The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 122

1 Timothy · Chapter 2

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 122 of 174 · about 1 min

← Chapter 121Chapter 123 →

[ breyta] Svo áminni eg nú það vér umfram alla hluti gjörum í fyrstu bónir, bænir, fyrirbeiðslur, þakkargjörðir fyrir öllum mönnum, fyrir konungum og fyrir öllum yfirboðurum upp á það vér mættum hafa spakt og rósamt líferni í allri mildi og siðsemd. Því að slíkt er gott, þar til einninn þakknæmt fyrir Guði, vorum hjálpara, sá sem vill það allir menn hjálpist og til viðurkenningar sannleiksins komist.

Því að þar er einn Guð og einn meðalgangari milli Guðs og mannanna sem er sá maður, Kristus Jesús, hver sjálfan sig hefir útgefið fyrir alla til endurlausnar það þetta yrði predikað í hans tíð þar eg em predikari og postuli tilsettur (eg segi sannleik í Kristo og lýg ekki), lærari heiðinna í trúnni og í sannleiknum. Svo vil eg nú það að mennirnir biðji í öllum stöðum og upphefji heilagar hendur án reiði og örvilnunar. Slíkt hið sama konunnar að þær prýði sig í sómasamlegum búnaði með blygð og hreinferði, eigi meður hárflektan eða gulli eður perlum eða dýrmætum klæðnaði, heldur svo sem það konunum hæfir, auðsýnandi mildi fyrir góð verk. Kvinnurnar læri í þögn með allri undirgefni.

En það tilsteðju vér ekki kvinnunni það hún kenni, ekki einninn það hún sé mannsins herra, heldur það hún sé þögul. Því að Adam er fyrri skapaður, eftir það Eva. Og Adam varð eigi svikinn, en konan varð svikin og hefir yfirtroðsluna innleitt. En hún mun hjálpast fyrir barnburð ef hún blífur í trúnni og í kærleikanum og í helguninni með hreinferði.

← Chapter 121Chapter 123 →