The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 124

1 Timothy · Chapter 4

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 124 of 174 · about 1 min

← Chapter 123Chapter 125 →

[ breyta] En andinn segir skilmerkilega það á síðustum tímum munu nokkrir af falla frá trúnni og gætur gefa að sviksamlegum öndum og djöflalærdómum fyrir þá sem í smjaðran lygimælendur eru og forbrenndar samviskur hafa, fyrirbjóðandi að giftast og bindast þeirrar fæðu sem Guð hefir skapað til meðtöku trúuðum meður þakkargjörð og þeim sem sannleikinn viðurkenna. Því að öll Guðs skepna er góð og ekkert burtkastanlegt það með þakkargjörð meðtekið verður. Því að það helgast fyrir Guðs orð og bænina. Nær þú ert þetta bræðrunum fyrirleggjandi, mantu vera góður þénari Jesú Kristi sem uppalinn ert í orðum trúarinnar og góðum lærdómum, hverjum þú hefir hér til eftir fylgt.

En aldraðra kvenna skröksögur forðast þú. En sjálfan þig heldur vekra til mildinnar. Því að líkamleg vekran er til lítils nytsamleg, en mildin er til allra hluta nytsöm, hafandi þessa lífsins fyrirheit og svo hins eftirkomanda. Þetta er vissileg sannindi og dýrmætt verðugt orð. Því að til þess sama erfiðum vér einninn og verðum formæltir um það vér höfum vonað upp á lifanda Guð, sá sem að er frelsari allra manna, en sérdeilis trúaðra. Þetta boða og kenn. Enginn forsmái þína æsku, heldur vert fyrirmynd trúaðra í orðinu, í breytninni, í kærleikanum, í andanum, í trúnni, í hreinlífinu. Vert þrifinn með lesningum, með áminningum, með kenningum þangað til það eg kem.

Gleym ekki þeirri gáfu sem þér er gefin fyrir spádóma með handaupplegging öldungsins. Iðka þetta og umgakk svo að þinn frami sé opinber hverjum manni. Haf gætur á sjálfum þér og á lærdóminum, og blíf í þessum greinum. Því ef þú gjörir þetta, muntu sjálfan þig hjálplegan gjöra og þá sem þér heyra.

← Chapter 123Chapter 125 →