The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 120

2 Thessalonians · Chapter 3

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 120 of 174 · about 2 min

← Chapter 119Chapter 121 →

[ breyta] Framar, kærir bræður, biðjið fyrir oss svo að orð Drottins hlaupi og vegsamað verði líka svo sem hjá yður og það vér verðum frelsaðir í frá óráðvöndum og illgjörnum mönnum. Því að trúan er ekki hvers manns. En sá Drottinn er trúr sem yður mun styrkja og varðveita frá illu. En vér væntum til yðar í Drottni það þér gjörið og gjöra munið hvað vér bjóðum yður. Og Drottinn greiði yðar hjörtu til Guðs kærleika og til þolinmæði Kristi. En vér bjóðum yður, kærir bræður, í nafni vors Drottins Jesú Kristi það þér burt takið yður í frá sérhverjum þeim bróður sem óráðvandlega gengur og ei eftir þeim setningi sem hann hefir meðtekið af oss. Því að þér vitið hverninn þér skuluð oss eftir fylgja.

Því vér vorum ekki ótérugir á meðal yðar, höfum einninn ekki brauðið fyrir ekkert út af nokkrum tekið, heldur með erfiði og mæðu dag og nótt þá höfum vér verkað svo að vér veittum öngum yðar nein þyngsl. Eigi fyrir það svo sem að vér hefðum þar öngva makt til, heldur það vér gefum oss sjálfa yður til fyrirmyndar oss eftir að fylgja. Og þá vér vorum hjá yður, boðuðum vér yður það að ef nokkur vill eigi erfiða, sá skal og ekki heldur eta. Því að vér heyrum, það nokkrir meðal yðar ganga óráðvandlega og erfiða ekkert, drýgjandi heldur slenskap. En þess háttar boðum vér og áminnum þá fyrir vorn Drottin Jesúm Kristum það þeir erfiði með spaklæti og eti sitt eigið brauð.

En þér, kærir bræður, þreytist ekki nokkuð gott að gjöra. En ef nokkur er eigi hlýðinn voru orði, þann teiknið upp fyrir bréf og hafið ekkert með honum að gjöra svo að hann verði blygðaður. Haldið hann þó ekki sem óvin, heldur áminnið hann sem bróður. En sjálfur Drottinn friðarins gefi yður ætíð frið í öllum stöðum. Drottinn sé með yður öllum. Heilsan með minni hendi, Páls, hvert að er það merki í öllum þeim bréfum sem skrifa eg. Náð vors Drottins Jesú Kristi sé með yður öllum. AMEN. Skrifaður frá Aþenu.

← Chapter 119Chapter 121 →