2 Timothy · Chapter 4
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 129 of 174 · about 2 min
[ breyta] Svo vitna eg nú fyrir Guði og Drottni Jesú Kristo, sá sem að koma skal til að dæma lifendur og dauða með sinni auglýsing og sínu ríki. Predika þú orðið, halt að hvort það sker í haglegan tíma eða óhaglegan. Straffa, ógna, áminn með allri þolinmæði og kenningu. Því að sá tími mun koma það þeir munu ekki umlíða heilsusamlegan lærdóm, heldur munu þeir eftir sínum eiginlegum fýsnum samanhrúga sér sjálfum lærendur eftir því þeim eyrun klæja og munu eyrunum í frá sannleiknum venda og sér snúa til lygi. En þú, vert skírlífur og herkinn í hrakningunum, gjör verk guðsspjalllegs predikara og útlykta þitt embætti virðulega. Því að eg verð snart fórnfærður, og tími minnar burtfarar til stendur.
Eg hefi góða hildi háið, eg hefi hlaupið fullkomnað, eg hefi trúna geymt. Og nú héðan í frá er mér til lögð kóróna réttlætisins sem að Drottinn, hinn réttláti dómari, mun mér á þeim degi gefa. En eigi alleinasta mér, heldur jafnvel öllum þeim sem hans tilkomu elska. Legg kapp á að koma til mín sem skjótast. Því að Demas hefir mig yfirgefið, elskandi þennan heim, og er burt farinn til Tessaloniam, Kreskens í Galatiam, Títus í Dalmatiam, Lúkas er einn saman hjá mér. Markús tak til þín og haf með þér því að hann er mér nytsamlegur til þjónustu. Týkikon hefi eg til Efeso sent. Þann möttul, sem eg lét eftir til Tróada hjá Karpo, haf með nær þú kemur og svo bækurnar, en einkum það bókfelli.
Alexander járnsmiður hefir auðsýnt mér margt vont. Drottinn ömbuni honum eftir sínum verkum, fyrir hverjum vakta þú þig einninn því að hann hefir mjög í móti staðið vorum orðum. Í mínu fyrsta forsvari stóð enginn hjá mér, heldur yfirgáfu þeir mig allir. En eigi sé þeim það til átölu því Drottinn stóð hjá mér og styrkti mig upp á það sú predikan fyrir mig staðfestuð yrði svo að það allir heiðingjar heyrðu. Og eg em frelsaður af gini leónsins. En Drottinn mun frelsa mig af öllu illu og hjálpa til síns himneska ríkis, hverjum að sé dýrð um aldur og ævi. Amen. Heilsa þú Priskan og Akvílam og heimkynni Ónesifori. Erastus bleif til Korintíu, en Trófínon lét eg eftir til Míleto sjúkan.
Haf kapp á það þú komir til mín fyrir veturinn. Þér heilsa Evbúlus og Púd allir bræður. Drottinn Jesús Kristus sé með þínum anda. Náðin sé með þér. Amen. Hinn annar pistill til Tímóteo skrifaður í frá Róm þá er S. Páll var í annað sinn hafður fyrir keisarann Nero.