2 Thessalonians · Chapter 1
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 118 of 174 · about 1 min
[ breyta] Páll og Silvanus og Tímóteus. Þeim söfnuði til Tessalonia í Guði, vorum föður, og Drottni Jesú Kristo. Náð sé með yður og friður af Guði, vorum föður, og Drottni Jesú Kristo. Vér skulum alltjafnt gjöra Guði þakkir fyrir yður, kærir bræður, sem að verðugt er því að yðar trúa vex að næsta og kærleikurinn sérhvers meðal yðar allra yfirgnæfir innbyrðis hver við annan svo það vér hrósum oss í Guðs söfnuði yðrar þolinmæði og trúar í öllum yðar ofsóknum og hörmungum, hverjar þér þolið, til útvísingar það Guð muni réttferðuglega dæma og það þér verðugir verðið til Guðs ríkis, fyrir hvert þér og líðið.
Að því er það rétt hjá Guði að endurgjalda þeim hörmung sem yður hörmung veita, en yður, þér sem hörmung líðið, hvíld meður oss þá er Drottinn Jesús mun opinberast af himni meður englum síns kraftar og með eldsins loga, hefnd að gefa yfir þá sem ekki kenna Guð og yfir þá sem ekki eru hlýðugir evangelio vors Drottins Jesú Kristi, hverjir píslir munu líða, ævinlega fordjörfun af augliti Drottins og af hans dýrðarlegri makt þá hann mun koma og vegsamlegur birtast meður sínum heilögum og dásamlegur með öllum trúuðum. Því að vorum vitnisburði til yðar af þeim sama degi hafi þér trúað.
Og sakir þess biðjum vér einninn alla tíma fyrir yður það vor Guð gjöri yður verðuga sinni kallan og uppfylli alla góðvild náðarinnar og trúarinnar verk í kraftinum svo að á yður verði prísað nafn vors Drottins Jesú Kristi og þér á honum eftir þeirri náð vors Guðs og Drottins Jesú Kristi.