2 Timothy · Chapter 3
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 128 of 174 · about 1 min
[ breyta] En það skaltu vita það á síðustum dögum tilstanda háskasamlegar tíðir. Því að þeir menn munu verða sem eru sérgóðir, ágjarnir, mikillátir, dramblátir, háðgjarnir, foreldrunum óhlýðugir, óþakklátir, óguðlegir, óhýrlegir, ófriðsamir, spélnir, lostasamir, manndyggðarlausir, svikulir, illúðlegir, hrokafullir, þeir eð meir elska munaðlífi en Guð, hverjir eð hafa yfirlit guðlegs athæfis, en þess krafti afneita þeir. Forðast þú slíka. Af þessum eru og þeir sem læðast hér og hvar í húsum og að herfangi leiða kvendiskornin, hlaðnar af syndum og með margvíslegar girndir fjatraðar eru, lærandi jafnlega, en geta þó aldregi til sannleiksins viðurkenningar komist.
Eins álíka sem þeir Jannes og Jambres mótstóðu Moyses, svo mótstanda þessir einninn sannleiknum, eru menn fordjarfaðs hugskots, torveldir til trúarinnar og komast eigi framar áleiðis. Því að þeirra fíflska mun augljós verða hverjum manni líka sem einninn það hinna var. En þú hefir reynt minn lærdóm, minn vana, mína fyrirætlan, mína trú, mitt langlundargeð, minn kærleika, mína þolinmæði, mínar ofsóknir, mínar hrakningar, þær eð mér tilféllu í Antiokkia, í Íkonía, í Ístran, hverja ofsókn eg leið þar og út af öllum hefir Drottinn mig frelsað. Og allir þeir sem guðlega vilja lifa í Kristo Jesú, þeir hljóta ofsókn að líða.
En hinir vondu menn og svikarar framleiðast æ til hins verra því að þeir villa og verða villtir. En þú, staðnæmst í því sem þú hefir lært og þér er til trúað af því þú veist af hverjum þú hefir lært. Með því þér er kunnug heilög ritning allt í frá barndómi, getur þú sjálfur leiðrétt fyrir þér til hjálpræðisins fyrir trúna á Jesúm Kristum. Því að öll ritning, guðdómlega innblásin, er nytsamleg til lærdóms, til umvandanar, til betrunar, til leiðréttingar í réttlætinu svo að Guðs maður sé algjör, til alls góðs verks hæfilegur.