The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 121

1 Timothy · Chapter 1

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 121 of 174 · about 2 min

← Chapter 120Chapter 122 →

[ breyta] Páll postuli Jesú Kristi eftir boðan Guðs, vors frelsara, og Drottins Jesú Kristi, sá vor von er. Tímóteo, mínum ástúðlegum syni í trúnni. Náð, miskunn, friður af Guði, vorum föður og vorum Drottni Jesú Kristo. Svo sem að eg beidda þig það þú blifir til Efeso meðan eg færa í Makedóníam og boðaðir það sumum það þeir ekkert annað kenndu og gæfir öngvan gaum að þeim ævintýrum og ættartölusögum sem öngvan enda taka, þær meir afla spurninga en betrunar til Guðs í trúnni.

Því að uppfylling boðorðsins er kærleikurinn af hreinu hjarta og af góðri samvisku og af ómengaðri trú, í frá hverri sumir hafa villst og eru umsnúnir til ónýtrar þvættunar, vilja vera ritningsmeistarar, skilja þó ekki hvað þeir segja eða hvað þeir setja.

En vér vitum það lögmálið er gott fyrst nokkur tíðkar það réttlega, vitandi það að hinum réttláta er ekkert lögmál sett, heldur ranglátum og óhlýðugum, ómildum og syndurum, illhrifsingum og illskufullum, föðurdrápurum og móðurbönum, mannslögurum, frillulífismönnum, þeim sem skömm drýgir með karlmanni og þeim mönnum í burt stelur og ljúgurum, meinsærismönnum og svo það hvað heilsusamlegum lærdómi mótstaðlegt er eftir dýrðlegu evangelion hins sæla Guðs það mér tiltrúað er. Og eg þakka vorum Drottni Kristo Jesú sem mig styrkvan gjörir og mig trúlyndan aktað hefir, setjandi í þetta embætti sem eg var þó fyrr meir forsmánari, ofsóknari og háðungarmaður.

En mér er miskunnsemi yfirkomin því að það gjörða eg af viskuleysi í vantrú. En náð vors Drottins er þess gnæfanlegri verið fyrir trúna og þann kærleika sem að er í Kristo Jesú. Því að það er vissileg sannindi og dýrmætt, verðugt orð það Kristus Jesús er kominn í þennan heim synduga hjálplega að gjöra meðal hverra eg em hinn fremsti. En mér er því miskunnsemi yfirkomin upp á það Kristus Jesús auðsýndi á mér fyrstum alla þolinmæði þeim til eftirdæmis sem á hann skyldu trúa til eilífs lífs. En Guði eilíflegum konungi, ódauðlegum og alleina vísum sé lof og dýrð að eilífu. AMEN.

Þetta boðorð bífala eg þér, son minn, Tímóte, eftir hinum fyrri spádómum yfir þér að þú fremjir í þeim góðan riddaraskap, hafandi trúna og góða samvisku, hverri sumir hafa frá sér skúfað og á trúnni skipbrot liðið, meðal hverra er Hýmeneus og Alexander, hverja eg hefi andskotanum ofurselt svo að þeim yrði kennt að guðlasta eigi meir.

← Chapter 120Chapter 122 →