The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 131

Hebrews · Chapter 2

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 131 of 174 · about 2 min

← Chapter 130Chapter 132 →

[ breyta] Þar fyrir byrjar oss að gefa þess framar gaum að því það vér heyrum svo að vér fordjörfunst ekki. Því ef það orð er stöðugt vorðið sem fyrir englana er talað og hver yfirtroðning og óhlýðni hefir meðtekið sín réttferðug laun, hverninn vilju vér þá umflý ef vér gætum ekki slíkrar heilsugjafar, hver helst að hafði sitt predikanarupphaf fyrir Drottin? En hún er komin til vor af þeim sem það heyrðu, Guði vitnanda með táknum og dásemdum og kraftaverkum og með útskiptingu heilags anda eftir sinni vild. Því að hann hefir ekki englunum undirgefið þá eftirkomandi veröld þar vér af segjum. Það vottar enn nokkur í einhverjum stað, svo segjandi: Hvað er maðurinn að þú minnist hans?

Og mannsins son að þú vitjir hans? Litla stund hefir þú hann englanna þarfnast látið. Með dýrð og heiðri kórónaðir þú hann og settir hann yfir verk þinna handa. Og alla hluti hefir þú undirlagt hans fótum. Í því það hann undirlagði honum alla hluti hefir hann ekkert fráskilið það honum sé eigi undirgefið. En nú fyrst að sinni sjáu vér ekki það honum sé allir hlutir undirgefnir. En þann sem um stundar sakir hefir englanna þarfnast, sjáum vér að það er Jesús fyrir píslan dauðans kórónaður með dýrð og heiðri upp á það að hann af Guðs náð fyrir alla dauðann smakkaði.

Því að það sæmdi þeim, hvers vegna allir eru og fyrir þann allir hlutir eru, sá mörg börn hefir til dýrðarinnar laðað, það hann höfðingjann þeirra sáluhjálpar fyrir píslina fullkominn gjörði með því þeir koma allir út af einum, bæði sá sem helgar og þeir sem helgaðir verða. Fyrir því blýgist hann ekki einninn þá bræður að kalla og segir: Kunngjöra man eg nafn þitt mínum bræðrum og mitt í söfnuðinum þér lof syngja. Og enn aftur: Upp á hann mun eg minn átrúnað setja. Og enn annað sinn: Sjá þar, eg og þau börn sem Guð hefir mér gefið.

Nú með því að börnin hafa til samans hold og blóð er hann líka einninn þess sama máta hluttakari vorðinn upp á það hann maktina tæki fyrir dauðann þeim sem dauðans makt hafði, það er djöflinum, og endurleysti þá sem fyrir ógn dauðans hlutu um alla ævi í þrælkan að vera. Því að eigi neins staðar annast hann englana, heldur annast hann það sæði Abrahams, hvaðan af hann hlaut fyrir alla hluti sínum bræðrum líkur að verða upp á það hann miskunnsamur yrði og trúlyndur biskup fyrir Guði til að forlíka fólksins syndir. Því að þar sem hann hefir sjálfur inni liðið og freistaður er, þar kann hann þeim inni að hjálpa sem freistaðir verða.

← Chapter 130Chapter 132 →