The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 125

1 Timothy · Chapter 5

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 125 of 174 · about 4 min

← Chapter 124Chapter 126 →

[ breyta] Gamlan lasta ekki, heldur áminn hann sem föður, unga sem bræður, aldraðar konur sem mæður, ungar sem systur með öllu hreinlífi. Ekkjurnar heiðra, þær sem réttar ekkjur eru. En ef ekkja hefir börn eður barnabörn, þá lát hana fyrst læra sitt eigið hús guðlega að stjórna og foreldrunum líkt aftur að gjalda því að það er vel gjört og þakknæmt fyrir Guði. En það er sannarleg ekkja sem einsaman er og sína von setur upp á Guð og staðnæmist í bænum og ákalli dag og nótt. En hún, sem í girndum lifir, er lifandi dauð. Og bjóð þetta upp á það þær sé óstraffanlegar. En ef einhver rækir ekki sitt, sérdeilis sín hjú, sá hefir afneitað trúnni og er vantrúuðum verri.

Lát öngva ekkju út gefast sem sextigi ára er og verið hefir eins manns eiginkvon og hefir vitnan góðra verka, það hún hafi sín börn vel uppalið, það hún hafi gestrisin verið, það hún hafi heilagra fætur þvegið, það hún hafi harmþrungnum lífsnæring veitt, það hún hafi til allra góðra verka kostgæfin verið. En ungar ekkjur varast þú. Því nær þær taka lostasamar að gjörast í gegn Kristo, þá vilja þær giftast, hafandi sinn dóm það þær hafi hina fyrstu trú brotið. En jafnframt þessu eru þær gagnlausar og læra um hús að hlaupa, en þær eru eigi alleinasta gagnlausar, heldur einninn örðugar og ávítunarsamar og tala það sem ekki hæfir.

Því vil eg það ungar ekkjur giftist, ali börn, heimilinu forstöðu veiti og gefi mótstandaranum ekkert tilefni það hann megi formælingarsök með hafa. Því að þar eru þegar nokkrar frá horfnar, andskotanum eftirfylgjandi. En ef einhver trúaður maður eða trúuð kvinna hefir ekkjur, veiti hann þeim sömum framfærslu og láti söfnuðinn ekki þyngdan verða svo að þær, sem sannar ekkjur eru, mættu nægð hafa. Þeir öldungar, sem vel forstanda, haldist tvefaldlegs heiðurs verðugir, sérdeilis þeir sem erfiða í orðinu og í lærdóminum. Því að ritningin segir: Eigi skaltu til binda múlann á erjanda nauti, - og: Verkmaðurinn er síns kaups verðugur.

Í móti öldungi átakst ekkert klögumál nema tveggja eður þriggja vitnisburði. Þá sem syndgast, straffa fyrir öllum upp á það hinir aðrir hafi ótta af. Eg votta fyrir Guði og Drottni Jesú Kristo og útvöldum englum það þú varðveitir þetta án eiginlegs hugboðs, ekkert gjörandi eftir vorkunnmælum. Legg eigi bráðlega hendur yfir nokkurn. Samlaga þig ekki annarlegum syndum, geym þig sjálfan hreinferðugan. Hér eftir drekk ekki vatn, heldur iðka lítils víns fyrir þíns maga sakir og það þú oftsinnis ert sjúkur. Sumra manna syndir eru opinberar svo að vér kunnum þær fyrir fram að dæma. En sumra verða hér eftir á opinberar.

Líka einninn sumra góðverk eru fyrir fram opinber og hinna annarra blífa ekki niðri byrgð. Sétti kapítuli [ breyta] Þér þjónustumenn, sem undir okinu eru, skulu halda sína drottna í öllum heiðri upp á það að Guðs nafn og lærdómurinn verði ekki lastaður. En þeir sem trúaða drottna hafa, skulu ekki forsmá þá hinu sömu fyrir það þeir eru bræður, heldur skulu þeir því þénugri vera með því það hinir eru trúaðir og elskanlegir og velgjörningsins hluttakarar. Þetta kenn og áminn.

Ef að nokkur kennir öðruvís og blífur ekki við heilsusamleg orð vors Drottins Jesú Kristi og við þann mildileiksins lærdóm, sá er uppbelgdur og veit ekkert, heldur er sóttlera í spurningum og orðadeilum, af hverjum uppsprettur öfund, þrætur, guðlastanir, illar óvenjur, misgreiningar þeirra manna sem fordjörfuð hugskot hafa, þeir eð sannleiknum sviptir eru, hverjir það meina að mildileikurinn muni fjárafli vera. Forða þig þeim sem þess konar eru. En það er mikill afli, hver mildilegur er, og lætur sér sína lukku nægja. Því að vér höfum ekkert innflutt í þennan heim, af því er það opinbert að vér munum ekkert í burt hafa. En nær vér höfum fæði og klæðnað, svo látum oss nægja.

Því að þeir, sem ríkir vilja verða, falla í freistni og snöru og í margar fávíslegar og skaðsamlegar girndir, þær eð manninum drekkja í fordjarf og fyrirdæming. Því að ágirnd er rót alls ills, þeirrar sumir girntust og eru trúnni frávilltir og gjöra sér svo sjálfum margar meinsemdir. En þú, Guðs maður, flý þetta og eftir fylg réttlætinu, mildinni, trúnni, kærleikanum, þolinmæðinni, hógværðinni. Berst góðri baráttu trúarinnar, höndla svo eilíft líf, þar þú einninn ert til kallaður og játað hefir góða játning fyrir mörgum vottum.

Eg býð þér fyrir Guði sem alla hluti lífgar og fyrir Kristo Jesú, sá undir pontverskum Pílato vottað hefir góða játning, það þú varðveitir þetta boðorð án flekkunar, óstraffanlegur, allt til auglýsingar vors Drottins Jesú Kristi, hverja sá hinn sæli og alleinasta voldugur man auglýsa á sínum tímum, konungur konunganna, Drottinn drottnanna. Hann sem einsamall ódauðleikinn hefir, sá sem byggir í ljósinu þar enginn kann til að komast, hvern enginn maður hefir séð né sjá kann, hverjum að sé heiður og ævinlegt veldi. Amen.

Ríkum þessarar veraldar bjóð þú það þeir sé ekki mikillátir og leggi öngva von upp á þenna fallvaltan ríkidóm, heldur upp á lifanda Guð sem oss gnóglega gefur allsháttað til notnunar og það þeir gjöri nokkuð gott, það þeir auðgist í góðum verkum, sé gjafmildir, vinsælir, safnandi sér sjálfum í svo að þeir höndli eilíft líf. Ó, Tímóte, varðveit það þér er tiltrúað og varast fáfengilegt hégómahjal og kappdeilur falsfrægðaðrar listar, hverri að nokkrir frammi haldi og eru trúnni frávilltir. Náðin sé með þér. Amen. Skrifaður frá Laódíkea sem að er ein höfuðborg landsins Frýgia og Pakatíane.

← Chapter 124Chapter 126 →