2 Timothy · Chapter 2
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 127 of 174 · about 2 min
[ breyta] Svo styrk þig nú, son minn, í náðinni sem er fyrir Kristum Jesúm. Og í því sem þú hefir af mér heyrt fyrir marga vitnisburða, bífala það trúuðum mönnum, þeim sem tilhæfilegir eru að læra aðra. En þú vert herkinn sem góður kappi Jesú Kristi. Enginn stríðsmanna samblandar sig neinum næringarafla upp á það hann þókknist þeim hinum sama sem meðtók hann. Og þótt nokkur berjist, verður hann ekki jafnsnart kórónaður nema hann berjist réttlega. En sá akurkallinn, sem akurinn erjar, skal fyrstur neyta af ávextinum. Merk hvað eg segi. En Drottinn mun gefa þér skilning í öllum hlutum.
Haf í minni Jesúm Kristum, hver upp aftur er risinn í frá dauðum út af sæði Davíðs eftir mínu evangelio, yfir hverju eg kveljunst allt til bandanna sem illvirki. En Guðs orð eru ekki bundin. Fyrir því allt hvað eg þoli, það er sakir útvaldra upp á það þeir öðlist einninn hjálpræðið í Kristo Jesú með eilífri dýrð. Þetta er sannarlega satt: Því ef vér deyjum með, þá munu vér með lifa. Þolu vér, svo munu vér með ríkja. Ef vér afneitum, þá mun hann einninn afneita oss. Trúum vér ekki, þá blífur hann þó trúfastur því hann kann ekki sér sjálfum að afneita. Þetta áminn þú og vitna fyrir Drottni það þeir hafi ekkert orðgjálfur, hvert öngu neytt er nema til fráhverfingar þeim sem til heyra.
Kostgæf að auðsýna þig Guði réttlegan og óstraffanlegan verkmann, sá er rétt í sundur klýfur orðið sannleiksins. Fáfengilegt hégómahjal flý þú því að það styrkir mikið til óguðlegs athæfis, og þeirra orð þá eta um sig líka sem annar krabbi, meðal hverra er Hýmeneus og Fíletus, hverjir sannleiknum hafa frávillst, segjandi upprisuna skeðna vera og hafa svo sumra trú umsnúið. En styrk Guðs grundvallan stendur stöðug, hafandi þetta merki það Drottinn kenni þá sem að hans eru og að hver sá fráskiljist ranglætinu sem ákallar nafn Kristi. En í stóru húsi eru ekki alleinasta kerin af gulli og silfri, heldur einninn af tré og leiri, sum til heiðurs, sum til vanæru.
Og ef að nokkur hreinsar sig í frá þvílíkum, sá man vera heilagt ker húsherranum til heiðurs hantéranda og til alls góðs verks reiðubúið. Flý þú girndir æskunnar, en eftir fylg réttlætinu, trúnni, kærleiknum, friðinum með þeim öllum sem ákalla Drottin af hreinu hjarta. En fávíslegar og vanvirðilegar spurningar flý þú því að þú veist að þær ala þráttanir. En þjónustumanni Drottins tilheyrir ekki að þrátta, heldur vingjarnlegum að vera við alla og kenningasömum, sá er vonda umliðið getur með hógværi og straffa þá sem þrálátir eru ef að Guð gæfi þeim eitthvað sinn yfirbót sannleikinn að viðurkenna og endurvitkaðir verða úr djöfulsins snöru, af þeirri þeir herleiddir eru til hans vilja.