The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 132

Hebrews · Chapter 3

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 132 of 174 · about 2 min

← Chapter 131Chapter 133 →

[ breyta] Hvar af þér, heilagir bræður, hverjir hluttakarar eruð þeirrar himneskrar kallanar, gefið gætur að þeim sendiboða og biskupi, þann vér viðurkennum, Kristum Jesúm, sá trúlyndur er, hvern hann hefir fyrir settan (líka sem Moysen) í öllu sínu húsi. En þessi er meiri dýrðar verður en Moyses af því að sá hefir meiri heiðran af húsinu sem það smíðaði en húsið sjálft. Því að sérhvert hús verður af einhverjum, en sá alla hluti smíðar, það er Guð.

Moyses var að sönnu trúlyndur í öllu hans húsi svo sem þjónustumaður til vitnisburðar þess sem sagt skyldi verða, en Kristur svo sem sonur yfir sínu húsi, hvers hús að eru vér ef vér annars átrúnaðinum og hrósan vonarinnar (allt til enda) fastlega höldum. Hvar fyrir svo sem segir heilagur andi: Í dag, ef verður, þér heyrið hans rödd, þá forherðið ekki yðar hjörtu svo sem í beiskuninni á freistingardegi í eyðimörk, hvar að freistuðu mig yðrir feður. Þeir reyndu og sáu mín verk í fjörutigir ára. Fyrir það varð eg reiður þessari kynslóð og sagði: Jafnlega eru þeir villir í hjarta. Og eigi þekktu þeir mína vegu, hverjum eg einninn svór í minni reiði að eigi skyldu þeir koma til minnar hvíldar.

Sjáið til, kærir bræður, það ei nokkur meðal yðar hafi vont vantrúað hjarta það frágangandi er Guði lifanda, heldur áminnið yður sjálfa alla daga svo lengi sem það í dag kallast að þar enginn meðal yðar forherðist af svikræði syndarinnar. Því vér erum Krists hluttakarar vorðnir ef vér annars uppbyrjaðri trú (allt til enda) fastlega höldum. Svo lengi sem sagt verður: Í dag, ef verður, þér heyrið hans rödd, þá forherðið ekki yðar hjörtu svo sem í þeirri beiskuninni. Því að sumir, sem hana heyrðu, forbeiskuðu hana (þó eigi allir), þeir eð út gengu af Egyptalandi fyrir Moysen. En hverjum reiddist hann í xl ára? Er eigi svo þeim sem syndguðust, hverra hræ að niður hrundi á eyðimörku?

En hverjum svór hann það þeir skyldu eigi koma til hans hvíldar nema þeim sem vantrúaðir voru? Og vér sjáum það þeir hafa eigi kunnað inn að ganga vantrúarinnar vegna.

← Chapter 131Chapter 133 →