áminna yður að hafa þá þess kærari fyrir þeirra verks sakir.

Og verið friðsamir við þá. * En vér biðjum yður, kærir bræður, að þér áminnið óráðvanda, huggið vesala, umlíðið breyskva, verið þolinmóðir við alla. Sjáið til að þar enginn gjaldi nokkrum illt fyrir illt, heldur eftirfylgið alla tíma hinu góða, bæði innbyrðis og við alla. Verið jafnan glaðir. Biðjið óaflátanlega. Verið þakklátir í öllum hlutum því að það er Guðs vilji í Kristo Jesú til yðar. Andann þá kefjið ekki. Spádómana forsmáið ekki. Reynið alla hluti og bíhaldið því hvað gott er. Forðist alla vonda prýði.

En sjálfur Guð friðarins helgi yður allt í gegnum, og yðar andi samt sálunni og líkamanum megi algjörlega varðveittur vera óstraffanlegur í tilkomu vors Drottins Jesú Kristi.* Trúr er hann sem yður kallaði, hann mun það og einninn gjöra. Kærir bræður, biðjið fyrir oss. Heilsið öllum bræðrum með heilögum kossi. Náð vors Drottins Jesú Kristi sé með yður. Amen. Til þeirra Tessalonikenses, hinn fyrsti skrifaður frá Aþene.

← Chapter 116Chapter 118 →