The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 123

1 Timothy · Chapter 3

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 123 of 174 · about 1 min

← Chapter 122Chapter 124 →

[ breyta] Það er vissileg sannindi ef að nokkur girnist biskupsembætti, sá girnist ágætt verk. En biskupi byrjar að vera óstraffanlegum, einnrar kvinnu eiginmanni, sparneytnum, hóglátum, siðsömum, gestrisnum, kenningasömum, enginn vínsvelgjari, eigi baráttusömum, einskis ljótlegs ávinnings gírugum, heldur vingjarnlegum, eigi þráttunarsömum, eigi ágjörnum, sá góða fyrirsjón veitir sínu húsi, hver hlýðug börn hefir með allri virðing (svo að ef nokkur kann ekki í sínu húsi forstöðu að sýna, hverninn má hann þá Guðs söfnuði umsjón veita?), eigi nýnæmum svo að hann upphrokist ekki og hrapi svo í forsmánarans úrskurð.

Hann hlýtur og einninn að hafa góðan vitnisburð af þeim sem þar utan eru upp á það hann hrapi ekki í svívirðing og snöru spéarans. Líka einninn skulu djáknarnir vera heiðarsamlegir, eigi tvítungaðir, öngvir vínsvelgir, einskis skemmilegs ávinnings gírugir. Þeir eð hafa heimugleik trúarinnar í hreinnri samvisku. Þá hina sömu lát áður reyna, eftir það lát þá þjóna nær þeir eru óstraffanlegir. Svo og líka skulu þeirra eiginkvinnur vera hóglátar, eigi spésamar, hreinferðugar og trúlyndar í öllum hlutum. Djáknana hvern sem einn lát vera einnrar kvinnu eiginmann, sá vel forstendur sín börn og sín eigin hús.

En þeir eð vel þjóna, verðskulda sér sjálfum góðan stig og mikla framkvæmd í trúnni í Kristo Jesú. Þetta skrifa eg þér og vona sem fyrst til þín að koma, en ef mér seinkar að þú vitir hverninn þú skalt ganga í Guðs húsi, hvert að er söfnuður Guðs lifanda, stólpi og grundvallan sannleiksins. Og ómótmælanlega mikil er mildi heimugleikans: Sá sem að opinberaður er í holdinu, réttlættur í andanum, auglýstur englunum, predikaður heiðingjum, trúður er af heiminum, meðtekinn í vegsemd.

← Chapter 122Chapter 124 →