2 Thessalonians · Chapter 2
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 119 of 174 · about 2 min
[ breyta] En vegna þeirrar tilkomu vors Drottins Jesú Kristi og vorrar samansöfnunar til hans biðjum vér yður, kærir bræður, það þér látið ekki skjótlega hræra yður af yðru sinni né skelfa, hvorki fyrir anda eða fyrir orð né bréf svo sem af oss send, það að dagur Kristi sé þegar fyrir höndum. Látið öngvan villa yður með neinu móti. Því að hann kemur ekki nema að sé, það áður fyrri komi það fráfall og opinskár verði maður syndarinnar og glatanarsonur, sá sem að er mótstandari og sig forhefur upp yfir allt hvað Guð eður Guðs dýrkan heitir, svo það hann setur sig í Guðs mustéri svo sem Guð og það útvísandi að hann sé Guð. Minnist þér ekki á það eg sagða yður þetta þann tíð eg var í hjá yður?
Og hvað það nú inniheldur, viti þér það hann muni opinberast á sínum tíma. Því að sú vonska hreyfir sér allareiðu heimuglega utan það alleinasta sá sem því nú inniheldur, hlýtur burt tekinn að verða. Og svo mun þá hinn vondi opinskár verða, hverjum Drottinn mun steypa með anda síns munns og honum endalok gjöra fyrir sinnar uppbirtingar tilkomu, hvers tilkoma að sker eftir verkan andskotans með allsháttuðum lygilegum krafti, táknum og stórmerkjum og með allsháttuðu fláræði til ranglætis meðal þeirra sem tapaðir verða fyrir það þeir hafa eigi meðtekið kærleikann sannleiksins svo þeir hjálpuðust.
Því mun Guð senda þeim megnan villudóm það þeir trúi lyginni upp á það þeir verði allir dæmdir sem sannleiknum eigi trúa og heldur samþykkjast ranglætinu. En vér skulum þakka Guði alla tíma fyrir yður, elskanlegir bræður af Drottni, það Guð hefir útvalið yður allt frá upphafi til hjálpráðsins í helgun andans og í trú sannleiksins þar hann hefir yður í kallað fyrir evangelion til vegsamlegs eigindóms vors Drottins Jesú Kristi. Svo standið nú, kærir bræður, og haldið þá setninga sem þér eruð til lærðir, sé það fyrir vor orð eður bréf.
En sjálfur vor Drottinn Jesús Kristur og Guð, vor faðir, sá oss hefir elskað og gefið eilífa huggan og góða von fyrir náðina, hann huggi yðar hjörtu og staðfesti yður í öllum lærdómi og góðum verkum.