The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 130

Hebrews · Chapter 1

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 130 of 174 · about 1 min

← Chapter 129Chapter 131 →

[ breyta] Með því að Guð hefir forðum mörgu sinni og margháttaðlega talað til feðranna fyrir spámennina, hefir hann allra síðast á þessum dögum til oss talað fyrir soninn, þann hann setti til erfingja yfir alla hluti, fyrir hvern hann hefir einninn veröldina skapað, hver helst (með því hann er ljómi hans dýrðar og ímynd hans staðfestu) að ber alla hluti með orði síns kraftar og gjörir hreinsan vorra synda fyrir sig sjálfan, sett sig til hægri handar tigninni á hæðunum, svo miklu æðri gjörður englunum sem hann hefir miklu framar þeim erft eitt hærra nafn. Því að til hvers engils þá hefir hann nokkurt sinni það sagt: Þú ert minn sonur, í dag ól eg þig.

Og enn annað sinn: Eg man hans faðir vera, og hann man minn sonur vera. Og enn aftur sem hann innleiðir þann frumgetna í heiminn, segir hann: Og hann skulu allir Guðs englar tilbiðja. Af englunum segir hann að sönnu: Sína engla gjörir hann anda og sína þénara eldsloga. En af syninum: Guð, þitt sæti er æ og að eilífu, stjórnarvöndur þíns ríkis er réttlætisvöndur. Þú hefir elskað réttlætið, en hatað ranglætið. Fyrir því hefir Guð, þinn Guð, smurt þig meður viðsmjörvi fagnaðarins fram yfir þína hlutskiptara. Og: Þú, Drottinn, hefir af upphafi jörðina grundvallað, og himnarnir eru þín handaverk. Þeir sömu munu forganga, en þú munt blífa.

Og allir munu þeir eldast sem annað fat, og svo sem klæði munt þú þeim umhverfa, og þeir munu umhverfast. En þú ert sjálfur hinn sami, og þín ár munu ekki þrotna.* En til hvers engils hefir hann nokkurn tíma sagt: Set þig til minnar hægri handar þar til það eg þína óvini legg til skarar þinna fóta? Eru þeir ekki allir saman þjónustusamlegir andar, útsendir til þjónustu vegna þeirra sem erfa skulu sáluhjálpina?

← Chapter 129Chapter 131 →