The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 126

2 Timothy · Chapter 1

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 126 of 174 · about 2 min

← Chapter 125Chapter 127 →

[ breyta] Páll postuli Jesú Kristi fyrir Guðs vilja að predika fyrirheitið lífsins í Kristo Jesú. Mínum elskulega syni, Tímóteo. Náð, miskunn, friður af Guði föður og Kristo Jesú, vorum Drottni. Eg þakka Guði, þeim eg þjóna í frá langfeðgum mínum í hreinnri samvisku, það eg óaflátanlega minnunst þín í mínum bænum dag og nótt og það mig forlengir eftir þig að sjá (nær eg hugleiði þín tárföll) upp á það eg uppfylltist fögnuði, íhugandi þá flekklausa trú sem í þér er og áður fyrri byggði með þinni ömmu, Laide, og með þinni móður, Evnike, eg em þess fullviss það einninn með þér. Hvar fyrir eg áminni þig það þú uppvekir þá Guðs gjöf, sem í þér er, fyrir upplegging minna handa.

Því að Guð hefir ekki gefið oss hræðslunnar anda, heldur sannleiksins og kærleiksins og bindindis. Fyrir því skammast þín ekki vors Drottins vitnisburðar né míns, hans bandingja, heldur meðþolugur vert evangelio svo sem að eg eftir Guðs krafti þeim oss hefir hjálplega gjört og kallað með heilagri kallan, ekki eftir vorum verkum, heldur eftir sinni fyrirhyggju og náð, hver oss er gefin í Kristo Jesú fyrir ver en nú opinberuð fyrir auglýsing vors lausnara, Jesú Kristi, sá sem dauðann hefir af skafið, en lífið og ódauðleikinn í ljós leitt fyrir evangelium, í hvert eg em settur predikari, postuli, lærari heiðinna þjóða, hvers vegna er eg líð þetta.

En eg skömmunst mín þess ekki því að eg veit á hvern eg trúi og em fullviss það hann kann það að varðveita hvað mér er tiltrúað allt til hins sama dags. Hegða þér eftir fyrirmynd þeirra heilsusamlegra orða sem þú hefir heyrt af mér út af trúnni og kærleiknum í Kristo Jesú. Það hið góða sem þér er tiltrúað, það varðveit fyrir heilagan anda sem í oss byggir. Því að þú veist það þeir hafa allir frásnúist mér sem í Asía eru, meðal hverra er Fýgelus og Hermogenes. Drottinn gefi miskunn heimkynni Ónesifori því að hann hefir oftsinnis mig endurnært, og af minni járnviðju hefir hann ekki sér feilað, heldur þá hann var í Róm, leitaði hann mín sem innilegast og fann mig.

Herrann gefi honum það hann finni miskunn hjá Drottni á þeim degi. Og í hversu mörgu hann hefir mér þjónustu veitt til Efeso, það veist þú allra best.

← Chapter 125Chapter 127 →